|
Árni Óla 1888 - 1979, höfundur sögu Þykkvabæjar “Þúsund ára sveitaþorp” var blaðamaður og rithöfundur sem bar nafnbótina þjóðfræðingur með miklum sóma. Hann fæddist að Víkingavatni í Kelduhverfi 2.des.1888. Hann átti langan og merkan ritferil, sem rekja má allt til barnæsku er hann handskrifaði heimilisblaðið Fálka, norður í Kelduhverfi. Hann var ráðinn til Morgunblaðsins sem blaðamaður fyrstur manna árið 1913. Auk skrifa hans í það og Lesbók Morgunblaðsins í nánast heila starfsævi, liggur eftir hann fjöldi bóka og ritverka um margvísleg efni. Bókin Þúsund ára sveitaþorp, ber þess glöggt vitni að sá sem hana ritaði, var þar í hlutverki verndara eigin þjóðmenningar og bar mikla virðingu fyrir því verkefni sem hann sinnti. Bókin var gefin út á vegum Menningarsjóðs árið 1962. Atli Már, sonur Árna gerði kápu hennar sem virðist tákna gróðurlendi Þykkvabæjar sem umlukið er vatni og sandi. Árni Óla naut fáheyrðar virðingar og um hann var sagt að leiðarlokum :
“hann var hógværastur allra, leitaði ávallt sannleikans að fornu og nýju”
“Þúsund ára sveitaþorp” hefur verið ófáanleg um langt árabil. Til þess að þessi merka saga yrði öllum aðgengileg að nýju, veittu afkomendur Árna Óla góðfúslegt leyfi til þess að bókin yrði afrituð og vistuð hér á vef Rangárþings-ytra.
|