Stjórnsýsla
|
|||||
|
STARFSMANNASTEFNA 1. Markmið og gildissvið Markmið starfsmannastefnu Rangárþings ytra og stofnana sem reknar eru á vegum þess, er að skapa starfsmönnum sveitarfélagsins góð starfsskilyrði, þannig að þeir geti veitt íbúum og viðskiptavinum góða þjónustu og jafnframt notið ánægju í starfi. Markmiðið er að hafa ávallt á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem veitt geta góða þjónustu og brugðist við síbreytilegum þörfum samfélagins. Starfsmannastefnan á að tryggja starfsmönnum ákveðin starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi. Tillit skal tekið til persónulegra aðstæðna starfsmanna, þannig að hægt sé eftir föngum að samræma starfs- og fjölskylduábyrgð.
Með starfsmannastefnunni er sett það grundvallarmarkmið, að öllum sem starfa fyrir Rangárþing ytra beri að vinna fyrst og fremst í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess. Markmiðið leggur þær skyldur á herðar starfsmönnum sveitarfélagsins að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum, hvort heldur er sínum eigin, einstakra hópa eða fyrirtækja. Stefnt skal að því að skipurit, starfsmannastefna og starfslýsingar vegna einstakra starfa hjá Rangárþingi ytra svari ávallt kröfum tímans um skilvirkni og hagkvæmni og taki breytingum á grundvelli þess. Gögn þessi skulu reglulega yfirfarin og uppfærð m.t.t. breytinga og vera öllum aðgengileg.
Mikil áhersla er lögð á eftirfarandi þætti til að ná settum markmiðum starfsmannastefnunnar:
Stofnanir sveitarfélagsins skulu setja sér markmið og reglur í þeim tilgangi að ná með sem bestum árangri markmiðum starfsmannastefnunnar. Starfsmannastefna Rangárþings ytra tekur til allra þeirra sem ráðnir eru til skamms eða langs tíma í þjónustu sveitarfélagsins og ber þeim að vinna samkvæmt ákvæðum starfsmannastefnunnar. 2. Mótun og framkvæmd starfamannastefnunnar Hlutverkaskipting við mótun og framkvæmd starfsmannastefnu Rangárþings ytra verður að vera skýr. Sveitarstjórn Rangárþings ytra skal sjá um mótun og endurskoðun starfsmannastefnunnar. Afar mikilvægt er, að taka starfsmannastefnuna upp til endurskoðunar með reglulegu millibili með það að markmiði að hún verði ávallt í takt við tímann og geti orðið það leiðarljós við rekstur sveitarfélagsins sem ætlast er til. Sveitarstjórn skal hafa samráð við stjórnendur starfssviða og stofnana sveitarfélagsins þegar starfsmannastefna verður endurskoðuð.
Stefnt skal að aukinni valddreifingu þannig að stofnanir sveitarfélagsins hafi sem mest sjálfstæði og beri ábyrgð á rekstri með það að markmiði að mæta kröfum sveitarstjórnar um skilvirkni og hagkvæmni í rekstri þeirra. Forstöðumenn starfssviða og stofnana sveitarfélagsins skulu m.a. hafa eftirfarandi að leiðarljósi:
Ákvæði starfsmannastefnu Rangárþings ytra geta ekki skert kjarasamningsbundin réttindi starfsmanna og skulu þau framkvæmd á grundvelli stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 3. Ábyrgð og skyldur starfsmanna Starfsmönnum ber að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna, sýna heiðarleika, trúmennsku og vandvirkni. Starfsmönnum ber að uppfylla þær skyldur sem settar eru gagnvart viðkomandi í lögum og reglugerðum. Starfsmenn skulu vinna á grundvelli þeirra og fylgja þeim reglum sem í gildi eru í hverri stofnun svo og ákvæðum stjórnsýslulaga. Það er skylda starfsmanna að halda í heiðri fullkominn trúnað í samskiptum við íbúa sveitarfélagsins sem og aðra. Starfsmenn verða að kunna skil á og tileinka sér ákvæði laga og reglna um þagnarskyldu og meðferð trúnaðarupplýsinga Stjórnendur Stjórnendur skulu kappkosta að vera í góðum tengslum, og jafnframt að hafa gott samstarf, við starfsnefndir sveitarfélagsins. Lögð er rík áhersla á við stjórnendur að þeir sinni af samviskusemi eftirfarandi:Forstöðumenn starfssviða og stofnana sveitarfélagsins skulu m.a. hafa eftirfarandi að leiðarljósi:
Almennir starfsmenn Unnið skal markvisst að bættri verkkunnáttu hvers starfsmanns um leið og unnið er að því að auka hæfni vinnustaðarins til að takast á við síbreytileg viðfangsefni. Fagleg og persónuleg hæfni hvers starfsmanns skal nýtt og aukin með tilliti til sameiginlegra hagsmuna starfsmannsins og vinnustaðarins. Starfsstöðvar og stofnanir Rangárþings ytra skulu vera vinnustaðir þar sem starfsfólk á möguleika á starfsframa eins og tök eru á. Starfsfólk á þannig að geta eflst í starfi til þess að geta tekið við nýjum hlutverkum á vinnustað sínum, skapist aðstæður til þess. 4. Ráðningar starfsmanna Sveitarstjórn Rangárþings ytra ákveður fjölda heimilaðra stöðugilda hverju sinni. Ekki skal ráðið í ný föst störf án þess að viðkomandi yfirmaður stofnunar eða sviða, í samráði við viðkomandi nefnd/stjórn, skili kostnaðarmati og greinargerð um starfið og þörf fyrir ráðningu í það til sveitarstjórnar Rangárþings ytra og skal starfið ekki auglýst, eða ráðið í stöðuna, fyrr en stöðugildisheimild er veitt af sveitarstjórn. Sömu tengsl eru milli aðila hvað varðar veitingu áminninga og uppsagnir. Við ráðningu starfsmanna sveitarfélagsins skal eftirfarandi haft að leiðarljósi:
5. Starfsumhverfi og starfsskilyrði Með starfsmannastefnunni er leitast við að tryggja að starfs- og ábyrgðarsvið starfsmanna, þ.m.t. stjórnenda og sveitarstjórnarfulltrúa, liggi ljóst fyrir og að skýrar og einfaldar reglur gildi um samskipti, boðleiðir og upplýsingastreymi. Eftirfarandi þættir skulu hafðir að leiðarljósi á vinnustöðum Rangárþings ytra þar sem starfsmannastefna þessi tekur til:
6. Launa- og kjaramál Sveitarstjórnin (hvort heldur er hreppsnefnd eða hreppsráð) hefur yfirumsjón með launamálum þess í samræmi við samþykktir sveitarfélagsins. Það er stefna Rangárþings ytra að bjóða þannig kjör að þau laði að hæft starfsfólk og haldi því í starfi. Í því tilliti verður tekið tillit til launakjara sem tíðkast fyrir sambærileg störf hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum þeirra sem reka svipaða starfsemi. Til að ná þessum markmiðum er það stefna Rangárþings ytra að fela Launanefnd sveitarfélaga umboð til samningagerðar fyrir sem flest störf hjá sveitarfélaginu og stofnunum þess, enda vinni nefndin á grundvelli þeirra. Ábyrgð á gerð kjarasamninga vegna annarra starfa ber sveitarstjórn, en getur falið sveitarstjóra í samvinnu við forstöðumenn stofnana frágang samninga eða nánari útfærslu þeirra eftir atvikum. Föst yfirvinna Ef starf er þess eðlis að því fylgi þörf á reglulega unninni yfirvinnu sem yfirmaður hefur ekki tök á að hafa náið eftirlit með, þá skal hann ákvarða viðkomandi starfsmanni fasta yfirvinnugreiðslu á mánuði í samvinnu við og með staðfestingu sveitarstjóra. Skal heildar yfirvinnustundafjöldi ársins samsvara mati aðila á raunverulega unninni yfirvinnu starfsmannsins á sama tímabili. Við ákvörðun fastrar yfirvinnu skulu tímabundnar sveiflur í yfirvinnu innan ársins jafnaðar út á mánaðargrundvelli. Sannarleg breyting á ársgrundvelli til lengri tíma litið á raunverulega unninni yfirvinnu skal leiðrétt í fastri mánaðarlegri yfirvinnugreiðslu eftir sérstakt endurmat aðila í samráði við og með staðfestingu sveitarstjóra og stjórnanda viðkomandi stofnunar. Sé ekki um fasta yfirvinnu að ræða skulu stjórnendur stofnana annast skráningu eða staðfesta unna yfirvinnu undirmanna sinna. Akstursreikningar / dagpeningagreiðslur Stjórnendur stofnana skulu staðfesta akstursreikninga, dagpeningagreiðslur og aðra reikninga sem undirmenn leggja fram. Ef akstur starfsmanns á eigin bifreið í þágu sveitarfélags eða stofnana þess er reglulegur og yfirmaður hefur ekki tök á að hafa náið eftirlit með honum þá skal hann ákvarða viðkomandi starfsmanni fasta akstursgreiðslu á mánuði í samvinnu við og með staðfestingu sveitarstjóra. Skal heildar akstursmagn ársins samsvara mati aðila á raunverulegum akstri starfsmannsins á sama tímabili. Við ákvörðun fastra akstursgreiðslna skulu tímabundnar sveiflur í akstrinum innan ársins jafnaðar út á mánaðargrundvelli. Sannarleg breyting á ársgrundvelli til lengri tíma litið á raunverulegum akstri skal leiðréttur í fastri mánaðarlegri akstursgreiðslu eftir sérstakt endurmat aðila í samráði við og með staðfestingu sveitarstjóra. Ef þörf er á verulegum akstri eða sérútbúinni bifreið vegna vinnu starfsmanns er það stefna Rangárþings ytra að útvega til þess eigin bifreiðar.
Stéttarfélagsaðild starfsmanna Hjá Rangárþingi ytra og stofnunum þess skal leitast við að virða eins og kostur er hefðbundna stéttarfélagsaðild starfsmanna og þá verkaskiptingu sem stéttarfélög almennt viðhafa í þeim efnum. Meginreglan skal vera að launa- og starfskjör einstakra starfsmanna séu einungis byggð á einum heilsteyptum kjarasamningi en ekki sótt í fleiri en einn kjarasamning. Einnig að samskonar störf hjá sveitarfélaginu eða stofnunum þess tilheyri öll sama stéttarfélaginu enda teljist þau til sömu starfsstéttar. Orlofstaka Um töku orlofs fer eftir ákvæðum viðkomandi kjarasamninga hverju sinni. Beiðni starfsmanns um orlof umfram réttindi skv. kjarasamningi til skemmri tíma skal viðkomandi stjórnandi stofnunar eða starfssviðs sveitarfélagsins meðhöndla þannig að hvorki fjárhagslegt né stjórnunarlegt óhagræði skapist við ákvörðun slíkrar beiðni. Beiðni um lengri tíma orlof skal viðkomandi stjórnandi meðhöndla í samráði við sveitarstjóra. 7. Fræðslu- og menntunarmál Með öflugri símenntun vill sveitarfélagið ná því markmiði sínu að auka mannauð og menntunarstig samfélagsins alls. Ákvæðum um fræðslu- og menntunarmál í starfsmannastefnunni er sérstaklega ætlað að efla frumkvæði einstakra starfsmanna á því sviði og styrkja sjálfstæði einstakra sviða og stofnana þegar kemur að vali á tilteknum símenntunarkostum. Ákvarðanir um símenntun, aðrar en þær sem eru samningsbundnar við stéttarfélög, eru teknar sameiginlega af viðkomandi starfsmanni og sviðsstjóra / stjórnanda stofnunar. Símenntun Með símenntun er átt við alla fræðslu, þjálfun, endurmenntun og endurþjálfun starfsmanna sveitarfélagsins. Það er sameiginlegt hagsmunamál sveitarfélagsins og þeirra sem hjá því starfa, að svo vel sé staðið að þessum þáttum sem kostur er. Því skulu allir starfsmenn eiga kost á símenntun til þess að bæta við þekkingu sína og efla hæfni sína til starfa. Sveitarfélagið mun standa myndarlega að því að bjóða starfsmönnum sínum símenntun innan stofnunar og styðja að fólk geti nýtt sér þá fræðslukosti sem annars staðar eru í boði. Það er í þágu hvers starfsmanns að hann haldi vöku sinni gagnvart möguleikum til símenntunar, en það er jafnframt á ábyrgð yfirmanns hans að viðhalda og bæta fagþekkingu sem nauðsynleg er starfsins vegna. Einstakar stofnanir og svið skulu setja sér endurmenntunarstefnu sem samrýmist kröfum á hverjum stað og uppfyllir markmið starfsmannastefnunnar.
Hjá Rangárþingi ytra skal skapa starfsfólki möguleika á samfelldum starfsferli þannig að eftir föngum verði tekið tillit til breytinga á aldri og persónulegum högum, aukinnar reynslu og menntunar, skertrar starfsgetu og fleiri þátta sem geta valdið þörf einstaklingsins fyrir breytingu á starfi.
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra þ. 3. mars 2004.
|
|||||
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001