Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

Þjónusta  
 

Rangárþing ytra

 

Reglur um úthlutun leiguíbúða

sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. reglugerðar nr. 873/2001.

 

1. gr.

Félagsmálanefnd Rangárþings ytra annast úthlutun félagslegra leiguíbúða Rangárþings ytra. Úthlutun félagslegra leiguíbúða Rangárþings ytra skal gerð á grundvelli ákvæða 5. og 37. gr. L. nr. 44/1998 og VI. kafla reglugerðar nr. 873/2001.

 

2. gr.

Umsóknir skulu gerðar á sérstök eyðublöð sem skulu vera öllum aðgengileg á skrifstofu Rangárþings ytra á venjulegum opnunartíma skrifstofunnar. Unnt er að leggja inn umsókn á skrifstofuna hvenær sem er, en áskilið er að umsóknir sem orðnar eru sex mánaða gamlar eða eldri, skuli staðfestast af umsækjanda með áritun hans á umsóknina ef hann vill ennþá að hún komi til álita við úthlutun íbúðar. Umsækjanda skal afhent eintak af reglum þessum þegar umsókn er gerð.

 

3. gr.

Við úthlutun félagslegra leiguíbúða skal félagsmálanefnd raða umsækjendum í samræmi við eftirfarandi atriði:

1. Tekjur og eignir, sbr. ákvæði 23. og 24. gr. reglugerðar nr. 873/2001.

2. Núverandi húsnæðisaðstæður.

3. Gerð húsnæðis og ástand þess.

4. Fjölskyldustærð og fjölda barna.

5. Heilsufar og vinnugetu.

Töluliðir 2 - 3 sbr. ákvæði 22. gr. reglugerðar nr. 873/2001.

Ákvæði 1. til 5. töluliðar þessarar greinar eiga ekki við þegar úthlutað er öðrum íbúðum en "félagslegum íbúðum". Við úthlutun annarra íbúða en félagslegra, skal félagsmálanefndin meta aðstæður umsækjenda almennt, greiðslugetu og aðra þætti sem skipta máli við hverja einstaka úthlutun.

 

4. gr.

Félagsmálanefnd getur vikið frá ákvæðum 3. gr. þessara reglna þegar aðstæður umsækjanda eru sérstakar sbr. ákvæði 25. gr. reglugerðar nr. 873/2001. Félagsmálanefnd getur á sama hátt vikið frá ákvæðum 3. gr. þessara reglna þegar aðeins einn umsækjandi er um íbúð sem úthluta skal.

 

5. gr.

Tilkynna skal umsækjanda um niðurstöðu úthlutunar skriflega. Veita skal leiðbeiningar um málskotsrétt skv. ákvæðum laga nr. 37/1993 ef ekki hefur reynst unnt að verða við umsókn. Tilkynning um niðurstöðu úthlutunar skal send umsækjanda eigi síðar en 5 virkum dögum eftir úthlutun.

 

6. gr.

Reglur þessar taka gildi 14. júlí 2002 skv. samþykkt á fundi félagsmálanefndar Rangárþings ytra sama dag.

 


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn