Stjórnsýsla
23.1.2012 12:21
44. fundur í skipulagsnefnd
44. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings bs.
mánudaginn 3. október 2011, kl. 9.00, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.
Dagskrá.
Mætt á fundinn: Egill Sigurðsson, varaoddviti Ásahrepps, Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti Rangárþings eystra, Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti Rangárþings ytra og Rúnar Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
Efnisyfirlit:
220 2011 Áfangagil í Rangárþingi ytra, afstaða skipulagsnefndar í kjölfar athugasemda Skipulagsstofnunar á lýsingu með deiliskipulagi Áfangagils.
253 2011 Holtsmúli 4, Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, tveggja frístundahúsa, gesthúsa, gripahúss, skemmu og vélaskemmu.
256 2011 Hraunhóll, landnr. 177568 í Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, geymslu, hesthúss og skemmu.
259 2011 Lýsing vegna Holta- og Hvammsvirkjun í Rangárþingi ytra.
260 2011 Óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi í Með-Seli, Rangárþingi ytra
261 2011 Beiðni um heimild til deiliskipulagsgerðar á landnr. 165008, í landi Snjallsteinshöfða, Rangárþingi ytra.
262 2011 Vörður-Heysholt, Rangárþingi ytra, ósk um samruna lands.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------
220 2011 Áfangagil í Rangárþingi ytra, afstaða skipulagsnefndar í kjölfar athugasemda Skipulagsstofnunar á lýsingu með deiliskipulagi Áfangagils.
Hreppsnefnd Rangárþings ytra staðfesti á fundi sínum 9. júní s.l. fundargerð Skipulagsnefndar Rangárþings bs. frá1. júní s.l., afgreiðslu lýsingar vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsvinnu við Áfangagil í Rangárþingi ytra. Samþykkt var að senda Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum lýsinguna til umsagnar, og einnig var samþykkt að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Kynning á lýsingunni var gerð með auglýsingu í Búkollu (staðarblað í Rangárvallasýslu) og Morgunblaðinu 29. júní s.l.
Skipulagsstofnun hefur í bréfi dags. 6. júlí 2011, lýst því yfir að deiliskipulagið fyrir Áfangagil samræmist ekki skilgreiningu aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022, á fjallaseli, en svæðið er skilgreint í aðalskipulagi sem verslunar- og þjónustusvæði/fjallasel.
Skipulagsnefnd vísar málinu til hreppsnefndar Rangárþings ytra til afgreiðslu.
253 2011 Holtsmúli 4, Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, tveggja frístundahúsa, gesthúsa, gripahúss, skemmu og vélaskemmu.
Deiliskipulagið nær til 52,8ha spildu sem hefur landnr. 219495 og er upprunalega úr landi Holtsmúla 2, landnr 164980, í Rangárþingi ytra. Deiliskipulagið tekur til einnar lóðar fyrir íbúðarhús, tveggja lóða fyrir sumarhús og gestahús, auk einnar lóðar fyrir gripahús, skemmu og vélageymslu. Aðkoma að Holtsmúla 4, er um Landveg (26) og síðan um Holtsmúlaveg (2777).
Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu, þar sem hún samræmist meginstefnu aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á gerð lýsingar né að kynna tillöguna sérstaklega skv. 40.gr laga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
256 2011 256 2011 Hraunhóll, landnr. 177568 í Rangárþingi ytra, deiliskipulag íbúðarhúss, geymslu, hesthúss og skemmu.
Steinsholt sf., f.h. Ómars Halldórssonar kt.220254-2839 leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lögbýlið Hraunhól, landnr. 177568, í Rangárþingi ytra.
Deiliskipulagið nær yfir um 12 ha svæði af 26 ha heildarstærð svæðisins.
Deiliskipulagið tekur til byggingarreits fyrir íbúðarhús, geymslu og hesthús ásamt skemmu. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, og er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Aðkoma að Hraunhóli er um Suðurlandsveg, þá um Landveg nr.26 og um núverandi aðkomuvegi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu, þar sem hún samræmist meginstefnu aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á gerð lýsingar né að kynna tillöguna sérstaklega skv. 40. gr. laga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
259 2011 Lýsing vegna Holta- og Hvammsvirkjunar í Rangárþingi ytra.
Steinsholt sf. f.h. Landsvirkjunar leggur fram lýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Holtavirkjun og Hvammsvirkjun sem verða reistar í Rangárþingi ytra.
Í meðfylgjandi lýsingu fyrir ofangreindar virkjanir kemur m.a. fram verkáætlun skipulagsferlis, framsetning á skipulagsgögnum, lýsing framkvæmdar á hvorri virkjun fyrir sig, umhverfismat, matsskylda, efnistök umhverfisskýrslu og að lokum samráð og kynning í skipulagsferli.
Skipulagnefnd gerir ekki athugasemdir við lýsinguna, en vísar henni til afgreiðslu Hreppsnefndar Rangárþings ytra.
260 2011 Óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi í Mið-Seli, Rangárþingi ytra.
Steinsholt sf. f.h. landeiganda leggur fram beiðni um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi í Mið-Seli, Rangárþingi ytra. Breytingin felur í sér að gerð er lóð umhverfis gestahús og byggingarreitur gestahúss færður lítilega til suð,suð-vesturs.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi skv. 2.mgr 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Það er mat skipulagsnefndar að breytingin sé það óveruleg að ekki sé sérstök ástæða til grenndarkynningar, þar sem tillagan víki ekki frá meginatriðum fyrri tillögu er varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðisins.
261 2011 Beiðni um heimild til deiliskipulagsgerðar á landnr. 165008, í landi Snjallsteinshöfða, Rangárþingi ytra.
Steinsholt sf. að beiðni Jóns. H. Skúlasonar, óskar heimildar til að vinna deiliskipulag 25 ha landspildu úr landi Snjallsteinshöfða (landnr. 165008) og er svæðið skilgreint sem F9 – frístundabyggð í aðalskipulagi Rangárþings ytra.
Áætlað er að skipuleggja lóðir fyrir frístundahús og skemmu og munu stærðir og skilmálar verða í fullu samræmi við Aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022.
Skipulagsnefnd samþykkir beiðni um leyfi til skipulagsvinnu í Snjallsteinshöfða.
Skipulagsnefnd telur að allar meginforsendur fyrir svæðið liggi fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, og er því mælst til að skipulagsferlið verði í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
262 2011 Vörður-Heysholt, Rangárþingi ytra, ósk um samruna lands.
Hér með óska Guðmundur M. Björnsson, kt. 030537-3199 og Guðrún Lóa Kristinsdóttir, kt. 270139-2809, eftir staðfestingu skipulagsnefndar á meðfylgjandi samruna lóða úr Vörðum.
Lóðirnar, Vörður lóð 2, stærð 4,00 ha. (216516), Vörður lóð 3, stærð 5,30 ha. (216517), Vörður lóð 4, stærð 5,02 ha. (216518 og Vörður lóð 5, stærð 5,03ha. (216519), óskast sameinaðar í eina lóð með heitið Vörður land, landnr. 216516, stærð 19,3 ha.
Einnig er óskað eftir að sameina Vörður land 2, stærð 39,7 ha. (215960) og Heysholt, stærð 13.0 ha. (164975) í eitt land undir heitinu Heysholt, landnr. 164975, stærð 52,7 ha.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við ofangreindan samruna lóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 10.15
____________________________ _____________________________
Egill Sigurðsson Rúnar Guðmundsson
varaoddviti Ásahrepps
____________________________
Guðfinna Þorvaldsdóttir
oddviti Rangárþings ytra
____________________________
Guðlaug Ósk Svansdóttir
oddviti Rangárþings eystra
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001