Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Menning og Mannlíf  
 
1.12.2009 08:11
Veðurklúbburinn Lundi
Jólafastan mild

Fundur haldinn í Veðurklúbbnum Lundi 25. nóvember 2009,
Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10. og stjórnaði honum.
Ritari fundar Margrét Þórðardóttir las fundargerð síðasta fundar. Þá bauð Jón fundarstjóri velkominn gest fundarins Eygló Yngvadóttur .
Eygló rekur ættir sínar vítt um Rangárþing, en hún ólst upp í Þykkvabænum, lifði þar og starfaði í um 60 ár. Hún er dóttir hjónanna Sigríðar Magnúsdóttur og Yngva Markússonar sem lengi bjuggu í Oddsparti í Þykkvabæ, þar sem kartöfluræktin var víðast undirstöðu búgreinin. Eygló gekk í barnaskóla í Þykkvabænum, síðan tók við skóli lífsins. Maður Eyglóar er Hörður Júlíusson ættaður úr Reykjavík. Bjuggu þau í Önnuparti í 46 ár, stunduðu þar kartöflurækt og fleira. Þau sáu í 26 ár um veðurathuganir fyrir Veðurstofu Íslands. Lesa þurfti af mælum á þriggja tíma fresti, kanna vindstöðu og skýjafar. Skýrslur þurfti að senda mánaðarlega. Til leiðbeiningar fengu þau meðal ,,Skýjabókina”, handbók veðurathugunarmanna, sem Þór Jakobsson sagði okkur frá hér á fundi í vor. Nú eru þau Eygló og Hörður flutt á Selfoss og sjálfvirk veðurstöð komin í Þykkvabæinn. Eygló segir eftirtektarvert hvað veðurfar hefur hlýnað mikið frá því veðurathuganir hófust í Þykkvabæ. Sumarhiti fór oft ekki yfir 14 gráður, en síðasta sumar fór hitinn í 26 gráður.

Eygló las okkur ljóðið Landsýn eftir Hannes Hafstein. Í því ljóði koma mikið við sögu veðurlýsingar og veðrabrigði.


Lesa meira...

24.11.2009 08:29
Veðurklúbburinn Lundi

Hekla alhvít, það gæti kólnað

Fundur haldinn í Veðurklúbbnum Lundi 11. nóvember 2009.
Jón Þórðarson setti fund og stjórnaði honum að vanda.Ritari fundar, Margrét Þórðardóttir las fundargerð síðasta fundar. Þá bauð Jón fundarstjóri velkominn gest fundarins Vilborgu Gísladóttur í Fosshólum. Vilborg er dóttir hjónanna Guðmundu Valmundsdóttur og Gísla Kristjánssonar. Vilborg er fædd á Móeiðarhvoli en ólst upp á Vindási á Landi, en þar bjuggu foreldrar hennar allan sinn búskap. Systkinin á Vindási eru sex, þar var oft glatt á hjalla, mikið sungið og kveðist á. Skólagangan hófst á Hellum á Landi, svo á Laugalandi og síðan í Skógaskóla. Vilborg giftist Þórði Matthíasi Sigurjónssyni í Fosshólum og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Þau hjón ráku blandaðan búskap í 40 ár, þar til Matti lést árið 2006. Vilborg vinnur við Leikskólann á Laugalandi. Hún lærði leikskólafræði í Kennaraháskólanum og útskrifaðist vorið 2007. Vilborg er sveitakona í húð og hár. Áhugamálin eru fjölskyldan, ferðalög og söngur, svo eitthvað sé nefnt. Hún syngur í Samkór Rangæinga og Kirkjukór Marteinstungu- og Hagakirkna. Vilborg las ljóðið ,,Átthagaóður” eftir Guðmund Daníelsson og ,,Veðurvísur” Jónasar Hallgrímssonar.


Lesa meira...

4.11.2009 11:49
Veðurklúbburinn Lundi
Mildur vetur, en líklega hvít jól

Fundur haldinn í Veðurklúbbnum á Lundi 28. október. Jón Þórðarson stjórnaði fundi sem settur var kl. 16.10.

Ritari fundar Margrét Þórðard. las síðustu fundargerð, að svo búnu bauð Jón gest fundarins Sigríði Helgu Heiðmundsdóttur velkomna. Sigríður er dóttir hjónanna Klöru Haraldsdóttur og Heiðmundar Klemenssonar sem bjuggu á Kaldbak á Rangárvöllum. Sigríður hefur mestmegnis alið sinn aldur á heimaslóð utan einn vetur sem hún var á Patreksfirði og vann þar í fiski. Sigríður hefur verið bóndi á Kaldbak síðan 1984. Maður hennar er Viðar Steinarsson og eiga þau tvær dætur Klöru sem var gestur okkar á síðasta fundi og Ösp sem er sagnfræðingur. Auk hefðbundins búskapar hafa hjónin á Kaldbak stundað skógrækt frá árinu 1990 undir merkjum Suðurlandsskóga. Sigríður er formaður Skógræktarfélags Rangæinga, en það var stofnað 1943. Stærsta ræktunarsvæði þess er í Bolholti á Rangárvöllum en þar hófst plöntun 1989. Þar hafa nú verið seld jólatré í sex ár, en sífelt vinsælla er að fjölskyldur komi í skóginn að velja og höggva sér jólatré. Á vegum Skógræktarfélagsins voru á síðasta sumri gróðursettar 200.000 plöntur. Félagið vinnur einnig að landvernd og uppgræðslu.


Lesa meira...

29.10.2009 15:01
Veðurklúbburinn Lundi
Góð tíð framundan- áfram gert ráð fyrir eldgosi

Fundur í Veðurklúbbnum á Lundi 14. október 2009. Jón Þórðarson stjórnaði fundi sem settur var klukkan 16:10.

Er ritari, Margrét Þórðardóttir hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð Jón gest fundarins Klöru Viðarsdóttur velkomna. Klara er Rangæingur í húð og hár. Hún er fædd 1979, dóttir hjónanna Sigríðar Heiðmundsdóttur og Viðars Steinarssonar á Kaldbak. Amma hennar í móðurætt er nafna hennar, Klara Haraldsdóttir skógræktarkona og listamaður með meiru.

Klara hefur komið víða við í námi, að loknu stútentsprófi í FSU. Hún hefur BA próf í Spænsku og BS í viðskiptafræði.. Klara hefur unnið hin ýmsu störf og mörg tengjast þau útivist enda segist hún vera mikil útivistarmanneskja. Hún hefur meðal annars séð um rekstur Golfvallarins á Strönd, unnið við gróðursetningu skógarplantna, m.a. á Geitasandi og verið flokksstjóri við unglingavinnuna á Hellu. Nú starfar hún sem launafulltrúi á skrifstofu Rangárþings ytra. Sambýlismaður Klöru er Garðar Þorfinnsson frá Spóastöðum í Biskupstungum og búa þau í Gunnarsholti.


Lesa meira...

14.10.2009 15:47
Veðurklúbburinn Lundi
Svipað veður en heldur kólnandi framundan

Fundur í Veðurklúbbnum á Lundi 23. september 2009. Jón Þórðarson setti fund kl. 16:15.

Er Margrét Þórðardóttir, ritari, hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð Jón sérstaka gesti fundarins velkomna, en þeir eru Haraldur Eiríksson og tengdafaðir hans Óttar Einarsson.

Haraldur þakkaði boðið á fund hjá þessum merkisklúbbi. Haraldur er sonur hjónanna Sigrúnar Haraldsdóttur og Eiríks Sigurjónssonar á Lýtingsstöðum í Holtum, fæddur árið 1962. Ólst hann upp við venjuleg sveitastörf og gekk í Laugalandsskóla. Fór 15 ára á vertíð í Ólafsvík og vann síðan við virkjanir og fleira. Hann fór aftur í nám 21 árs, fyrst í Fjölbrautaskóla Suðurlands, síðan í Tækniskólann og síðast er hann viðskiptafræðingur frá Bifröst.


Lesa meira...

16.9.2009 15:09
Veðurklúbburinn Lundi
Milt en vætusamt haustveður og eldgos í janúar

Fundur í Veðurklúbbnum Lundi þann 9. september 2009. Jón Þórðarson setti fund kl.16.07. Margrét Ýrr, hjúkrunarforstjóri Lundar ávarpaði fundinn og bauð hún fólk velkomið á þennan fyrsta fund haustsins með óskum um að vetrarstarfið verði farsælt. Sú nýbreytni er að nú er komin krukka sem mun liggja fram fyrir kaffisjóð en framlög eru frjáls á fundunum. Þá kynnti hún Minningarsjóð Lundar sem nýlega var stofnaður.


Lesa meira...

6.9.2009 14:20
Veðurklúbburinn Lundi
Góð viðri- en tvö eldgos framundan

Góðviðri - en tvö eldgos framundan!

Fundur í Veðurklúbbi Lundar 12. ágúst. Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10.

Pálmar Guðjónsson var gestur fundarins.

Pálmar er fæddur á Brekkum í Holtum 1934 yngstur fimm systkina, sonur Guðjóns Þorsteinssonar smiðs er þar bjó og seinni konu hans Margrétar Halldórsdóttur, sem ættuð var frá Syðri-Rauðalæk.


Lesa meira...

13.8.2009 08:58
Veðurklúbburinn Lundi
Sama blíðan áfram!!

Fundur í Veðurklúbbi Lundar miðvikudag 08.07, Jón Þórðarson setti fund kl.16.25

Gestur fundarins var Jóna Steinunn Sveinsdóttir bóndi og húsfreyja Meiri-Tungu í Holtum. Jóna er fædd í Götu í Holtum dóttir hjónanna Árbjargar Ólafsdóttur og Sveins Sveinssonar er bjuggu í Húsagarði í Landsveit. Tveggja ára gömul kemur hún svo að Meiri-Tungu til Þórhöllu móðursystur sinnar og hefur átt þar heimili síðan. Jóna er gagnfræðingur úr Skógaskóla, einnig stundaði hún nám í Húsmæðraskólanum á Laugavatni. Með manni sínum, Gísla Magnússyni, bjó Jóna í rúm 20 ár og eignuðust þau 6 börn. Eftir lát Gísla bjó hún með tveimur börnum sínum. Þegar talið berst að eftirminnilegum veðrum er Jónu efst í huga febrúarveðrið 1991, þá fuku þök af súrheysturnum og fleiri byggingum á Suðurlandi. Verður það að teljast mikil mildi að ekki varð manntjón í þessum hamförum.


Lesa meira...

23.6.2009 09:02
Veðurklúbburinn Lundi.

Útlit fyrir blítt sumar

Fundur í Veðurklúbbi Lundar miðvikudag 10. júní. Jón Þórðarson setti fund kl.16.00.

Gestur fundarinns var Þór Jakobsson veðurfræðingur sem er verndari og heiðursfélagi klúbbsins.

Margrét Þórðardóttir ritari las fundargerð síðasta fundar.

Þór ræddi um skýin og hina mismunandi ásýnd þeirra og hvað lesa má úr þeim. Kynnti Þór Skýjabókina sem er alþjóðleg handbók veðurathugunarmanna.

Þar má t.d. finna hvernig 10 mismunandi tegundir skýja flokkast og lýsingar, á hvernig þau myndast. Einnig fór hann í nöfn skýja eins og hnoðrar, bólstrar, klakkar og skúraský svo fátt eitt sé nefnt, allt eftir eðli þeirra og útliti. Einnig kynnti Þór bókina Veðurdaga eftir hjónin Unni Ólafsdóttur og Þórarin Eldjárn. Las hann fróðleik úr henni sem tengdist 10 juni, hvað gerst hefur markvert þann dag.

Þór sagði frá að sett hefur verið upp sjálfvirk veðurathugunarstöð í landi hans í Mörk á Landi.

Eftir kaffihlé var tekið til við veðurspána.


Lesa meira...

4.6.2009 11:19
Veðurklúbburinn Lundi.

Horfur á ágætu sumri

Fundur í Veðurklúbbi Lundar 27. maí. Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10.

Margrét Bjarnadóttir fráfarandi ritari las fundargerð síðasta fundar, voru henni þökkuð ritarastörfin og nýr ritari, Margrét Þórðardóttir boðin velkomin.

Gestir fundarins eru hjónin Reynir Þorsteinsson og Jóna María Eiríksdóttir í Gunnarsholti.

Lesa meira...

6.5.2009 08:50
Veðurklúbburinn Lundi.

Fyrsta sumarspáin

Þann 23.apríl héldum við fund hjá Veðurklúbbi Lundar og var hann settur kl. 16.10.

Gestur fundarinsvar Gústav Stolzenwald.

Tilviljun ein réð því að forfaðir hans, klæðskeri frá Þýskalandi,komst um borð í skip árið 1923 sem sigldi til Íslands. Þar með var framtíð hans ráðin. Fór hann í land í Vestmannaeyjum, þar sem hann bjó í nokkur ár og kynntist konu sinni. Gústav, eða Gústi eins og við köllum hann, er fæddur í Dísukoti í Þykkvabæ, en móðir hans er frá Minna-Hofi og faðir hans var hálfur Þjóðverji, eins og áður er getið. Gústi hefur starfað við ýmislegt, en þau hjónin byggðu upp ferðaþjónustu á Stokkalæk. Gústi er menntaður rafeindavirki og hefur unnið hjá Landsvirkjun, Símanum og nú síðast hjá Vodafone.

Gústi fór með ljóðið "Undir Öræfahimni" úr samnefndri bók eftir hann sjálfan. Það er fallegt og myndrænt ljóð.


Lesa meira...

20.3.2009 10:26
Veðurklúbburinn Lundi

Heil og sæl.

Við hjá Veðurklúbbi Lundar komum saman þann 11.mars kl. 16. Setti Jón Þórðar fund að venju og las ritari fundargerð, og gat Jón einnig að, nú væri fullt tungl og veðrið væri eins og best væri á kosið.

Veðurklúbburinn okkar fagnar 2 ára afmæli um þessar mundir nánar tiltekið 14 mars nk.

Gestur okkar í dag var Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur. Ingibjörg er dóttir Ólafs heitins Björnssonar læknis er starfaði hér á Hellu um árabil, en Minningarsjóður Ólafs Björnssonar var stofnaður í minningu hans.

Ingibjörg sagði okkur að hún ætti bara góðar bernskuminningar héðan en hún flutti héðan 10 ára gömul.

Haft var samband við hana að vinna að útgáfu rits um fyrstu uppbyggingarár Hellu, og vinnur hún að safna gögnum um það verkefni sem að öllum líkindum er viðamikið. Eru allar frásagnir frá gömlu árunum þegar Hella var að byggjast upp vel þegnar. Símanúmerið hennar er 895-6882.


Lesa meira...

12.3.2009 09:04
Veðurklúbburinn Lundi

Jón Þórðarsson setti fundinn . Fundargerð síðasta fundar var lesin upp.

Gestir fundarins voru Ágúst Sæmundsson og kona hans Guðrún Jóna Haraldsóttir.

Ágúst Sæmundsson sem er oftast kallaður Gústi fæddist að Þorleifstöðum á Rangárvöllum 19.sept. 1923. Þorleifstaðir fóru í eiði 1947. Skólaganga Gústa var ekki löng en hana stundaði hann að Strönd hluta úr þremur vetrum. Árið 1944 fluttist Gústi að Hellu með foreldrum sínum en á þeim tíma var Hella að byggjast upp og ekki voru nema nokkur hús þá í þorpinu og voru það t.d. Nes, Brúarland, Helluland, Eyrarland og Kaupfélagið Þór.

Gústi sagði í stuttu máli frá uppvaxtarárum sínum og veðurfari. Sérstaklega nefndi hann fannfergi mikið er var í feb 1931.

Guðrún Jóna eða Aggý eins og við þekkjum hana, er fædd 21. Okt . 1931, hún er elsta barn foreldra sinna. Hún er Reykvíkingur, átti heima í Skuggahverfinu sem barn. Skólaganga Guðrúnar var þó nokkur . Hún gekk í Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla. Guðrún lauk fullnaðarprófi sem þá var. Guðrún sagði í stuttu máli frá uppvaxtarárum sínum austur í Fljótshlíð, fór hún 17 ára að vinna á Tumastöðum og það var þá sem hún hitti Gústa verðandi mann sinn.


Lesa meira...

22.1.2009 09:33
Veðurklúbburinn Lundi

“Úlfakreppa”

Þann 21.jan hélt Veðurklúbbur Lundar sinn annan fund á árinu.
Fundarritari las fundargerð síðasta fundar og Jón Þórðar bauð fundargesti velkomna.
Gestur okkar í dag var Indriði Indriðason fjármálastjóri hjá Rangárþingi Ytra.
Indriði er borinn og barnfæddur Kópavogsbúi. Meðan hann var að feta sig áfram í lífinu vann hann hin ýmsu störf eins og gerist um unga menn eins og að vinna í fiski, fór á sjóinn, síðan fór hann í Iðnskólann og lærði bakaraiðn og vann við það um árabil. Fór þá í Háskólann í viðskiptafræði, lauk síðan master í fjármálum og hagfræði.


Lesa meira...

14.1.2009 16:21
Veðurklúbburinn Hellu

Hvítur þorri?

Þann 7.jan. 2009 var haldinn veðurfundur sá fyrsti á nýbyrjuðu ári.

Jón Þórðar setti fund og bauð alla velkomna einnig gestina okkar sem voru hjónin að Þverlæk, í Holtum, þau Margrét og Guðni.

Guðnier fæddur aðÞverlæk 1933 Sótti sem ungur maður Íþróttaskóla í Haukadal, síðan námskeið á vegum Búnaðarsambandsins. Margrét er fædd að Lýtingsstöðum1938. Fer síðan 2 ára að Kothvammi í V-Húnavatnssýslu með móður sinni en hún missti mann sinn. Móðir hennar fór síðan aftur suður sem ráðskona.

Guðni og Margrét hafa búið á Þverlæk með kúabúskap síðan 1957 eða í 44 ár fyrst með foreldrum hans síðan ein, og komu upp fimm börnum.Þegar sonur þeirra tók við kúabúskapnum sneru þau sér alfarið að skógrækt og hafa verið skógarbændur síðan 1990en Margrét hefurhaftáhuga á alls konar ræktun síðan í æsku. Hún sótti nám til þriggja ára við Landbúnaðarháskólann Grænni skógar, og hafa þau hjónin gróðursett um 5-10 þúsund plöntur á hverju ári.


Lesa meira...

19.12.2008 10:39
Veðurklúbburinn Hellu

Ef jól verða rauð, verða hvítir páskar

Þann 10.des héldum hjá Veðurklúbbi Lundar okkar annan fund á aðventunnin og byrjaði hann kl 16.10.

Gestur okkar var Hreinn Óskarsson Skógfræðingur búsettur í Odda á Rangárvöllum. Hreinn er fæddur og uppalinn á Selfossi en á ættir sínar að rekja annars vegar norður í Bárðardal og hins vegar í Fljótshlíðina í Fljótsdal. Hann sótti menntun sína til Danmerkur.


Lesa meira...

5.12.2008 11:44
Veðurklúbburinn Lundi

Einn hnoðri í norðri verður að veðri þó síðar verði

Fundur hjá Veðurklúbbi Lundar haldinn þ. 26.nóv. kl 16.00. Jón Þórðar bauð alla velkomna.

Gestur okkar að þessu sinni var Anne Bau búsett á Hellu.


Lesa meira...

19.11.2008 08:51
Veðurklúbburinn Lundi

Hlýtt í veðri en vætusamt nóv-jan 2009

Veðurfundur var haldinn þann 5.nóv. í matsal Lundar og setti Jón Þórðar fund kl. 17.05.

Fundargerð lesin upp. Gestur okkar í dag er okkar kunni veðurfræðingur Þór Jakobsson.


Lesa meira...

9.10.2008 10:34
Veðurklúbburinn Lunda

Stórviðri og snjóavetur þegar Davíð hættir í Seðlabankanum.

Þann 8.okt.var haldinn fundur hjá Veðurklúbbi Lundar. Jón Þórðar setti fund og bauð gesti velkomna þar með talinn gestinn okkar sem að þessu sinni var Jón Ragnar Björnsson. Ritari las fundargerð.


Lesa meira...

30.9.2008 09:47
Veðurklúbburinn á Lundi
Veðurklúbbur Lundur hélt fund þann 24. sept. sem sagt nú eru 3 mán. til jóla.
Jón Þórðar setti fundinn bauð alla velkomna sem og gestinn okkar sem að þessu sinni var Björgvin Sigurðsson viðsk. ráðherra.
Ritar las fundargerð.
 

Lesa meira...

15.9.2008 17:43
Veðurklúbburinn á Lundi

Fundur hjá Veðurklúbbi Lundar settur þ. 13.ágúst kl 17.00.
Jón Þórðar bauð fólk velkomið og ritari las fundargerð.
Jón tjáði okkur að gesti okkar mundi seinka örlítið.
En við dembdum okkur beint í veðurspána.


Lesa meira...

30.7.2008 12:21
Veðurklúbburinn
Verslunarmannahelgin

Verslunarmannahelgarveðrið - Milt en rakt

Veðurklúbbur Lundar hélt fund þann 23.júlí. Setti Jón Þórðarson fundinn og bauð alla velkomna svo og gestinn okkar, Ragnar Böðvarsson sagnahöfund.

Jón byrjaði á því að minnast tveggja heiðursmanna sem nýlega eru látnir þeir Sigurður Ásgeirsson og Óskar Einarsson en þeir mættu undantekningarlítið á okkar veðurfundi og er eftirsjón af þeim.

Ritari las fundargerð.


Lesa meira...

Eldri fréttir



 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn