Menning og Mannlíf
29.6.2011 20:29
Sunnudaginn 3. júlí nćstkomandi kl. 16 verđa haldnir nýstárlegir tónleikar í Selinu á Stokkalćk. Ţar koma fram ţćr Rannveig Káradóttir sópransöngkona og Birna Hallgrímsdóttir píanóleikari og flytja íslenska tónlist viđ samspil ljósmynda franska ljósmyndarans og sushi-kokksins Michaël Pankar. Yfirskrift tónleikanna er „Íslensk náttúra” en hún hefur svo sannarlega veriđ í sviđsljósinu hér heima og erlendis undanfarna mánuđi. Í henni er fólgiđ sterkt afl sem er ţess ekki einungis megnugt ađ stöđva flugumferđ í heiminum heldur hefur hún um aldabil veitt ljóđ- og tónskáldum innblástur og getiđ af sér óumrćđanlega fagrar perlur.
Efnisskráin er ţannig uppbyggđ ađ hvert lag er tileinkađ ákveđnum hlutum eđa fyrirbćrum sem finnast í eđa tengjast íslenskri náttúru svo sem hrauni, hverum, fossum, jöklum, huldufólki og tröllum. Textarnir eru nokkrar gamlar ţjóđvísur og ljóđ eftir mörg ástsćlustu skáld Íslands. Lögin eru einnig eftir íslensk tónskáld, bćđi frá fyrri tíđ og núlifandi. Ţau eru ţannig valin ađ karakter hvers fyrirbćris kemur sterkt fram í tónlistinni, sem auk ţess ber íslensk einkenni. Til ađ auka áhrif tónlistarinnar verđur ljósmynd varpađ á vegg bak viđ flytjendurna međ hverju lagi. Ljósmyndarinn Michaël Pankar hefur tekiđ myndirnar á ferđalögum sínum um Ísland og undirstrika ţćr dramatískar andstćđur íslenskrar náttúru.
Rannveig Káradóttir hefur bćđi lagt stund á ţverflautunám, jazz söngnám og klassískt söngnám en í ţví lauk hún burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík voriđ 2008 undir handleiđslu Alinu Dubik. Síđan hefur hún veriđ í einkatímum í söng, bćđi hér heima og erlendis, og tekiđ ţátt í námskeiđum. Hún hlaut 1. verđlaun í The Barry Alexander International Vocal Competition og kom í tengslum viđ ţađ fram í Carnegie Hall í
Birna Hallgrímsdóttir stundađi píanónám frá unga aldri, bćđi viđ Tónlistarskóla íslenska Suzuki sambandsins, Tónlistarskóla Kópavogs og Listaháskóla Íslands en ţađan lauk hún B.mus. gráđu í píanóleik voriđ 2006 undir handleiđslu Peters Maté og Halldórs Haraldssonar. Síđan hefur hún stundađ framhaldsnám erlendis, tekiđ ţátt í fjölmörgum námskeiđum og komiđ fram á mörgum tónleikum á Íslandi og víđs vegar í Evrópu.
Ađ tónleikum loknum verđa kaffiveitingar. Miđaverđ er kr. 2.000 og miđapantanir í síma 4875512 og 8645870.
© 2003 - 2008 Rangárţing ytra - Suđurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001