Ný úrræði fyrir nýsköpunarfyrirtæki - Skattafrádráttur
Umsóknarfrestur til 1. september
Atvinnu- og menningarmálanefnd kynnir:
Fyrirtæki sem vilja nýta sér ný úrræði
sem fela í sér skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar og
skattafslátt til fjárfesta þurfa að sækja um staðfestingu hjá Rannís sem
viðurkennd nýsköpunarfyrirtæki fyrir 1. september.
Um
er að ræða úrræði sem samþykkt voru með lögum í desember 2009 og ætlað
er að bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja. Annars vegar verður
viðurkenndum nýsköpunarfyrirtækjum veittur réttur til skattfrádráttar
vegna kostnaðar við rannsóknar-og þróunarstarf í nýsköpunarverkefnum.
Hins vegar er hvatt til fjárfestinga í viðurkenndum
nýsköpunarfyrirtækjum gegn skattafslætti til fjárfesta.
Fyrirtæki
í öllum atvinnugreinum geta sótt um og fengið staðfestingu sem
nýsköpunarfyrirtæki, að uppfylltum skilyrðum laganna. Lykilatriði í
skilgreiningu laganna á „nýsköpunarfyrirtæki" er að geta sýnt fram á að á
tveimur af síðustu þremur árum hafi rannsóknar-og þróunarkostnaður
numið meira en 1,5% af rekstrartekjum, eða -kostnaði, eftir því hvor
fjárhæðin er hærri, eða að varið hafi verið a.m.k. 40 milljónum króna
til rannsókna og þróunarstarfs á ári undanfarin tvö ár.
Í
umsókn er um tvo kosti að velja. Annars vegar staðfesting sem leiðir
til skattfrádráttar vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar samkvæmt 5.
grein laganna, og hins vegar heimild vegna hlutafjáraukningar sem veitir
heimild til skattafsláttar fjárfesta samkvæmt 6. grein laganna. Sami
umsækjandi getur sótt um hvort tveggja.
Skattfrádráttur
miðast við hvert verkefni og er stofn til útreiknings að hámarki 50 m.
kr. fyrir verkefni (75 m. kr. með samstarfi við háskóla,
rannsóknastofnanir eða aðra viðurkennda aðila). Skattfrádráttur nemur
15% af stofni til útreiknings, þ.e. að hámarki 7,5 m. kr. miðað við
hámarksheimild. Skattfrádráttur (endurgreiðsla) er óháður því hvort
fyrirtækið greiðir skatt eða ekki. Hvert fyrirtæki getur verið með
fleiri en eitt verkefni á sama tíma, en sækja verður um hvert verkefni
sérstaklega.
Skattafsláttur
til fjárfesta vegna hlutabréfakaupa miðast við fjárfestingu á hverju
ári að verðmæti keyptra hlutabréfa umfram verðmæti seldra í sams konar
félögum, að hámarki 300.000 kr. hjá einstaklingi og 600.000 kr. hjá
hjónum. Sams konar heimild er veitt hlutafélögum og einkahlutafélögum
með fjárfestingu að fjárfestingu að hámarki 15.000.000 kr. á hverju ári.