5.3.2010 20:25 |
|||||
Engar fyrirvaralausar hamfarir yfirvofandi |
|||||
Skjálftavirkni í Eyjafjallajökli |
|||||
Eldgos myndi valda litlum skaða |
|||||
Sérfræðingar meta minni líkur en meiri á eldgosi í Eyjafjallajökli, þrátt fyrir skjálftavirkni síðustu daga. Engar líkur eru á fyrirvaralausu hamfaraflóði sem myndi ógna öryggi íbúa svæðisins. Eldgos í Eyjafjallajökli hafa yfirleitt verið minniháttar, kraftlítil og valdið óverulegum skaða. Engar heimildir eru um mannskaða. Eldgos í Eyjafjallajökli standast engan samanburð við Kötlugos, síst af öllu með tilliti til almannahættu. Engu að síður er ástæða til að fygljast vel með framvindu mála. Hægt er að fylgjast með skjálftavirkni á vef Veðurstofu Íslands: http://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgos/jardskjalftar/myrdalsjokull/ |
Til baka |
|
