Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

23.1.2012 12:24

46. fundur í skipulagsnefnd


46. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings bs.

fimmtudaginn 1. desember 2011, kl. 8.30, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.

 

Dagskrá.

 

Mætt á fundinn:  Egill Sigurðsson, varaoddviti Ásahrepps, Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti  Rangárþings eystra, Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti Rangárþings ytra og Rúnar Guðmundsson sem ritaði fundargerð.  Egill Sigurðsson boðaði forföll.

 

Efnisyfirlit:

I.                    Rangárþing eystra:

272  2011  Kornvellir, Rangárþingi eystra 1.tl. bráðabirgðaákvæða í skipulagslögum nr.123/2010, fyrir byggingu íbúðarhúss.

273  2011  Vorsabær, ný malarnáma í Rangárþingi eystra.

Ósk um að koma malarnámu inn á aðalskipulag Rangárþingi eystra, í landi Vorsabæjar. 

274  2011 Ósk um framkvæmdaleyfi.  Minniháttar færsla á veglínu við Önundarhorn, í Rangárþingi eystra.

 

Rangárþing ytra:

275  2011  Meiri-Tunga, Rangárþingi ytra, fuglaeldi, lýsing vegna deiliskipulagsáætlunar vegna tveggja fuglaeldishúsa.  

276  2011 Mykjunes, Rangárþingi ytra, deiliskipulag 3 frístundahúsalóða.

277  2011 Matslýing/lýsing deiliskipulags fyrir fiskeldi í Fellsmúla, Rangárþingi ytra.

278  2011  Matslýsing/lýsing deiliskipulags fyrir fiskeldi í Galtalæk, Rangárþingi ytra. 

279  2011  Umsögn vegna rekstrarleyfis flugvallar í og við Skálavatn (Veiðivötn)

280  2011  Borgartúnsnes í Þykkvabæ, Rangárþingi ytra, landskipti.

281  2011  Ægissíða 1, Rangárþingi ytra, landskipti.

282  2011  Lýtingur lóð F3, Rangárþingi ytra, landskipti.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------

I.                    

Farið yfir auglýsingar sem birtust í Búkollu, Lögbirtingi og Morgunblaðinu 12. okt. s.l. :

215  2011  Heiðarbrún II, í Rangárþingi ytra, deiliskipulag  tveggja sumarhúsa og skemmu. 

226  2011  Lýtingur, Rangárþingi ytra, deiliskipulag 7 frístundahúsalóða.

253  2011  Holtsmúli 4, Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, tveggja frístundahúsa, gesthúsa, gripahúss, skemmu og vélaskemmu.

255  2011  Hrafntóftir, í Rangárþingi ytra, deiliskipulag 3ja íbúðarhúsa og hlöðu. 

256  2011  Hraunhóll, landnr. 177568 í Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, geymslu, hesthúss og skemmu.

257  2011 Syðri-Hóll og Efri-Hóll Rangárþingi eystra, deiliskipulag íbúðarhúss, 3ja frístundahúsa og skemmu.

258  2011 Bjarkarey, deiliskipulag 28 ha svæðis í landi Bjarkareyjar í Austur-Landeyjum, Rangárþingi eystra.

       I.

Ný mál á dagskrá:

272  2011  Kornvellir, Rangárþingi eystra 1.tl. bráðabirgðaákvæða í skipulagslögum nr.123/2010, fyrir byggingu íbúðarhúss.

Arnar Ingi Ingólfsson f.h. landeigenda sækir um leyfi til byggingar íbúðarhúss að Kornvöllum í Rangárþingi eystra, í samræmi við 1.tl. bráðabirgðaákvæða skipulagslaga nr. 123/2010. Aðkoma er af Suðurlandsvegi rétt norðan Hvolsvallar.

Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdina í samræmi við ákvæði til bráðabirgðaákvæðis  í skipulagslögum nr. 123/2010. Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdina með fyrirvara um jákvæða umsögn Vegagerðarinnar.

 

273  2011  Vorsabær, ný malarnáma í Rangárþingi eystra.

Ósk um að koma malarnámu inn á aðalskipulag Rangárþings eystra, í landi Vorsabæjar.  Björgvin Guðmundsson kt. 270659-2339 landeigandi í Vorsabæ, Austur-Landeyjum, Rangárþingi eystra, hefur með bréfi og öðrum gögnum, sett fram ósk um að staðsetja inn á endurskoðað aðalskipulag Rangárþings eystra, sem nú er í vinnslu, malarnámu, sem yrði allt að 50.000 m33 að stærð. Vinna við endurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2003-2015, er nýlega hafin og áætlað að nýtt endurskoðað aðalskipulag taki gildi síðari hluta árs 2012.

Skipulagsnefnd mun koma ósk Björgvins um nýja malarnámu, til vinnuhóps sem er starfandi vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2003-2015.

 

274  2011 Ósk um framkvæmdaleyfi.  Minniháttar færsla á veglínu við Önundarhorn, í Rangárþingi eystra. Með vísan í 13. gr, skipulagslaga nr. 123/2010 sækir Vegagerðin kt. 680269-2899, um framkvæmdaleyfi fyrir færslu á vegi (Leirnavegi nr. 2140) við Önundarhorn, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Ætlun Vegagerðarinnar er að færa veginn og stytta um leið, á um 700m núverandi kafla. Við það verður hægara að verja veginn fyrir ágangi Svaðbælisáar, auk þess sem vegurinn verður mikið beinni á umræddum kafla.

Skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdleyfi fyrir minniháttar færslu á Leirnavegi nr. 2140, við Önundarhorn. Nefndin leggur áherslu á að frágangi svæðis vegna framkvæmdanna verð hraðað eins og kostur er.

 

275  2011  Meiri-Tunga, Rangárþingi ytra, fuglaeldi, lýsing vegna deiliskipulagsáætlunar vegna tveggja fuglaeldishúsa.  

Tyrfingur Hafsteinsson kt. 180673-4669 og Þórdís S. Guðmarsdóttir kt. 191271-3949,  leggja fram í samræmi við 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr 123/2010,  lýsingu á fyrirhuguðu deiliskipulagi, sem mun taka til byggingu tveggja húsa fyrir þauleldi alifugla, í landi Meiri-Tungu landnr. 190166. Einnig er óskað eftir heimild til að hefja deiliskipulagsvinnu fyrir fuglahúsin. Gert  er ráð fyrir að hvort  hús verði um 720 m2 að stærð og geti hýst allt að 13.000 fugla hvort hús. Meðfylgjandi lýsingunni fylgir samþykki landeiganda fyrir framkvæmdinni, auk þess sem allir nágrannar/landeigendur og  rekstraraðili við Landvegamót hafa ritað nafn sitt til samþykkis framkvæmdinni.

Með vísan í 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkir skipulagsnefnd Rangárþings bs.,  meðfylgjandi lýsingu vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu við Meiri-Tungu og mælist til að lýsingin verði send Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum til umsagnar og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Þá er veitt heimild til að hefja deiliskipulagsvinnu á svæðinu.

 

 

276  2011  Mykjunes, Rangárþingi ytra, deiliskipulag 3 frístundahúsalóða.

Deiliskipulagið tekur til 3 frístundahúsalóða í landi Mykjuness í Rangárþingi ytra.

Um er að ræða lóðir sem eru 1 ha að stærð. Heimilt verður að byggja allt að 150m2 sumarhús á hverri lóð. Aðkoma að Mykjunesi er um Landveg og Hagabraut nr.286.

Ekki verður samin lýsing með deiliskipulaginu, þar sem það samræmist að fullu meginmarkmiðum aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022.

Deiliskipulag fyrir Mykjunes var áður samþykkt af sveitarstjórn Rangárþings ytra 4, ágúst 2004, en lauk ekki í skipulagsferli. Tillagan hefur verið uppfærð í samræmi við núgildandi skipulagslög.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til að  tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á gerð  lýsingar né að kynna tillöguna sérstaklega skv.3. mgr. 40. gr.skipulagslaga, þar emmeginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

 

277  2011 Matslýsing/lýsing deiliskipulags fyrir fiskeldi í Fellsmúla, Rangárþingi ytra. Deiliskipulag hefur ekki verið gert af lóð og starfsemi fiskeldisstöðvarinnar í Fellsmúla. Það felur í sér að núverandi byggingar og starfsemi er skýrð og fyrirhugaðar breytingar. Helstu atriði sem deiliskipulagið tekur til eru; að byggingarreitir eru settir fram á skipulagsuppdrætti, jarðvegsmön og möguleg stækkun á iðnaðarhúsi. Í fyrstu er gert ráð fyrir litlu „pilot“? gróðurhúsi þar sem frárennsli frá fiskeldinu er nýtt til ræktunar. Þetta er þekkt aðferðarfræði erlendis og kemur til með að minnka áhrif frárennslis frá fiskeldi á umhverfið. Aðrar breytingar á svæðinu eru tvöföldun á núverandi fiskeldishúsi og framtíðar byggingarreitur fyrir fiskeldisker skilgreindur.

Með vísan í 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkir skipulagsnefnd Rangárþings bs.,  meðfylgjandi lýsingu vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu við Fellsmúla, og mælist til að lýsingin verði send Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum til umsagnar og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

 

278  2011 Matslýsing/lýsing deiliskipulags fyrir fiskeldi í Galtalæk, Rangárþingi ytra.  Deiliskipulag hefur ekki áður verið lagt fram fyrir lóð og starfsemi fiskeldisstöðvarinnar í Galtalæk. Deiliskipulagið sem hér er lagt fram skýrir áralanga starfsemi sem hefur verið á lóðinni, og fyrirhugaðar breytingar og frekari skýringar á mögulegri framtíðaruppbyggingu.

Lóðin í Galtalæk er 2.400 m2 af stærð. Á lóðinni eru ker fyrir fiskeldi og geymsluskúr.

Helstu breytingar sem verða á svæðinu með tilkomu nýs deiliskipulags, að  fjarlægja núverandi fiskeldisker og setja upp ný svokölluð lengdarstraumsker.

(ATH kynna íbúum í samræmi við 4. mgr. 40. gr. – stefnir hvort sem er í íbúafund vegna skipualagsmála)

Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að afla ítarlegri gagna og vísar málinu til  afgreiðslu hreppsnefndar Rangárþings ytra.

 

279  2011 Umsögn vegna rekstrarleyfis flugvallar í og við Skálavatn (Veiðivötn)

Grétar Erlingsson, verkefnastjóri á flugvalla- og leiðsögusviði ISAVIA ohf.,

óskar eftir umsögn sveitarfélagsins Rangárþings ytra  vegna umsóknar félagsins til rekstrarleyfis.

Flugvöllurinn hefur skilgreiningu í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að rekstrarleyfi verði veitt fyrir flugvöll,

 í og við Skálavatn.(Veiðivötn).

 

 

 

280  2011  Borgartúnsnes í Þykkvabæ, Rangárþingi ytra, einkalandskipti.

Skráðir eigendur neðagreindra landspildna gera með sér, samkvæmt meðfylgjandi

gögnum, einkalandskiptagerð:

  1. Vestari Oddspartsgarður, landnúmer 165411
  2. Vestri Miðkotsskák, landnúmer 178684
  3. Austari Oddspartsgarður, landúmer 165411
  4. Brekkugarður, landnúmer 15367
  5. Vesturholtagarður landnúmer, 165437
  6. Melsgarður, landnúmer 165402
  7. Hábæjargarður, landnúmer165378
  8. Hákotsgarður, landnúmer 165388
  9. Sólbakkagarður, landnúmer 165421
  10. Jaðarsgarður, landnúmer 165399
  11. Norður-Nýjabæjargarður, landnúmer 195203
  12. Önnupartsgarður, landnúmer 165457
  13. Skarðsgarður, landnúmer 165418
  14. Skinngarður, landnúmer 192281
  15. Búðargarður, landnúmer 165369

Bókun skipulagsnefndar:

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að afla ítarlegri gagna.

 

281  2011  Ægissíða 1, Rangárþingi ytra, landskipti.

Torfi Sigurðsson, kt. 110763-7949 og Ævar Svan Sigurðsson, kt. 290373-5499 óska eftir leyfi til að skipta lóðinni Ægissíðu 1, lóð 5, landnr. 218361 í tvennt. Ný lóð fær landnr. 220571 og er hún 6392 fm. að stærð. Lóðin 218361 verður 6264 fm. að stærð eftir landskiptin.

Eftir landskiptin sameinast lóðirnar 218361 og 218360 í eina lóð og verður hún 19.411 fm. með landnr. 218360 og 220571 sameinast 165450 og verður hún 19.796 eftir sameiningu og heldur landnr. 165450.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við landskiptin.

 

282  2011  Marteinstunga lóð F3, Rangárþingi ytra, landskipti.

Kristján Kristjánsson, kt. 240350-2629 ásamt öðrum eigendum að Marteinstungu, sumarbústaðalandi, landnr. 165243,  óska eftir því að skipta út 1.1 ha. lóð sem fær heitið Marteinstunga lóð F-3, með landnr. 220595, stærð 1,1 ha. Eftir landskiptin verður Marteinstunga landnr. 165243, 8,9 ha. að stærð.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við landskiptin.

 

 

I.                    

 

Farið yfir deiliskipulög vegna auglýsingar sem birtust í Morgunblaðinu,

Búkollu og Lögbirtingi 12. október s.l., og var athugasemdafrestur til kl.

16.00,  22. nóvember s.l.

 

 

 

 

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárvallasýslu.

Rangárþing eystra og Rangárþing ytra.

 

Samkvæmt  41.gr. skipulagslaga nr.123/2010,  er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur.

215  2011 Heiðarbrún II, í Rangárþingi ytra, deiliskipulag  tveggja sumarhúsa og skemmu.  Deiliskipulagið tekur til tveggja sumarhúsalóða og lóðar fyrir skemmu í landi Heiðarbrúnar II, landnr. 220265 í Rangárþingi ytra.

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

226  2011 Lýtingur, Rangárþingi ytra, deiliskipulag 7 frístundahúsalóða.

Deiliskipulagið tekur til 7 lóða fyrir frístundahús og er heimilt að byggja allt að 120 m² frístundahús, allt að 50 m² gestahús og allt að 30 m² geymslu á hverri lóð. 

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

253  2011  Holtsmúli 4, Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, tveggja frístundahúsa, gesthúsa, gripahúss, skemmu og vélaskemmu.

Deiliskipulagið tekur til einnar lóðar fyrir  íbúðarhús, tveggja lóða fyrir sumarhús og gestahús, auk einnar lóðar fyrir gripahús, skemmu og vélageymslu.

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

255  2011 Hrafntóftir, í Rangárþingi ytra, deiliskipulag 3ja íbúðarhúsa og hlöðu.  Deiliskipulagið tekur til 3ja íbúðarhúsa og hlöðu í landi Hrafntófta landnr. 165392, í Rangárþingi ytra.

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

256  2011  Hraunhóll, landnr. 177568 í Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, geymslu, hesthúss og skemmu.

Deiliskipulagið tekur til byggingarreits fyrir íbúðarhús, geymslu og hesthús ásamt skemmu.

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

257  2011 Syðri-Hóll og Efri-Hóll Rangárþingi eystra, deiliskipulag íbúðarhúss, 3ja frístundahúsa og skemmu.

Deiliskipulagið tekur til  íbúðarhúss, 3 frístundahúsa og skemmu, auk stækkunar á núverandi byggingu.

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

258  2011 Bjarkarey, deiliskipulag 28 ha svæðis í landi Bjarkareyjar í Austur-Landeyjum, Rangárþingi eystra.

Deiliskipulagið tekur til þriggja landspildna þar sem gert er ráð fyrir að byggja íbúðarhús, hesthús/skemmu og gestahús.

Engar athugasemdir hafa borist og telst því deiliskipulagið samþykkt.

 

Uppdrættir og önnur meðfylgjandi gögn lágu frammi á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli frá 12. október til og með 22. nóvember n.k.  Athugasemdafrestur var til kl 16.00, þriðjudaginn 22. nóvember 2011.

 

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 10.20

 

____________________________               _____________________________

Egill Sigurðsson                                              Rúnar Guðmundsson

varaoddviti Ásahrepps                                          

 

____________________________              

Guðfinna Þorvaldsdóttir

oddviti Rangárþings ytra                                           

 

____________________________

Guðlaug Ósk Svansdóttir                                                    

oddviti Rangárþings eystra

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn