Hinn mikli meistari og tónlistargúrú Gunnar Þórðarsson ætlar að loka
tónleikaröðinni "Sumar í Odda" þetta árið þegar hann mætir á
fimmtudaginn næsta og leikur og syngur brot af sinni tónlist, en þar er
af gífurlega miklu og fjölbreyttu efni að taka.
Þennan mann er óþarft að kynna frekar, hann er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi.
Látum þennan einstaka viðburð ekki framhjá okkur fara.
Kaffi og meðlætið margrómaða innifalið í 1500... króna aðgangseyri. Bent er á að ekki er posi á staðnum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Börnin eru auðvitað alltaf sérstaklega velkomin, þeir eru alltaf mjög fjölskylduvænir tónleikarnir í Odda.