Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

8.2.2010 11:01

Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki


Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki

 

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.

 

Engar sérstakar áherslur verða settar á þessu ári, en tekið verður mið af eftirfarandi við afgreiðslu umsókna (sbr. 5. grein menningarsamnings fyrir árið 2010):

 

1.      Efla samstarf á sviði menningarmála.

2.      Efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.

3.      Atvinnutækifærum fjölgi á menningarsviðinu.

4.      Styðja við menningartengda ferðaþjónustu.

Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2010.

Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl 2010. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is. Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is.

Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum . Námskeið í umsóknargerð fer fram 25. febrúar í umsjón Fræðslunets Suðurlands.

Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.iseða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss.



Í tengslum við styrkauglýsingu Menningarráðs Suðurlands verður menningarfulltrúi Suðurlands til viðtals í sveitarfélögum Suðurlands. Viðverutímar eru eins og segir hér fyrir neðan. Enginn ákveðinn tími er auglýstur í Árborg. Allir sem hafa áhuga á að hitta menningarfulltrúa eru beðnir um að panta tíma símleiðis (896-7511) eða í tölvupósti (menning@sudurland.is).


VIÐVERA MENNINGARFULLTRÚA Í SVEITARFÉLÖGUM

Menningarráð Suðurlands auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum á Suðurlandi vegna úthlutunar á menningarstyrkjum 2010

Viðtalstímar menningarfulltrúa, Dorothee Lubecki, verða sem hér segir:

Flóahreppur

 

 

Skrifstofa sveitarfélagsins í Þingborg

Miðvikudagur

24.02.2010

kl. 13:30-15:00

Sveitarfélagið Ölfus

 

 

Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn

 Föstudagur

26.02.2010

kl. 13:00-15:00

Rangárþing eystra

 

 

Skrifstofa Rangárþings eystra, Hliðarvegur 16, Hvolsvöllur

Mánudagur

01.03.2010

kl. 10:00-12:00

Ásahreppur

 

 

Hreppsskrifstofa, Laugalandi

Mánudagur

01.03.2010

kl. 13:00:14:30

Vestmannaeyjabær

 

 

í ráðhúsinu, Vestmannaeyjum

Miðvikudagur

03.03.20109

kl. 10:00-12:00

Skaftárhreppur

 

 

Hreppsskrifstofa á Kirkjubæjarklaustri

Fimmtudag 04.03.2010

Kl.11:00-12:30

Mýrdalshreppur

 

 

Hreppsskrifstofa, Vík í Mýrdal

Fimmtudagur 04.03.2010

kl. 14:00-15:30

Rangárþing ytra

 

 

Skrifstofa Rangárþings ytra, Suðurlandsvegur 1, Hella

Föstudagur

5.03.2010

kl. 13:30-15:00

Grímsnes- og Grafningshreppur

 

 

Stjórnsýsluhúsinu, Borg

Mánudagur

08.03.2010

kl. 10:00-11:30

Bláskógabyggð

 

 

Hreppsskrifstofa Aratungu

Mánudagur 08.03.2010

kl. 13:00-15:00

 

Hrunamannahreppur

 

 

Skrifstofa Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, Flúðum

Þriðjudagur

09.03.2009

kl. 10:00-11:30

Skeiða- og Gnúpverjahreppur

 

 

Sveitarskrifstófa Árnesi

þriðjudagur

09.03.2009

kl. 13:00-14:30

Hveragerðisbær

 

 

Bæjarskrifstofu, Sunnumörk 2, Hveragerði

Miðvikudagur

10.03.2009

kl. 10:30-12:30

Einnig er hægt að óska eftir viðtölum á öðrum tímum. Skrifstofa menningarfulltrúa er að Austurvegi 56, 800 Selfoss. Sími 480-8207 og 896-7511.

 

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn