Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

23.1.2012 12:19

43. fundur í skipulagsnefnd


43. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings bs.

miðvikudaginn  31. ágúst 2011, kl. 9.00, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.

 

Dagskrá.

 

Mætt á fundinn:  Egill Sigurðsson, varaoddviti Ásahrepps, Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti  Rangárþings eystra, Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti Rangárþings ytra og Rúnar Guðmundsson sem ritaði fundargerð.

 

Efnisyfirlit:

I.                    

RANGÁRÞING YTRA

246  2011 Ósk um landskipti að Vörðum, Rangárþingi ytra.

247  2011 Ósk um landskipti í Selsundi, Rangárþingi ytra.

248  2011 Ósk um landskipti í Múla, Rangárþingi ytra.

249  2011 Ósk um samruna tveggja lóða í Litla-Klofa, Rangárþingi ytra.

250  2011 Ósk um staðfestingu á áður stofnuðum lóðum úr  Galtalæk, Rang. ytra.   

251  2011 Ósk um landskipti á fjórum lóðum úr Tjörfastöðum, Rangárþingi ytra.           

 

252  2011 Lyngás, breyting á áðursamþykktu deiliskipulagi (var auglýst sem íbúðarhúsalóðir).

 

253  2011 Holtsmúli 4, Rangárþingi ytra, beiðni um leyfi til að hefja skipulagsvinnu við deiliskipulag vegna íbúðarhúsa, gesthúsa, gripahúss,

skemmu og vélaskemmu.

 

254  2011 Galtalækur, Rangárþingi ytra, breyting á aðalskipulagi  vegna fiskeldis.

Beiðni um heimild til að hefja deiliskipulagsvinnu í Fellsmúla og Galtalæk 2, vegna fiskeldis.

 

255  2011 Hrafntóftir  landnr 165392,  í Rangárþingi ytra, deiliskipulag 3ja íbúðarhúsa og hlöðu.

 

256  2011  Hraunhóll,landnr. 177568 í Rangárþingi ytra, ósk um heimild til að hefja skipulagsvinnu.

 

RANGÁRÞING EYSTRA

257  2011 Syðri-Hóll og Efri-Hóll Rangárþingi eystra. Deiliskipulag fyrir íbúðarhús, 3 frístundahús og skemmu, auk stækkunar á núverandi byggingu.

 

258  2011 Bjarkarey, deiliskipulag 28 ha svæðis í landi Bjarkareyjar í Austur-Landeyjum, Rangárþingi eystra.

 

II.                 

Farið yfir auglýstar lýsingar vegna skipulagstillagna frá 29. júní s.l.

 

Til kynningar: verkáætlun skipulagsferlis vegna Urriðafossvirkjunar í Ásahreppi.

I.                    

Ný mál á dagskrá:

 

246  2011  Ósk um landskipti að Vörðum, Rangárþingi ytra.

Guðmundur Björnsson, kt. 030537-3199 og Guðrún L. Kristinsdóttir, kt. 270139-2809 óska eftir því að fá að stofna tvær lóðir úr landi sínu Vörðum, landnr. 215960. Lóðirnar

fá heitin Vörður lóð 7, landnr. 220379, stærð 14,5ha. og Vörður lóð 8, landnr. 220380,

stærð 13,3ha.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.

 

247  2011  Ósk um landskipti í Selsundi, Rangárþingi ytra.

Eigendurnir að Selsundi, Rangárþingi ytra, óska eftir leyfi til að stofna sumarhúsalóð sem fær heitið Tjarnarsel úr landi Selsunds, landnr. 164552.

Tjarnarsel fær landnr. 220366, stærð 1,29ha.

Lögbýlisréttur fylgir áfram Selsundi, landnr. 164552.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.

 

248  2011  Ósk um landskipti í Múla, Rangárþingi ytra.

Eigendurnir að Múla, Rangárþingi ytra, óska eftir leyfi til að stofna lóð úr Múla, landnr. 164996.  Nýja lóðin fær heitið Múli, land, landnr. 220198, stærð 10,794fm.

Lögbýlisréttur fylgir áfram Múla, landnr. 164996.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.

 

249  2011  Ósk um samruna tveggja lóða í landi Litla-Klofa, Rangárþingi ytra.

Elín Sigríður Óladóttir, kt. 090959-2719, óskar eftir samruna á tveimur lóðum

úr landi Litla-Klofa. Lóðirnar eru Litli-Klofi 1, landnr. 191976 og Litli-Klofi 2, landnr. 209901.  Sameiginlega lóðin verður Litli-Klofi, landnr. 191976, stærð 18,2 ha.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.

 

250  2011 Ósk um staðfestingu á landskiptum úr Galtalæk/Heiðarlöndum, Rangárþingi ytra.

Sveinn Sigurjónsson, kt. 011047-3789 og Sigurbjörg Elimarsdóttir, kt. 210157-7199,

óska eftir staðfestingu á áður stofnuðum lóðum úr Galtalæk/Heiðarlöndum, landnr. 209858. Lóðirnar voru stofnaðar skv. deiliskipulagi sem staðfest var í sveitarstjórn Rangárþings ytra, 4. nóvember 2010.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.

 

251  2011  Ósk um landskipti á fjórum lóðum úr Tjörfastöðum, Rangárþingi ytra.

Erna Hannesdóttir, kt. 081045-4539, óskar eftir leyfi til að stofna fjórar lóðir úr landi

Tjörfastaða, Rangárþingi ytra, landnr. 165013. Lóðirnar eru 1 ha. hver, samkvæmt meðfylgjandi deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin.

 

252  2011 Lyngás, Rangárþingi ytra, breyting á áður samþykktu  og auglýstu deiliskipulagi.

Steinsholt sf, f.h. Pálínu S. Kristinsdóttur kt. 130740-3599, leggur fram breytingu á áður auglýstu deiliskipulagi íbúðarhúsa á Lyngási. Breyting eftir auglýsingu felur í sér að lóð nr. 8 minnkar um rúma 300 m2 og lóð nr. 12, stækkar samsvarandi. Skilmálum fyrir lóð nr. 12 er breytt þannig að leyft verður að byggja skemmu í stað íbúðarhúss. Deiliskipulagstillagan var samþykkt á fundi skipulagsnefndar 3. maí 2011og staðfest í hreppsnefnd Rangárþings ytra 9. maí 2011. Tillagan var auglýst frá 18. maí s.l. til 28. júní s.l. og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og telur að um óverulega breytingu sé að ræða eftir auglýsingu, og mælist til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu sbr. 42.gr skipulagslaga nr. 123/2010.

 

253  2011 Holtsmúli 4, Rangárþingi ytra, beiðni um leyfi til að hefja skipulagsvinnu við deiliskipulag vegna íbúðarhúsa, gesthúsa, gripahúss, skemmu og vélaskemmu.

Jón Ágúst Pétursson kt. 181059-6139, leggur fram beiðni f.h eigenda Holtsmúla 4, þeirra Guðfinnu Elínar Jóhannsdóttur kt. 241160-4599 og Brynju Viðarsdóttur kt. 291064-7369,um leyfi til að hefja deiliskipulagvinnu.  Um er að ræða 52,8 ha landbúnaðarsvæði þar sem stefnt er að byggja íbúðarhús, gestahús, gripahús skemmu og vélaskemmu.Aðkoma er um Suðurlandsveg, um Landveg (26) og um Holtsmúlaveg.

Skipulagsnefnd samþykkir framkomna beiðni og mælist til að hafin verði deikispulagsvinna vegna Holtsmúla 4

 

254  2011 Galtalækur, Rangárþingi ytra, breyting á aðalskipulagi  vegna fiskeldis.

Beiðni um heimild til að hefja skipulagsvinnu í Fellsmúla og Galtalæk vegna fiskeldis.

Íslensk Matorka óskar eftir leyfi til að hefja deiliskipulagsvinnu vegna fiskeldis í Fellsmúla landnr. 165023 og í landi Galtalækjar 2, landnr. 214057.

Í Fellsmúla er í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 skilgreining (I 11) fyrir fiskeldi. Óskað er eftir að sett verði inn á aðalskipulag Rangárþings ytra, samsvarandi skilgreining fyrir fiskeldi í Galtalæk 2.

Skipulagsnend mælist til að gerð verði aðalskipulagsbreyting vegna fiskeldis að Galtalæk 2 og Fellsmúla.  Skipulagsnefnd samþykkir einnig að hafin verði deiliskipulagsvinna við Fellsmúla og Galtalæk 2.

 

255  2011 Hrafntóftir , í Rangárþingi ytra, deiliskipulag 3ja íbúðarhúsa og hlöðu.  Gylfi Jónsson kt. 150658-3149 leggur fram deiliskipulag 3ja íbúðarhúsa og hlöðu í landi Hrafntófta landnr. 165392, í Rangárþingi ytra. Aðkoma að Hrafntóftum er um Suðurlandsveg og Þykkvabæjarveg.

Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu, þar sem hún samræmist meginstefnu aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að kynna tillöguna skv. 40.gr laga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

 

256  2011  256  2011  Hraunhóll, landnr. 177568 í Rangárþingi ytra, ósk um heimild til að hefja skipulagsvinnu.

Steinsholt sf., f.h. ‚Ómars Halldórssonar kt.220254-2839 óskar eftir heimild til að hefja skipulagsvinnu á u.þ.b. 26 ha spildu í landi Minni-Valla í Landsveit. Stefnd er að byggingu íbúðarhúss, gestahúss og útihúsa. Spildan hefur landnr. 177568 og heitir Hraunhóll.

Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu, þar sem hún samræmist meginstefnu aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að kynna tillöguna skv. 40.gr laga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

 

 

RANGÁRÞING EYSTRA

257  2011 Syðri-Hóll og Efri-Hóll Rangárþingi eystra. Beiðni um leyfi til að hefja  deiliskipulagsvinnu.

Steinsholt sf. f.h. Gunnars Sveinbjörnssonar kt.010260-3299 og Þórdísar Þórainsdóttur kt. 020160-2339, leggur fram deiliskipulag fyrir Syðri-Hól, landnr. 163800 og Efri-Hól, landnr. 163755 í Rangárþingi eystra.  Deiliskipulagið nær til 11 ha af jörðunum Syðri-Hól og Efri-Hól. Skipulagið tekur til  íbúðarhúss, 3 frístundahúsa og skemmu, auk stækkunar á núverandi bygginu.

Aðkoma að svæðinu er um Suðurlandsveg og um Sandhólmaveg nr. 247, í Vestur-Eyjafjöllum.

Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu, þar sem hún samræmist meginstefnu aðalskipulags Rangárþings eystra 2003-2015, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að kynna tillöguna skv. 40.gr laga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

 

 

258  2011 Bjarkarey, deiliskipulag 28 ha svæðis í landi Bjarkareyjar í Austur-Landeyjum, Rangárþingi eystra.

Þór Bjarkar Lopes kt. 151262-5389, f.h. Andvarafélgsins ehf. kt. 611205-0310, leggur fram nýja tillögu að deiliskipulagi fyrir 28 ha svæði í landi Bjarkareyjar.

Deiliskipulag af sama svæði hefur áður verið samþykkt en kemur nú fram í nýrri og breyttri mynd. Deiliskipulagið tekur til þriggja landspildna þar sem gert er ráð fyrir að byggja íbúðarhús, hesthús/skemmu og gestahús. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi, um Akureyjarveg (nr. 255) og Landeyjarveg (nr. 252) eða um Suðurlandsveg, og um Landeyjarveg að Hallgeirseyjarvegi(nr.2479)

Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu, þar sem hún samræmist meginstefnu aðalskipulags Rangárþings eystra 2003-2015, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 41 gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að kynna tillöguna skv. 40.gr laga, þar sem meginforsendur deiliskipulags liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

 

----------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

II.                 

Farið yfir auglýsingar:

Auglýsing um LÝSINGU á neðangreindum tillögum birtust í Búkollu og Morgunblaðinu 29, júní sl.

 

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárvallasýslu.

Rangárþing eystra og Rangárþing ytra.

 

Í samræmi við  40.gr. skipulagslaga nr.123/2010,  voru til kynningar eftirfarandi lýsingar vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu.

220  2011  Áfangagil, Rangárþingi ytra, lýsing vegna deiliskipulagsgerðar.

Hreppsnefnd Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 9. júní s.l. lýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags skálasvæðis í Áfangagili, Rangárþingi ytra.

Markmið með deiliskipulagi af svæðinu er að geta sinnt þeirri fjölgun ferðafólks sem nú þegar er orðin á svæðinu og einnig er gert  ráð fyrir fjölgun ferðafólks næstu árin.

225  2011 Baldvinsskáli á Fimmvörðuhálsi, Rangárþingi eystra, lýsing vegna skipulagsgerðar.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra  samþykkti á fundi sínum 9. júní s.l. lýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi, í Rangárþingi eystra. Meginmarkmiðið með deiliskipulagi fyrir Baldvinsskála er að skrásetja og koma skipu­lagi yfir núverandi mannvirki og þjónustustarfsemi á svæðinu og marka því uppbygg­ingar­stefnu til framtíðar.

229  2011  Hella, Rangárþingi ytra, lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

Hreppsnefnd Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 9. júní s.l. lýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, vegna nokkurra svæða á Hellu. Meginmarkmið sveitarstjórnar með lýsingunni eru eftirfarandi:

• Tryggja greiða aðkomu að nýju þjónustusvæði sunnan Suðurlandsvegar

• Bæta aðgengi að núverandi þjónustusvæði sunnan Suðurlandsvegar

• Tryggja greiðari og hættuminni umferð milli gamla þorps/skólahverfis og nýrri

byggðar á Söndum og Öldum.

• Tryggja framboð á athafnalóðum á Hellu.

 

Ofangreindar lýsingar mátti nálgast á heimasíðu sveitarfélaganna eða á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli. Tillaga að breyttu aðal­skipulagi á Hellu og deiliskipulagi skálasvæðanna verður auglýst í framhaldi málsins og þá má gera formlegar athugasemdir við skipulögin.

Ábendingum varðandi ofangreindar lýsingar mátti koma til sveitarstjóra eða skipulagsfulltrúa fyrir 22. júlí 2011.

 

--------------------------------------------------------------------------------------------------------

220  2011  Áfangagil, Rangárþingi ytra, lýsing vegna deiliskipulagsgerðar.

Skipulagsnefnd Rangárþings bs. mælist til að gefin verði heimild til áframhaldandi deiliskipulagsgerðar vegna Áfangagils.

 

225  2011 Baldvinsskáli á Fimmvörðuhálsi, Rangárþingi eystra, lýsing vegna skipulagsgerðar.

Skipulagsnefnd Rangárþings bs. mælist til að gefin verði heimild til áframhaldandi deiliskipulagsgerðar vegna Baldvinsskála.

 

229  2011  Hella, Rangárþingi ytra, lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

Skipulagsnefnd Rangárþings bs. mælist til að gefin verði heimild til áframhaldandi skipulagsgerðar vegna 229  2011, breyting á aðalskipulagi vegna Hellu.

 

Skipulagsnefnd Rangárþings bs. mælist til, að áður en ofangreindar tillögur komi til afgreiðslu hreppsnefndar, verði þær kynntar almenningi  til samræmis við 2 mgr. 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. mgr. 40. gr. sömu laga.

 

Til kynningar:

 Verkáætlun skipulagsferlis vegna Urriðafossvirkjunar í Ásahreppi.

Skipulagsnefnd mælist til að hafið verði skipulagsferli fyrir Urriðafossvirkjun í samræmi við fyrirliggjandi verkáætlun.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 11.00

 

____________________________               _____________________________

Egill Sigurðsson                                              Rúnar Guðmundsson

varaoddviti Ásahrepps                                           

 

____________________________              

Guðfinna Þorvaldsdóttir

oddviti Rangárþings ytra                                           

 

____________________________

Guðlaug Ósk Svansdóttir                                                    

oddviti Rangárþings eystra

 

 

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn