Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Þjónusta  
 

Vatnsveitur í Rangárþingi ytra


Upplýsingar og aðstoð vegna vatnsveitu Rangárþings ytra og Áshrepps í símum 487 5284 og 861 5639

Vatnsveitur sem reknar eru af Rangárþingi ytra eða í samrekstri með Ásahreppi eru þrjár:

Vatnsveita Hellu:
Vatnsveita Hellu er að stofni til mynduð af vatnsveitufélagi sem stofnað var og rekið af íbúum á Hellu og Kaupfélaginu Þór hf.  Sveitarfélagið keypti þessa veitu og yfirtók rekstur hennar þegar byggðin á Hellu tók að vaxa og færast út.  Vatnsbólið var upphaflega í landi Helluvaðs skammt fyrir ofan byggðina.  Fyrir um 30 árum var orðið nauðsynlegt að fá meira vatn í veituna og var þá virkjuð lind u.þ.b. einum og hálfum kílómetra fyrir norðan nyrstu hús á Hellu, enn í landi Helluvaðs.  Á sama tíma var byggður miðlunargeymir á hólnum fyrir ofan Heiðvang.  Enn hefur bæst við og nú er mest vatn sótt í nývirkjaðar lindir u.þ.b. 4. kílómetrum ofan byggðarinnar á Hellu og enn í landi Helluvaðs.  Afkastageta vatnsveitunnar nú er nálægt 17 lítrum á sek. sem er nálægt því sama magn og notað er við hámarksálag á virkum dögum.  Vatnsveitan er í umsjá Þjónustustöðvar Rangárþings ytra (áhaldahússins).  Nauðsynlegt er að virkja nýjar lindir sem dugað geta til langrar framtíðar og er horft til uppsprettulinda Geldingalækjar í því skyni.  Gert er ráð fyrir virkjun þar á aðalskipulagi.

Vatnsveita Þykkvabæjar:
Vatnsveita Þykkvabæjar sækir vatn í lindir í landi Selalækjar og er það leitt um stofnlögn þaðan alla leið í Þykkvabæ.  Lögnin liggur um Ytri-Rangá.  Bæirnir Bjóla, Bjóluhjáleiga og Hrafntóftir I og II fá vatn úr þessari veitu fyrir utan bæina í Þykkvabæ.  Lengst fer vatnslögn frá þessari veitu vestur í Háfshverfi.  Afkastageta veitunnar er full lítil miðað við notkunina um þessar mundir.  Vatni er safnað í miðlunargeymi í Þykkvabæ þegar álag á veituna er lítið á nóttunni og um helgar.  Þegar álag er mest, t.d. þegar kartöfluverksmiðjurnar eru í fullri framleiðslu, gengur á þessar birgðir.  Vatnsveitan er í umsjá Þjónustustöðvar Rangárþings ytra (áhaldahússins).  Nauðsynlegt er að tengja þessa veitu við öflugri vatnsöflun í náinni framtíð og endurnýja stofnlögnina, a.m.k. þar sem hún fer um Ytri-Rangá.  Varðandi tengingu við öflugri vatnsöflun, er t.d. horft til virkjunar uppsprettulinda Geldingalækjar og samnýtingu þerra með vatnsveitu Hellu.

Holtaveitan:
Holtaveitan er í sameign og samrekstri Rangárþings ytra og Ásahrepps.  Holtaveitan sækir vatn í uppsprettulindir í landi Bjálmholts, Götu og við Vatnsgrafarlæk.  Holtaveitan þjónar bæjum í Holtum og í Ásahreppi.  Að auki þjónar veitan miklum fjölda sumarbústaða, Ásmundarstaðabúinu, bæjum á Ægissíðulandi, Rauðalæk, Lyngási o.fl. Lagnir í dreifikerfi veitunnar eru víða orðnar of grannar til þess að ná að flytja það vatnsmagn sem nú er þörf fyrir og er þörf fyrir endurnýjun þeirra að hluta á næstu árum.  Vatnsöflun veitunnar er orðin of veikburða fyrir þá notkun sem nú er og er fyrirsjáanleg í nánustu framtíð.  Virkjun nýrra vatnslinda og styrking stofnlagna- og dreifikerfisins er brýnt verkefni næstu ára.  Holtaveitan hefur sérstaka stjórn sem mynduð er af fulltrúa frá Rangárþingi ytra og Ásahreppi.  Umsjónarmaður veitunnar er Elías Pálsson í Saurbæ í Holtum.


Veitunefnd:
Í samstarfi Rangárþings ytra og Ásahrepps er starfrækt vatnsveitunefnd sem hefur það meginmarkmið að vinna að virkjun nýrra vatnsbóla fyrir framtíðarnotkun á svæðinu.  Nefndin hefur þegar látið gera viðamikla úttekt á vatnsöflunarmöguleikum innan sveitarfélagsins í samvinnu við Línuhönnun hf. og Orkustofnun.  Við gerð aðalskipulagstillagna fyrir svæðið frá Eystri-Rangá að Þjórsá var tekið sérstakt tillit til þeirra tillagna sem fyrir liggja frá nefndinni, þegar ákvörðun var tekin um vatnsverndarsvæði.  Að mati nefndarinnar, er brýnast að hefja framkvæmdir til styrkingar á Holtaveitunni.

--------------------------------------------------------------------------------
Umsókn um kaldavatnstengingu
 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn