Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Þjónusta  
   

Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir er verkstjóri heimaþjónustu með
aðsetur á skrifstofu Rangárþings ytra. s: 861 5284

 



REGLUR UM FÉLAGSLEGA HEIMAÞJÓNUSTU Í RANGÁRÞINGI YTRA

1. gr.

Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla þjónustuþega til sjálfsbjargar og gera þeim kleift að búa í heimahúsum, við sem eðlilegastar aðstæður.

 

2. gr.

Hlutverk félagslegrar heimaþjónustu er að veita:

1. aðstoð við almennt heimilishald.

2. aðstoð við persónulega umhirðu.

3. félagslegan stuðning.

 

3. gr.

Skilyrði þess að geta fengið félagslega heimaþjónustu er að þjónustuþegi búi í heimahúsum og geti ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags veikinda barnsburðar eða fötlunar.

 

4. gr.

Félagsmálanefnd fer með stjórn félagslegrar heimaþjónustu í umboði sveitarstjórnar.

 

5. gr.

Félagsmálastjóri hefur með höndum yfirumsjón með rekstri heimaþjónustunnar í samráði við umsjónarmann hennar og skrifstofu Rangárþings ytra.  Umsóknum um  heimaþjónustu skal skila til félagsmálastjóra, skrifstofu Rangárþings ytra eða þess sem vísað er til hverju sinni.

 

6. gr.

Aðstoðarþörf skal metin í hverju einstöku tilviki af félagsmálastjóra eða umsjónarmanni með heimaþjónustunni á vegum Rangárþings ytra eftir mati hjúkrunarfræðings og læknis heilsugæslustöðvar og leitast skal við að veita þá þjónustu, sem viðkomandi og aðrir heimilismenn eru ekki færir um að annast sjálfir.  Læknisvottorð skal liggja fyrir ef ástæða þykir til að mati félagsmálastjóra eða umsjónarmanns heimaþjónustunnar.

 

7. gr.

Við framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu skal þess gætt að hafa sem nánast samstarf og samvinnu við þá sem veita viðkomandi aðstoðarþega þjónustu s.s. heilsugæslustöðvar og heimahjúkrun.

 

8. gr.

Félagsmálanefnd ákveður tímafjölda í hverju tilviki skv. umsókn og ákvæðum 9. gr.

 

9. gr.

Að hámarki skal veita einstaklingi félagslega heimaþjónustu sem nemur 4 klst. á viku og hjónum/sambúðarfólki 8 klst.  Félagsmálanefnd er heimilt að víkja frá þessu ákvæði ef brýn þörf er á því skv. áliti matsaðila.  Félagsmálanefnd lætur endurmeta aðstæður þjónustuþega a.m.k. árlega.

 

10. gr.

Aldraðir og öryrkjar geta fengið heimsendan mat í hádeginu.  Félagsmálastjóri tekur á móti beiðnum þar að lútandi og metur þörf í hverju tilviki fyrir sig.  Umsóknir skulu lagðar fyrir félagsmálanefnd til úrskurðar.  Heimsendingargjald fyrir þessa þjónustu er innheimt í lok hvers mánaðar.

 

11. gr.

Leitast skal við að ráða fólk til starfa í heimaþjónustunni sem hefur reynslu af heimilis og umönnunarstörfum.  Stefnt skal að því að sem flestir starfsmenn hafi lokið sérstökum námskeiðum fyrir starfsfólk í félagslegri heimaþjónustu.

 

12. gr.

Félagsmálanefnd skal setja reglur og leiðbeiningar fyrir starfsfólk félagslegrar heimaþjónustu, þar sem eru tilgreind m.a. nánar tiltekin verkefni starfsmanna, skyldur þeirra og réttindi.  Reglur þessar skulu kynntar fyrir starfsfólki svo og aðstoðarþegum.

 

13. gr.

Starfsmenn félagslegrar heimaþjónustu taka laun frá Rangárþingi ytra og gilda þar launakjör skv. samningi milli viðkomandi stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga. Starfsmönnum er óheimilt að taka við greiðslum eða gjöfum frá þjónustuþegum.
Starfsmenn eru bundnir þagnarskyldu um það sem þeir kunna að verða vísir um í starfi sínu um einkamál manna og heimilishald.

 

14. gr.

Vinnutími starfsmanna er að jafnaði dagvinnutími, mánudaga til föstudaga. Vinna utan þess tíma þarfnast samþykkis umsjónarmanns heimaþjónustunnar á skrifstofu Rangárþings ytra.

 

15. gr.

Fyrir félagslega heimaþjónustu skal greitt eftir gjaldskrá sem hreppsnefnd setur.

 

16. gr.

Reglur þessar, sem settar eru skv. 7. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, voru staðfestar á fundi hreppsráðs Rangárþings ytra þ. 7. júní 2005 og öðlast þegar gildi.

 


 GJALDSKRÁ FYRIR FÉLAGSLEGA HEIMAÞJÓNUSTU Í RANGÁRÞINGI YTRA.

 

1. gr.

Fyrir heimaþjónustu á vegum Rangárþings ytra skal greiða gjald sem nemur 1/2 meðaltímakaupi við þessi störf fyrir hverja unna klst. Gjaldskráin skal reiknuð út ársfjórðungslega 1. janúar, 1. apríl, 1. júlí og 1. október og skal standa á hálfum eða heilum tug.

 

2. gr.

Fyrir heimsendingu matar greiðist kostnaðarverð matarins á hverjum tíma auk 130 kr. flutningskostnaðar pr. ferð innan sveitarfélagsins. Gjaldið breytist skv. vísitölu neysluverðs.

 

3. gr.

Undanþegnir gjaldskyldu vegna heimaþjónustu skulu þeir vera, sem ekki hafa aðrar heimilistekjur en elli/örorkulífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisuppbót frá almannatryggingum svo og þeir aðrir sem hafa samtals tekjur innan framangreindra marka. Staðfesta skal tekjur með vottorði frá Tryggingastofnun og staðfestu framtali fyrir næstliðið ár. Lífeyrisþegar greiða þó ekki hærra gjald fyrir heimaþjónustu en sem nemur 75% af tekjum umfram lífeyri, eins og hann er skilgreindur hér að framan.

 

4. gr.

Sveitarstjórn og félagsmálanefnd er heimilt að fella niður greiðslu eða hluta hennar ef efnahagur eða aðrar aðstæður gefa tilefni til.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi er sett skv. lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og öðlast þegar gildi.

 

Samþykkt í hreppsráði Rangárþings ytra þ. 9. janúar 2003.

 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn