Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Skipulags- og byggingarmál  
   

Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti Rangárþings bs.
Ormsvelli 1, 860 Hvolsvöllur
s. 487-1200 fax 487-1414
Síma- og viðtalstímar frá kl. 9.00 - 12.00  og 13.00 - 14.00 virka daga
Starfsfólk:
Rúnar Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi
runar@hvolsvollur.is
Ingibjörg Gunnarsdóttir, ritari
byggingarfulltrui@rang.is
Árni Þorgilsson, aðstoðarmaður
arni@hvolsvollur.is 

Byggðasamlagið var stofnað og tók til starfa í mars 2007. Það þjónar allri Rangárvallasýslu og eru 3 sveitarfélög aðilar að því, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur.
Stjórn samlagsins skipa: Unnur Brá Konráðsdóttir, form., Örn Þórðarson, varaform. og Egill Sigurðsson, meðstjórnandi.
Hér má finna stofnsamning og samþykktir fyrir byggðasamlagið. (pdf skjal)



Skipulagsnefnd Rangárþings:

Nefndin er skipuð oddvitum sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps og varaoddvitum til vara.
Fulltrúi Rangárþings ytra í nefndinni:
Guðfinna Þorvaldsdóttir
Til vara:
Magnús H. Jóhannsson


Byggingarnefnd Rangárþings:
Nefndin er skipuð fulltrúum sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps.
Fulltrúar Rangárþings ytra í nefndinni:
Valmundur Gíslason
Þorkell Guðnason
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
Til vara:
Sigfús Davíðsson
Steinn Másson
Þorgils Torfi Jónsson



Meðferð skipulags- og byggingarmála er samkvæmt ákvæðum laga nr. 73/1997 

Umsóknir um byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi skulu lagðar inn hjá byggingar- og skipulagsfulltrúa sem fer yfir umsóknir og athugar hvort með fylgi nauðsynleg gögn.Byggingar- og skipulagsfulltrúi leggur umsóknir fyrir skipulags- og byggingarnefndir þegar tilskilin gögn hafa verið lögð fram.Skipulags- og byggingarnefndir afgreiða umsóknir sem uppfylla skilyrði skipulags- og byggingarlaga og reglugerða. Sveitarstjórn þarf að staðfesta afgreiðslur skipulags- og byggingarnefnda.

Byggingarleyfisgjöld eru lögð á samkvæmt gjaldskrá Rangárþings ytra. Sjá gjaldskrána hér!

Skipulagsnefnd fjallar um og gerir tillögur um afgreiðslur á skipulagstillögum.  

Byggingar- og skipulagsfulltrúi sér um að auglýsa skipulagstillögur samkvæmt heimild sveitarstjórnar.

Framkvæmdaaðilar gera tillögur að deiliskipulagi þar sem nauðsyn ber til. Framkvæmdaaðilar geta gert tillögur að breytingu á aðalskipulagi ef það er nauðsynlegt vegna framkvæmda eða afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi.Sveitarstjórn annast gerð aðalskipulags. Svæðisskipulög taka yfir fleiri en eitt sveitarfélag og eru gerð í samstarfi sveitarstjórna sem skulu mynda um það samvinnunefnd og einnig á vegum Skipulagsstofnunar og Samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendis Íslands.

Skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997

Reglugerðasafn 

 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn