Stjórnsýsla
23.1.2012 12:22
45. fundur í skipulagsnefnd
45. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings bs.
fimmtudaginn 27. október 2011, kl. 9.00, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.
Dagskrá.
Mætt á fundinn: Egill Sigurðsson, varaoddviti Ásahrepps, Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti Rangárþings eystra, Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti Rangárþings ytra og Rúnar Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
Guðlaug Ósk Svansdóttir boðaði forföll.
Efnisyfirlit:
I.
Staðfesting. Breyting á deiliskipulagi eftir auglýsingartíma.
188 2011 Garður, í Rangárþingi ytra, staðfesting á breytingu í deiliskipulagi, eftir auglýsingartíma.
II.
Ný mál á dagskrá:
Ásahreppur:
263 2011 Ráðagerðishagar í Ásahreppi, landnr 165309, ósk um heimild til deiliskipulagsgerðar.
Rangárþing ytra:
264 2011 Mið-Sel, Rangárþingi ytra, landskipti.
265 2011 Lýtingsstaðir, Rangárþingi ytra, landskipti.
266 2011 Sörlatunga, landnr. 175268, í Rangárþingi ytra, umsókn um lögbýli.
267 2011 Baugalda 9-13, Hellu, Rangárþingi ytra, ósk um breytingu á deiliskipulagi.
268 2011 Veiðivötn, óveruleg breyting á deiliskipulagi
229 2011 Hella, Rangárþingi ytra, matslýsing/lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
269 2011 Galtalækur og Fellsmúli, Rangárþingi ytra, lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
270 2011 Svínhagi SH 11, 1.tl. bráðabirgðaákvæða í skipulagslögum nr.123/2010
271 2011 Lýtingsstaðir Rangárþingi ytra 1.tl. bráðabirgðaákvæða í skipulagslögum nr.123/2010.
------------------------------------------------------------------------------------------------------
I.
Staðfesting eldra deiliskipulags:
188 2011 Garður í Rangárþingi ytra, staðfesting á breytingu á deiliskipulagi, eftir auglýsingartíma.
Tillagan var auglýst í Lögbirtingarblaðinu, Morgunblaðinu og Búkollu frá 19. janúar til 1. mars 2011. Engar athugasemdir bárust.
Eftir að deiliskipulagstillagan var auglýst, hefur verið felld út heimild til byggingar íbúðarhúsa, og nær því deiliskipulagið til eins frístundahúss, auk þeirra húsa sem fyrir eru á landinu.
Skipulagsnefnd staðfestir orðnar breytingar eftir auglýsingartíma og mælist til að deiliskipulagstillagan fái lokameðferð samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.
II.
Ný mál á dagskrá:
263 2011 Ráðagerðishagar í Ásahreppi, ósk um heimild til deiliskipulagsgerðar.
Guðrún Lára Sveinsdóttir kt. 110775-3699 og Jón Sæmundsson kt. 160676-4939
óska eftir heimild til að hefja gerð deiliskipulags á 5 – 10 hektara svæði í landi Ráðagerðishaga í Ásahreppi, landnr 165309. Gert er ráð fyrir að byggt verði íbúðarhús allt að 300 fm, skemma allt að 800 fm og gróðurhús/geymsla allt að 100 fm. Aðkoma verður frá Bugavegi. Landið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022.
Skipulagsnefnd samþykkir að hafin verði skipulagsvinna af svæðinu og verði tillagan í framhaldi auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á gerð lýsingar né að kynna tillöguna sérstaklega skv.3. mgr. 40. gr.skipulagslaga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022.
264-2011 Mið-Sel, Rangárþingi ytra, landskipti.
Finnur Egilsson, kt. 160153-5129, Mið-Seli, Rangárþingi ytra, óskar eftir að stofna lóð úr Mið-Seli, landnr. 199841. Lóðin fær heitið Mið-Sel, F1, lnr. 220494, stærð 9570 fm.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við landskiptin.
265 2011 Lýtingsstaðir, Rangárþingi ytra, landskipti.
Sigrún Haraldsdóttir, kt. 020939-2579, Guðrún A. Eiríksdóttir, kt. 300159-4009, Sigurjón Eiríksson, kt. 120760-5219, Haraldur Eiríksson, kt. 100862-7199, Ólafía Eiríksdóttir, kt. 140963-3219 og Guðný Eiríksdóttir, kt. 170766-5989 óska eftir því
að skipta út spildu úr Lýtingsstöðum, landnr. 165121.
Spildan fær heitið Lýtingsstaðir land 2, landnr. 220547, stærð 50,38ha.
Samþykkt með fyrirvara um undirskriftir landeigenda og aðliggjandi jarðareiganda.
266 2011 Sörlatunga, landnr. 175268, í Rangárþingi ytra, umsókn um lögbýli.
Landform landslagsarkitektar, f.h. Sólveigar Ólafsdóttur kt. 300554-7769, sækir um lögbýlisrétt á landnr. 175268, 20,4 ha spildu sem hefur nafnið Sörlatunga.Landið er 20,4ha að stærð og var skipt út úr jörðinni Haga í Holta- og Landsveit á sínum tíma. Það liggur að vegi nr. 286, norðan við Eystra Gíslholtsvatn. Landið er tiltölulega jafnslétt, hallar vægt frá norðri til suðurs, er framræst og gróið og er aðallega notað sem beitarland. Ræktuð tún í Sörlatungu eru um 5ha en auk þess eru um 10ha ræktaðra túna austan við veg, í óskiptu landi eigenda Sörlatungu ogSælukots, landnr. 198458. Núverandi húsakostur í Sörlatungu er tæplega 56m² sumarhús og opið hestaskýli.
Umsækjendur stunda ferðaþjónustu og hafa í hyggju að reisa um 700m² gistihús fyrir
ferðamenn og starfsmenn í Sörlatungu. Einnig hafa þeir í hyggju að byggja hesthús
og vélaskemmu því tengdu og þegar fram líða stundir, tvö íbúðarhús að auki, sem að
hluta til geta nýst ferðaþjónustunni. Samanlagt byggingarmagn húsnæðis undir
ferðaþjónustu mun þó ekki fara yfir 1500 m², skv. ákvæðum aðalskipulags.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti. Bent er á að lagfæra þurfi skráningu á eigendum spildunnar, sbr. skráningu hjá Þjóðskrá.
267 2011 Baugalda 9-13, Hellu, Rangárþingi ytra, ósk um breytingu á deiliskipulagi.
Ingólfur Rögnvaldsson kt. 200559-3129 óskar eftir afstöðu skipulagsnefndar til hugmyndar hans um breytingu á lóðum 9 -13 við Baugöldu , á Hellu. Ingólfur óskar eftir að breyta byggingarreit lóðanna þannig að heimilt verði að byggja allt að 5 íbúðir í stað þriggja.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til nánari afgreiðslu í hreppsnefnd Rangárþings ytra.
268 2011 Veiðivötn, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Gerð er óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi við Tjaldvatn í Veiðivötnum.
Breytingin felur í sér að gerð er grein fyrir lagningu raf- og ljósleiðarastrengs, bæði á uppdrætti og í greinargerð.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi skv. 2.mgr 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Það er mat skipulagsnefndar að breytingin sé það óveruleg að ekki sé sérstök ástæða til grenndarkynningar, þar sem tillagan víki ekki frá meginatriðum í samræmi við gildandi deiliskipulag.
229 2011 Hella, Rangárþingi ytra, matslýsing/lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Um er að ræða matslýsingu vegna breytinga á tengivegi og iðnaðarsvæði á Hellu og vegna þriggja deiliskipulaga á Hellu; Dynskála, miðbæjarsvæðið á Hellu og Rangárbakka/Rangárflata á Hellu.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Skipulagsnefnd Rangárþings bs. mælist til að lýsingin verði send Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum til umsagnar í samræmi við 1. mgr. 30. gr Skipulagslaga. Áður en ofangreindar tillögur komi til afgreiðslu hreppsnefndar, verða þær kynntar almenningi í samræmi við 2 mgr. 30. gr og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
269 2011 Galtalækur og Fellsmúli, Rangárþingi ytra, lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 vegna Galtalækjar og Fellsmúla. Skipulagsnefnd Rangárþings bs. mælist til að lýsingin verði send Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum til umsagnar í samræmi við 1. mgr. 30. gr skipulagslaga. Áður en ofangreindar tillögur komi til afgreiðslu hreppsnefndar, verða þær kynntar almenningi í samræmi við 2 mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
270 2011 Svínhagi SH 11, Rangárþingi ytra, 1.tl. bráðabirgðaákvæða í skipulagslögum nr.123/2010.
Ágúst Jóel Magnússon kt. 070562-4569, sækir um leyfi til byggingar aðstöðuhúss í Svínhaga SH 11, landnr.211022, í samræmi við 1.tl. bráðabirgðaákvæða skipulagslaga nr. 123/2010. Landspildan er um 7,2 ha að stærð og er aðkoma að henni um Þingskálaveg nr. 268.
Skipulagsnefnd vísar málinu til hreppsnefndar Rangárþings ytra til afgreiðslu.
271 2011 Lýtingsstaðir Rangárþingi ytra 1.tl. bráðabirgðaákvæða í skipulagslögum nr.123/2010.
Helgi Bjarni Óskarsson kt.180255-2819, sækir um leyfi til byggingar íbúðarhúss að Lýtingsstöðum í Rangárþingi ytra, í samræmi við 1.tl. bráðabirgðaákvæða skipulagslaga nr. 123/2010. Aðkoma að svæðinu er um Hagaveg.
Skipulagsnefnd vísar málinu til hreppsnefndar Rangárþings ytra til afgreiðslu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 10.00
____________________________ _____________________________
Egill Sigurðsson Rúnar Guðmundsson
varaoddviti Ásahrepps
____________________________
Guðfinna Þorvaldsdóttir
oddviti Rangárþings ytra
____________________________
Guðlaug Ósk Svansdóttir
oddviti Rangárþings eystra
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001