| |
21.9.2011 07:33 Veðurklúbburinn Lundi Haustveðrið 2011
Fyrsti fundur í vetrarstarfi Veðurklúbbs Lundar 14. 09. 2011.
Fundarstjóri Jón Þórðarson setti fund kl. 16.15. Ritari Margrét las síðustu fundargerð.
Að því búnu bauð fundarstjóri velkominn gest fundarins Hilmar Guðjónsson formann Félags eldriborgara. Hilmar er fæddur í Skarðshlíð undir Eyjafjöllum, næstyngstur af 8 börnum Jóns Hjörleifssonar bónda þar og konu hans Guðrúnar Sveinsdóttur.
Hilmar segist vera yngsti „vermaður“ sem farið hafi undan Fjöllunum til Eyja því sex mánaða fór hann með bát frá Sandinum til Vestmannaeyja í fóstur til barnlausra hjóna Guðjóns og Mörtu frændfólks síns. Hilmar skráir sig son þessa fósturföður.
Hilmar átti góða æsku í Vestmannaeyjum, þar var lífið frjálst og gott einkum á sumrin. Þegar hann var tíu ára gamall fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur. Þar hélt hann áfram í grunnskóla og síðar í Verslunarskóla. Lengst af starfaði Hilmar hjá Fóðurblöndunni. Kona Hilmars er Ólöf Magnúsdóttir frá Hamraendum í Borgarfirði. Ólöf var að eigin sögn mjög ung er hún kynntist Hilmari, segist reyndar fyrst hafa orðið hrifin af bílnum hans sem var Volkswagen bjalla. En nánari kynni tókust og saman eiga þau tvo syni sem eiga fjölskyldur og yndisleg barnabörn. Hilmar hafði lengi langað að flytja hingað austur eða til Vestmannaeyja, en það hugnaðist frúnni ekki.
Svo var það vorið 2007 að þau hjón voru stödd í fermingarboði í Árhúsum á Hellu og hrifust mjög af fegurðinni við Rangána. Hilmar sagði þá við vin sinn að hér væri gaman að búa. Sá tók þau á orðinu hvatti þau til að skoða húsnæði sem var til sölu. Hlutirnir gerðust hratt, þau festu kaup á nýbyggðu parhúsi og að Hellu fluttu þau um haustið. Hilmar fékk þá starf við bókhald hjá Sólfugli. Þeim hjónum var fljótlega boðið að ganga í Félag eldri borgara og einnig í Hring, kór eldriborgara. Hilmar var svo kjörinn formaður Félags eldriborgara í Rangárþingi vorið 2009. Lesa meira... |
2.5.2011 11:57 Veðurklúbburinn Lundi Vorið er á næsta leyti
Fundur í Veðurklúbbnum Lundi 13. 04. 2011.
Jón Þórðarson setti fund kl 16.05 og þegar ritari Margrét Þórðardóttir hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð hann velkominn gest fundarins sem að þessu sinni var Gunnsteinn R. Ómarsson sveitarstjóri Rangárþings ytra. Gunnsteinn þakkaði boðið, kvað ánæjulegt að fá tækifæri til að mæta á fund klúbbsins. Það er oft spáð í hvaðan fólk telst vera. Gunnsteinn er vestfirðingur, fæddur á Patreksfirði, en foreldrar hans áttu þá heima í Mjólkárvirkjun og þar ólst hann upp til 7 ára aldurs. En hann á sterkar rætur í Súgandafirði. Þar bjuggu afi hans og amma og þangað sótti hann ævinlega til dvalar. Kona hans er Berglind Ó. Konráðsdóttir frá Búðarhóli í Landeyjum og eiga þau þrjár dætur.
Gunnsteinn lauk viðskiptafræði við Háskóla Íslands með áherslu á endurskoðun. Var hann síðan sveitarstjóri í Skaftárhreppi í fjögur ár. Árið 2004 fluttu þau hjón til Danmerkur til frekara náms. Gunnsteinn lagði stund á fjármálastjórnun en Berglind nam vefhönnun og fleira. Síðan lá leið hans í vinnu hjá Símens, sem er eitt af stærstu fyrirtækjum evrópu, m.a. sérhæft í vindmyllum. Sinnti hann þar fjármálastjórn við uppsetningu á vindmyllum. Þar vann hann í tvö ár. En Ísland og heimahagarnir toguðu. Hann sótti á síðasta ári um starf sveitarstjóra Rangárþings ytra og hér búa þau nú. Gunnsteinn sagði okkur sögur af mannlífinu á Barðaströnd fyrr á tíð af forfeðrum sínum og fleirum sem þar bjuggu, m.a í Litluhlíð. Að endingu flutti hann nokkrar veðurvísur eftir Elís Kjaran, sem margir hafa heyrt getið. Lesa meira... |
22.3.2011 15:53 Veðurklúbburinn Lundi Öskudagurinn á 18 bræður
Fundur í Veðurklúbbnum Lundi á öskudag, þann 9. mars 2011.
Jón Þórðarson setti fund kl.16.10 og þegar Margrét ritari hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð fundarstjóri velkominn gest fundarins en hann er Hermann Árnason frjótæknir.
Hermann þakkaði boðið á fundinn, sagðist bæði hafa áhuga á veðri og fólki. Hermann er fæddur í Vík í Mýrdal ólst þar upp en var jafnframt mikið í Steinum hjá Elínu frænku sinni og hennar manni. Fór hann fyrst til dvalar að Steinum fimm ára. Þar var alltaf nóg að sýsla. Sveitin hefur alltaf heillað í leikjum og störfum. Þau Steinahjón voru barnlaus en fjöldi barna naut sveitardvalar hjá þeim. Skólagangan var almenn, fyrst í Skógaskóla og svo búfræðipróf frá Hvanneyri. Hermann hóf búskap á Stóru-Heiði í Mýrdal árið 1979 sem var einhvert harðasta ár aldarinnar. Þar bjó hann sauðfjarbúi með fjölskyldu sinni og tamdi hross, en konan hefur alla tíð unnið í banka. Árið 1998 geðrist hann stöðvarstjóri sláturhúss S.S. á Selfossi, en átti áfram fé á Heiði í samvinnu við Tómas bónda á Stóru Heiði, því Hermann er að eigin sögn “sauðfjártrúar”. Fyrir þremur árum breytti hann um starfsvettvang, gerðist “frjótæknir” . Vinnur hann sem fyrr fyrir bændur, en segir sig hafi langað að upplifa haustið á annan hátt. Síðustu tvö haust hefur Hermann farið í smalamennskur á Landmannaafrétti. Hann sagði frá ferð sem hann fór á hestum frá Hornafirði til Hellisheiðar þar sem öll vötn á þeirri leið voru riðin. Lesa meira... |
4.5.2010 09:49 Veðurklúbburinn Lundi Sumarspá
Sumarmálafundur.
Fundur í Veðurklúbbnum Lundi 28. apríl. Jón Þórðarson setti fund og stjórnaði honum. Ritari klúbbsins Margrét Þórðardóttir las fundargerð síðasta fundar.
Jón fundarstjóri bauð velkomna Valgerði Kristínu Brynjólfsdóttur gest fundarins. Valgerður er fædd á Bíldudal og ólst þar upp, er af kyni sjómanna og landverkafólks. Móðurættina rekur hún á Barðaströnd en föðurætt til Suðurlands. Langamma Valgerðar var Kristrún Brandsdóttir fædd í Holtsmúla á Landi. Lesa meira... |
1.12.2009 08:11 Veðurklúbburinn Lundi Jólafastan mild
Fundur haldinn í Veðurklúbbnum Lundi 25. nóvember 2009, Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10. og stjórnaði honum. Ritari fundar Margrét Þórðardóttir las fundargerð síðasta fundar. Þá bauð Jón fundarstjóri velkominn gest fundarins Eygló Yngvadóttur . Eygló rekur ættir sínar vítt um Rangárþing, en hún ólst upp í Þykkvabænum, lifði þar og starfaði í um 60 ár. Hún er dóttir hjónanna Sigríðar Magnúsdóttur og Yngva Markússonar sem lengi bjuggu í Oddsparti í Þykkvabæ, þar sem kartöfluræktin var víðast undirstöðu búgreinin. Eygló gekk í barnaskóla í Þykkvabænum, síðan tók við skóli lífsins. Maður Eyglóar er Hörður Júlíusson ættaður úr Reykjavík. Bjuggu þau í Önnuparti í 46 ár, stunduðu þar kartöflurækt og fleira. Þau sáu í 26 ár um veðurathuganir fyrir Veðurstofu Íslands. Lesa þurfti af mælum á þriggja tíma fresti, kanna vindstöðu og skýjafar. Skýrslur þurfti að senda mánaðarlega. Til leiðbeiningar fengu þau meðal ,,Skýjabókina”, handbók veðurathugunarmanna, sem Þór Jakobsson sagði okkur frá hér á fundi í vor. Nú eru þau Eygló og Hörður flutt á Selfoss og sjálfvirk veðurstöð komin í Þykkvabæinn. Eygló segir eftirtektarvert hvað veðurfar hefur hlýnað mikið frá því veðurathuganir hófust í Þykkvabæ. Sumarhiti fór oft ekki yfir 14 gráður, en síðasta sumar fór hitinn í 26 gráður.
Eygló las okkur ljóðið Landsýn eftir Hannes Hafstein. Í því ljóði koma mikið við sögu veðurlýsingar og veðrabrigði. Lesa meira... |
24.11.2009 08:29 Veðurklúbburinn Lundi
Hekla alhvít, það gæti kólnað
Fundur haldinn í Veðurklúbbnum Lundi 11. nóvember 2009. Jón Þórðarson setti fund og stjórnaði honum að vanda.Ritari fundar, Margrét Þórðardóttir las fundargerð síðasta fundar. Þá bauð Jón fundarstjóri velkominn gest fundarins Vilborgu Gísladóttur í Fosshólum. Vilborg er dóttir hjónanna Guðmundu Valmundsdóttur og Gísla Kristjánssonar. Vilborg er fædd á Móeiðarhvoli en ólst upp á Vindási á Landi, en þar bjuggu foreldrar hennar allan sinn búskap. Systkinin á Vindási eru sex, þar var oft glatt á hjalla, mikið sungið og kveðist á. Skólagangan hófst á Hellum á Landi, svo á Laugalandi og síðan í Skógaskóla. Vilborg giftist Þórði Matthíasi Sigurjónssyni í Fosshólum og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Þau hjón ráku blandaðan búskap í 40 ár, þar til Matti lést árið 2006. Vilborg vinnur við Leikskólann á Laugalandi. Hún lærði leikskólafræði í Kennaraháskólanum og útskrifaðist vorið 2007. Vilborg er sveitakona í húð og hár. Áhugamálin eru fjölskyldan, ferðalög og söngur, svo eitthvað sé nefnt. Hún syngur í Samkór Rangæinga og Kirkjukór Marteinstungu- og Hagakirkna. Vilborg las ljóðið ,,Átthagaóður” eftir Guðmund Daníelsson og ,,Veðurvísur” Jónasar Hallgrímssonar. Lesa meira... |
4.11.2009 11:49 Veðurklúbburinn Lundi Mildur vetur, en líklega hvít jól
Fundur haldinn í Veðurklúbbnum á Lundi 28. október. Jón Þórðarson stjórnaði fundi sem settur var kl. 16.10.
Ritari fundar Margrét Þórðard. las síðustu fundargerð, að svo búnu bauð Jón gest fundarins Sigríði Helgu Heiðmundsdóttur velkomna. Sigríður er dóttir hjónanna Klöru Haraldsdóttur og Heiðmundar Klemenssonar sem bjuggu á Kaldbak á Rangárvöllum. Sigríður hefur mestmegnis alið sinn aldur á heimaslóð utan einn vetur sem hún var á Patreksfirði og vann þar í fiski. Sigríður hefur verið bóndi á Kaldbak síðan 1984. Maður hennar er Viðar Steinarsson og eiga þau tvær dætur Klöru sem var gestur okkar á síðasta fundi og Ösp sem er sagnfræðingur. Auk hefðbundins búskapar hafa hjónin á Kaldbak stundað skógrækt frá árinu 1990 undir merkjum Suðurlandsskóga. Sigríður er formaður Skógræktarfélags Rangæinga, en það var stofnað 1943. Stærsta ræktunarsvæði þess er í Bolholti á Rangárvöllum en þar hófst plöntun 1989. Þar hafa nú verið seld jólatré í sex ár, en sífelt vinsælla er að fjölskyldur komi í skóginn að velja og höggva sér jólatré. Á vegum Skógræktarfélagsins voru á síðasta sumri gróðursettar 200.000 plöntur. Félagið vinnur einnig að landvernd og uppgræðslu. Lesa meira... |
29.10.2009 15:01 Veðurklúbburinn Lundi Góð tíð framundan- áfram gert ráð fyrir eldgosi
Fundur í Veðurklúbbnum á Lundi 14. október 2009. Jón Þórðarson stjórnaði fundi sem settur var klukkan 16:10.
Er ritari, Margrét Þórðardóttir hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð Jón gest fundarins Klöru Viðarsdóttur velkomna. Klara er Rangæingur í húð og hár. Hún er fædd 1979, dóttir hjónanna Sigríðar Heiðmundsdóttur og Viðars Steinarssonar á Kaldbak. Amma hennar í móðurætt er nafna hennar, Klara Haraldsdóttir skógræktarkona og listamaður með meiru.
Klara hefur komið víða við í námi, að loknu stútentsprófi í FSU. Hún hefur BA próf í Spænsku og BS í viðskiptafræði.. Klara hefur unnið hin ýmsu störf og mörg tengjast þau útivist enda segist hún vera mikil útivistarmanneskja. Hún hefur meðal annars séð um rekstur Golfvallarins á Strönd, unnið við gróðursetningu skógarplantna, m.a. á Geitasandi og verið flokksstjóri við unglingavinnuna á Hellu. Nú starfar hún sem launafulltrúi á skrifstofu Rangárþings ytra. Sambýlismaður Klöru er Garðar Þorfinnsson frá Spóastöðum í Biskupstungum og búa þau í Gunnarsholti. Lesa meira... |
14.10.2009 15:47 Veðurklúbburinn Lundi Svipað veður en heldur kólnandi framundan
Fundur í Veðurklúbbnum á Lundi 23. september 2009. Jón Þórðarson setti fund kl. 16:15.
Er Margrét Þórðardóttir, ritari, hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð Jón sérstaka gesti fundarins velkomna, en þeir eru Haraldur Eiríksson og tengdafaðir hans Óttar Einarsson.
Haraldur þakkaði boðið á fund hjá þessum merkisklúbbi. Haraldur er sonur hjónanna Sigrúnar Haraldsdóttur og Eiríks Sigurjónssonar á Lýtingsstöðum í Holtum, fæddur árið 1962. Ólst hann upp við venjuleg sveitastörf og gekk í Laugalandsskóla. Fór 15 ára á vertíð í Ólafsvík og vann síðan við virkjanir og fleira. Hann fór aftur í nám 21 árs, fyrst í Fjölbrautaskóla Suðurlands, síðan í Tækniskólann og síðast er hann viðskiptafræðingur frá Bifröst. Lesa meira... |
16.9.2009 15:09 Veðurklúbburinn Lundi Milt en vætusamt haustveður og eldgos í janúar
Fundur í Veðurklúbbnum Lundi þann 9. september 2009. Jón Þórðarson setti fund kl.16.07. Margrét Ýrr, hjúkrunarforstjóri Lundar ávarpaði fundinn og bauð hún fólk velkomið á þennan fyrsta fund haustsins með óskum um að vetrarstarfið verði farsælt. Sú nýbreytni er að nú er komin krukka sem mun liggja fram fyrir kaffisjóð en framlög eru frjáls á fundunum. Þá kynnti hún Minningarsjóð Lundar sem nýlega var stofnaður. Lesa meira... |
6.9.2009 14:20 Veðurklúbburinn Lundi Góð viðri- en tvö eldgos framundan
Góðviðri - en tvö eldgos framundan!
Fundur í Veðurklúbbi Lundar 12. ágúst. Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10.
Pálmar Guðjónsson var gestur fundarins.
Pálmar er fæddur á Brekkum í Holtum 1934 yngstur fimm systkina, sonur Guðjóns Þorsteinssonar smiðs er þar bjó og seinni konu hans Margrétar Halldórsdóttur, sem ættuð var frá Syðri-Rauðalæk. Lesa meira... |
13.8.2009 08:58 Veðurklúbburinn Lundi Sama blíðan áfram!!
Fundur í Veðurklúbbi Lundar miðvikudag 08.07, Jón Þórðarson setti fund kl.16.25
Gestur fundarins var Jóna Steinunn Sveinsdóttir bóndi og húsfreyja Meiri-Tungu í Holtum. Jóna er fædd í Götu í Holtum dóttir hjónanna Árbjargar Ólafsdóttur og Sveins Sveinssonar er bjuggu í Húsagarði í Landsveit. Tveggja ára gömul kemur hún svo að Meiri-Tungu til Þórhöllu móðursystur sinnar og hefur átt þar heimili síðan. Jóna er gagnfræðingur úr Skógaskóla, einnig stundaði hún nám í Húsmæðraskólanum á Laugavatni. Með manni sínum, Gísla Magnússyni, bjó Jóna í rúm 20 ár og eignuðust þau 6 börn. Eftir lát Gísla bjó hún með tveimur börnum sínum. Þegar talið berst að eftirminnilegum veðrum er Jónu efst í huga febrúarveðrið 1991, þá fuku þök af súrheysturnum og fleiri byggingum á Suðurlandi. Verður það að teljast mikil mildi að ekki varð manntjón í þessum hamförum. Lesa meira... |
23.6.2009 09:02 Veðurklúbburinn Lundi.
Útlit fyrir blítt sumar
Fundur í Veðurklúbbi Lundar miðvikudag 10. júní. Jón Þórðarson setti fund kl.16.00.
Gestur fundarinns var Þór Jakobsson veðurfræðingur sem er verndari og heiðursfélagi klúbbsins.
Margrét Þórðardóttir ritari las fundargerð síðasta fundar.
Þór ræddi um skýin og hina mismunandi ásýnd þeirra og hvað lesa má úr þeim. Kynnti Þór Skýjabókina sem er alþjóðleg handbók veðurathugunarmanna.
Þar má t.d. finna hvernig 10 mismunandi tegundir skýja flokkast og lýsingar, á hvernig þau myndast. Einnig fór hann í nöfn skýja eins og hnoðrar, bólstrar, klakkar og skúraský svo fátt eitt sé nefnt, allt eftir eðli þeirra og útliti. Einnig kynnti Þór bókina Veðurdaga eftir hjónin Unni Ólafsdóttur og Þórarin Eldjárn. Las hann fróðleik úr henni sem tengdist 10 juni, hvað gerst hefur markvert þann dag.
Þór sagði frá að sett hefur verið upp sjálfvirk veðurathugunarstöð í landi hans í Mörk á Landi.
Eftir kaffihlé var tekið til við veðurspána. Lesa meira... |
4.6.2009 11:19 Veðurklúbburinn Lundi.
Horfur á ágætu sumri
Fundur í Veðurklúbbi Lundar 27. maí. Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10.
Margrét Bjarnadóttir fráfarandi ritari las fundargerð síðasta fundar, voru henni þökkuð ritarastörfin og nýr ritari, Margrét Þórðardóttir boðin velkomin. Gestir fundarins eru hjónin Reynir Þorsteinsson og Jóna María Eiríksdóttir í Gunnarsholti. Lesa meira... |
6.5.2009 08:50 Veðurklúbburinn Lundi.
Fyrsta sumarspáin
Þann 23.apríl héldum við fund hjá Veðurklúbbi Lundar og var hann settur kl. 16.10.
Gestur fundarinsvar Gústav Stolzenwald.
Tilviljun ein réð því að forfaðir hans, klæðskeri frá Þýskalandi,komst um borð í skip árið 1923 sem sigldi til Íslands. Þar með var framtíð hans ráðin. Fór hann í land í Vestmannaeyjum, þar sem hann bjó í nokkur ár og kynntist konu sinni. Gústav, eða Gústi eins og við köllum hann, er fæddur í Dísukoti í Þykkvabæ, en móðir hans er frá Minna-Hofi og faðir hans var hálfur Þjóðverji, eins og áður er getið. Gústi hefur starfað við ýmislegt, en þau hjónin byggðu upp ferðaþjónustu á Stokkalæk. Gústi er menntaður rafeindavirki og hefur unnið hjá Landsvirkjun, Símanum og nú síðast hjá Vodafone.
Gústi fór með ljóðið "Undir Öræfahimni" úr samnefndri bók eftir hann sjálfan. Það er fallegt og myndrænt ljóð. Lesa meira... |
20.3.2009 10:26 Veðurklúbburinn Lundi
Heil og sæl.
Við hjá Veðurklúbbi Lundar komum saman þann 11.mars kl. 16. Setti Jón Þórðar fund að venju og las ritari fundargerð, og gat Jón einnig að, nú væri fullt tungl og veðrið væri eins og best væri á kosið.
Veðurklúbburinn okkar fagnar 2 ára afmæli um þessar mundir nánar tiltekið 14 mars nk.
Gestur okkar í dag var Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur. Ingibjörg er dóttir Ólafs heitins Björnssonar læknis er starfaði hér á Hellu um árabil, en Minningarsjóður Ólafs Björnssonar var stofnaður í minningu hans.
Ingibjörg sagði okkur að hún ætti bara góðar bernskuminningar héðan en hún flutti héðan 10 ára gömul.
Haft var samband við hana að vinna að útgáfu rits um fyrstu uppbyggingarár Hellu, og vinnur hún að safna gögnum um það verkefni sem að öllum líkindum er viðamikið. Eru allar frásagnir frá gömlu árunum þegar Hella var að byggjast upp vel þegnar. Símanúmerið hennar er 895-6882. Lesa meira... |
12.3.2009 09:04 Veðurklúbburinn Lundi
Jón Þórðarsson setti fundinn . Fundargerð síðasta fundar var lesin upp.
Gestir fundarins voru Ágúst Sæmundsson og kona hans Guðrún Jóna Haraldsóttir.
Ágúst Sæmundsson sem er oftast kallaður Gústi fæddist að Þorleifstöðum á Rangárvöllum 19.sept. 1923. Þorleifstaðir fóru í eiði 1947. Skólaganga Gústa var ekki löng en hana stundaði hann að Strönd hluta úr þremur vetrum. Árið 1944 fluttist Gústi að Hellu með foreldrum sínum en á þeim tíma var Hella að byggjast upp og ekki voru nema nokkur hús þá í þorpinu og voru það t.d. Nes, Brúarland, Helluland, Eyrarland og Kaupfélagið Þór.
Gústi sagði í stuttu máli frá uppvaxtarárum sínum og veðurfari. Sérstaklega nefndi hann fannfergi mikið er var í feb 1931.
Guðrún Jóna eða Aggý eins og við þekkjum hana, er fædd 21. Okt . 1931, hún er elsta barn foreldra sinna. Hún er Reykvíkingur, átti heima í Skuggahverfinu sem barn. Skólaganga Guðrúnar var þó nokkur . Hún gekk í Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla. Guðrún lauk fullnaðarprófi sem þá var. Guðrún sagði í stuttu máli frá uppvaxtarárum sínum austur í Fljótshlíð, fór hún 17 ára að vinna á Tumastöðum og það var þá sem hún hitti Gústa verðandi mann sinn. Lesa meira... |
22.1.2009 09:33 Veðurklúbburinn Lundi
“Úlfakreppa”
Þann 21.jan hélt Veðurklúbbur Lundar sinn annan fund á árinu. Fundarritari las fundargerð síðasta fundar og Jón Þórðar bauð fundargesti velkomna. Gestur okkar í dag var Indriði Indriðason fjármálastjóri hjá Rangárþingi Ytra. Indriði er borinn og barnfæddur Kópavogsbúi. Meðan hann var að feta sig áfram í lífinu vann hann hin ýmsu störf eins og gerist um unga menn eins og að vinna í fiski, fór á sjóinn, síðan fór hann í Iðnskólann og lærði bakaraiðn og vann við það um árabil. Fór þá í Háskólann í viðskiptafræði, lauk síðan master í fjármálum og hagfræði. Lesa meira... |
14.1.2009 16:21 Veðurklúbburinn Hellu
Hvítur þorri?
Þann 7.jan. 2009 var haldinn veðurfundur sá fyrsti á nýbyrjuðu ári.
Jón Þórðar setti fund og bauð alla velkomna einnig gestina okkar sem voru hjónin að Þverlæk, í Holtum, þau Margrét og Guðni.
Guðnier fæddur aðÞverlæk 1933 Sótti sem ungur maður Íþróttaskóla í Haukadal, síðan námskeið á vegum Búnaðarsambandsins. Margrét er fædd að Lýtingsstöðum1938. Fer síðan 2 ára að Kothvammi í V-Húnavatnssýslu með móður sinni en hún missti mann sinn. Móðir hennar fór síðan aftur suður sem ráðskona.
Guðni og Margrét hafa búið á Þverlæk með kúabúskap síðan 1957 eða í 44 ár fyrst með foreldrum hans síðan ein, og komu upp fimm börnum.Þegar sonur þeirra tók við kúabúskapnum sneru þau sér alfarið að skógrækt og hafa verið skógarbændur síðan 1990en Margrét hefurhaftáhuga á alls konar ræktun síðan í æsku. Hún sótti nám til þriggja ára við Landbúnaðarháskólann Grænni skógar, og hafa þau hjónin gróðursett um 5-10 þúsund plöntur á hverju ári. Lesa meira... |
19.12.2008 10:39 Veðurklúbburinn Hellu
Ef jól verða rauð, verða hvítir páskar
Þann 10.des héldum hjá Veðurklúbbi Lundar okkar annan fund á aðventunnin og byrjaði hann kl 16.10.
Gestur okkar var Hreinn Óskarsson Skógfræðingur búsettur í Odda á Rangárvöllum. Hreinn er fæddur og uppalinn á Selfossi en á ættir sínar að rekja annars vegar norður í Bárðardal og hins vegar í Fljótshlíðina í Fljótsdal. Hann sótti menntun sína til Danmerkur. Lesa meira... |
5.12.2008 11:44 Veðurklúbburinn Lundi
Einn hnoðri í norðri verður að veðri þó síðar verði
Fundur hjá Veðurklúbbi Lundar haldinn þ. 26.nóv. kl 16.00. Jón Þórðar bauð alla velkomna.
Gestur okkar að þessu sinni var Anne Bau búsett á Hellu. Lesa meira... |
19.11.2008 08:51 Veðurklúbburinn Lundi
Hlýtt í veðri en vætusamt nóv-jan 2009
Veðurfundur var haldinn þann 5.nóv. í matsal Lundar og setti Jón Þórðar fund kl. 17.05.
Fundargerð lesin upp. Gestur okkar í dag er okkar kunni veðurfræðingur Þór Jakobsson. Lesa meira... |
9.10.2008 10:34 Veðurklúbburinn Lunda
Stórviðri og snjóavetur þegar Davíð hættir í Seðlabankanum.
Þann 8.okt.var haldinn fundur hjá Veðurklúbbi Lundar. Jón Þórðar setti fund og bauð gesti velkomna þar með talinn gestinn okkar sem að þessu sinni var Jón Ragnar Björnsson. Ritari las fundargerð. Lesa meira... |
30.9.2008 09:47 Veðurklúbburinn á Lundi
Veðurklúbbur Lundur hélt fund þann 24. sept. sem sagt nú eru 3 mán. til jóla.
Jón Þórðar setti fundinn bauð alla velkomna sem og gestinn okkar sem að þessu sinni var Björgvin Sigurðsson viðsk. ráðherra.
Ritar las fundargerð.
Lesa meira... |
15.9.2008 17:43 Veðurklúbburinn á Lundi
Fundur hjá Veðurklúbbi Lundar settur þ. 13.ágúst kl 17.00. Jón Þórðar bauð fólk velkomið og ritari las fundargerð. Jón tjáði okkur að gesti okkar mundi seinka örlítið. En við dembdum okkur beint í veðurspána. Lesa meira... |
30.7.2008 12:21 Veðurklúbburinn Verslunarmannahelgin
Verslunarmannahelgarveðrið - Milt en rakt
Veðurklúbbur Lundar hélt fund þann 23.júlí. Setti Jón Þórðarson fundinn og bauð alla velkomna svo og gestinn okkar, Ragnar Böðvarsson sagnahöfund.
Jón byrjaði á því að minnast tveggja heiðursmanna sem nýlega eru látnir þeir Sigurður Ásgeirsson og Óskar Einarsson en þeir mættu undantekningarlítið á okkar veðurfundi og er eftirsjón af þeim.
Ritari las fundargerð. Lesa meira... |
Eldri fréttir
|
 |
|