Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

31.8.2010 09:43

30. fundur Skipulagsnefndar


30. fundur í skipulags- og byggingarnefndnefnd Rangárþings bs.

mánudaginn 30. ágúst 2010, kl. 13.00, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.

 

Fundargerð

 

Mætt á fundinn:  Egill Sigurðsson, varaoddviti Ásahrepps, Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti  Rangárþings eystra og Magnús Jóhannsson, oddviti Rangárþings ytra og Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, sem ritaði fundargerð.

Efnisyfirlit:

Breytingar á deiliskipulagstillögum eftir auglýsingu:

110  2009  Deiliskipulag skálasvæðis við Álftavatn, Rangárþingi ytra.

Smávægilegar breytingar voru gerðar á deiliskipulaginu eftir staðfestingu hreppsnefndar Rangárþings ytra 30. nóvember  2009. Breytingarnar voru gerðar eftir ábendingar frá Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun. 

Skipulagsstofnun bendir á í bréfi dags 23. júní  2010 að staðfesta þurfi  fyrrgreindar breytingar áður en deiliskipulagið er auglýst í B-deild stjórnartíðinda.

 

140  2010 Steinkusel Rangárþingi ytra, deiliskipulag 5 frístundahúsalóða, óveruleg breyting felur í sér að heiti á lóðum F4 og F5 breytast. Einnig breytast hnit á F4 og F5 lítillega eftir ítarlega mælingu.

 

Ný mál á dagskrá:

Ásahreppur:

155  2010 Ósk um breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna breytinga á legu Búðarhálsvirkjunar. ( Unnur Helga Kristjánsdóttir sækir um breytinguna f.h. Landsnets )

Rangárþing eystra:

156 2010 Stóra-Mörk III, Rangárþingi eystra, deiliskipulag íbúðarhúss, útihúsa og smáhúsa.

Rangárþing ytra:

157  2010 Uxahryggur I. Rangárþingi ytra, deiliskipulag fyrir sumarhús.

157  2010 Tjörfastaðir í Rangárþingi ytra, deiliskipulag 4 frístundahúsalóða.

158  2010  Ósk um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna breytinga á legu Búðarhálsvirkjunar. ( Unnur Helga Kristjánsdóttir sækir um breytinguna f.h. Landsnets )

159  2010 Heysholt Rangárþingi ytra deiliskipulag frístundahúsa og þjónustubygginga.

 

Farið yfir athugasemdir í kjölfar skipulags-auglýsingar sem birtust í Lögbirtingarblaði, Morgunblaðinu og Búkollu 23. júní 2010.

----------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

 

 

 

110  2009  Deiliskipulag skálasvæðis við Álftavatn, Rangárþingi ytra.

Smávægilegar breytingar voru gerðar á deiliskipulaginu eftir staðfestingu hreppsnefndar Rangárþings ytra 30. nóvember  2009. Breytingarnar voru gerðar eftir ábendingar frá Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun. 

Skipulagsstofnun bendir á í bréfi dags 23. júní  2010 að staðfesta þurfi  fyrrgreindar breytingar áður en deiliskipulagið er auglýst í B-deild stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd vísar deiliskipulaginu með áorðnum breytingum til hreppsnefndar Rangárþings ytra til staðfestingar.

 

140  2010 Steinkusel Rangárþingi ytra, deiliskipulag 5 frístundahúsalóða, óveruleg breytingin felur í sér að heiti á lóðum F4 og F5 breytast. Einnig breytast hnit á F4 og F5 lítillega eftir ítarlega mælingu.

Skipulagsnefnd samþykkir breytingarnar.

 

Ný mál á dagskrá:

Ásahreppur:

155  2010 Ósk um breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna breytinga á legu Búðarhálsvirkjunar. (Unnur Helga Kristjánsdóttir sækir um breytinguna f.h. Landsnets)

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna með fyrirvara um aðalskipulagsbreytingu. Skipulagsnefnd vekur athygli á, að við útgáfu framkvæmdaleyfis skuli þess gætt að tryggt verði að röskun á gróðri verði sem allra minnst.

 

Rangárþing eystra:

156 2010 Stóra-Mörk III, Rangárþingi eystra, deiliskipulag íbúðarhúss,útihúsa og smáhúsa.

Deiliskipulagið nær til um 8 ha svæðis úr landi Stóru-Merkur III, landnr. 163810.

Deiliskipulagið tekur til stækkunar á íbúðarhúsi, byggingar íbúðarhúss, útihúsa og smáhýsa. Deiliskipulagið er í samræmi við staðfest aðalskipulag Rangárþings eystra

2003-2015, en þar er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði og heimilt er

að byggja allt að 1500m² til ferðaþjónustu og/eða veitingareksturs hverju lögbýli.

Aðkoma  er af Suðurlandsvegi austan brúar yfir Markarfljót, um Þórsmerkurveg

(nr.249) og þaðan um Merkurveg (nr 248). að Stóru-Mörk III

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst lögum samkvæmt.

 

 

Rangárþing ytra:

157  2010 Uxahryggur I. Rangárþingi ytra, deiliskipulag fyrir sumarhús.

Deiliskipulagið nær yfir rúmlega 2 ha lóð í landi Uxahryggjar 1 (landnr. 219337). Deiliskipulagið tekur til frístundahúss og gestahúss/geymslu. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014, en þar er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Skógræktarsvæði Skógræktarfélags Rangæinga við Þverá er norðan lóðarinnar. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi austan Hvolsvallar, um Landeyjaveg (nr. 252) og nýjan afleggjara að lóðinni.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst lögum samkvæmt.

 

157  2010 Tjörfastaðir í Rangárþingi ytra, deiliskipulag 4 frístundahúsalóða.

Deiliskipulagið nær yfir um 4 ha svæði af landi Tjörfastaða (landnr. 165013). Deiliskipulagið tekur til fjögurra frístundalóða, F1-F4 sem allar eru 1 ha að stærð. Áætlað er að byggja frístundahús og gestahús/geymslu á hverri lóð.

Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi vestan Hellu, um Bjallaveg (nr. 272), Húsagarðsveg (nr. 2771) og nýjan afleggjara frá aðkomuvegi að Tjörvastöðum.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna með fyrirvara um aðalskipulagsbreytingu.

 

158  2010  Ósk um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna breytinga á legu Búðarhálsvirkjunar. (Unnur Helga Kristjánsdóttir sækir um breytinguna f.h. Landsnets)

Skipulagsnefnd samþykkir að gerð verði aðalskipulagsbreyting vegna breytinga á legu Búðarhálsvirkjunar. Skipulagsnefnd vekur athygli á, að við útgáfu framkvæmdaleyfis skuli þess gætt að tryggt verði að röskun á gróðri verði sem allra minnst.

 

159  2010  Heysholt Rangárþingi ytra deiliskipulag frístundahúsa-, verslunar- og  þjónustubygginga.

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir frístundabyggð með 24 lóðum og 48 byggingum. Verslun og þjónustu á tveimur lóðum með 2 byggingum þar sem önnur lóðin er til framtíðarþarfa svæðisins.

Deiliskipulagið er syðst í landi Heysholts og er með aðkomu um Suðulandsveg,  Landveg og um aðkomuveg inn á svæðið.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna með fyrirvara um aðalskipulagsbreytingu.

 

 

Farið yfir athugasemdir vegna skipulagsauglýsinga sem birtist í Morgunblaðinu, Lögbirtingarblaðinu og Búkollu 23. júní s.l.

Uppdrættir og önnur meðfylgjandi gögn lágu frammi á skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli, frá 23. júní, til og með 21. júlí s.l.

Athugasemdafrestur var til kl 16.00, þriðjudaginn 3. ágúst 2010.:

 

 

Hreppsnefnd Ásahrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73-1997 með síðari breytingum.

Aðalskipulagstillagan tekur til alls lands innan sveitarfélagamarka og er birt á uppdráttum og í greinargerð .  Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu og öðrum gögnum eru til sýnis frá 23. júní til og með 3. ágúst. n.k.

á eftirfarandi stöðum:

·         Skrifstofu Ásahrepps , Laugalandi ,851- Hellu. 

·         Skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs. Ormsvelli 1, Hvolsvelli. 

·         Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.

Öll ofangreind gögn má ennfremur nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins:

 http://www.asahreppur.is

Þeim sem töldu sig eiga hagsmuna að gæta var gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna. 

Athugasemdafrestur var til kl 16:00, þriðjudaginn 3. ágúst  2010.

 

 

Borist hafa ábendingar frá Skipulagsstofnun.

Einnig hafa borist athugasemdir frá Halldóri H. Halldórssyni f.h. Landssambands hestamannafélaga, þar sem gerðar eru athugasemdir við að ekki skuli vera inni á aðalskipulagsuppdrætti  skilgreindar reiðleiðir á Holtamannaafrétti.

Skipulagsnefnd vísar athugasemdum og ábendingum til hreppsnefndar Ásahrepps til afgreiðslu.

 

---------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Samkvæmt 1. mgr. 25.gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur.

 

128  2010  Hrafntinnusker, deiliskipulag og umhverfisskýrsla skálasvæðis á hálendi Rangárþings ytra

Skálasvæðið við Hrafntinnusker er innan svæðis miðhálendisins og fellur það undir lög um mat á umhverfisáhrifum áætlana skv. lögum nr. 105/2006. Svæðið fellur undir þjóðlendur sbr. úrskurð óbyggðanefndar og 2. gr.laga nr. 58/1998 um þjóðlendur

Deiliskipulag þetta nær til 1ha svæðis við Hrafntinnusker sem er í 1.140m hæð yfir sjó. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

Ekki hafa borist athugasemdir við deiliskipulagstillögunni og telst hún því samþykkt.

 

131  2010 Hvanngil, deiliskipulag og umhverfisskýrsla skálasvæðis á hálendi Rangárþings ytra

Hvanngil er um 3 km suður af Álftavatni og er við Fjallabaksleið syðri, rétt norðan

Mýrdalsjökuls.

Deiliskipulagið nær til tveggja svæða og samanlögð stærð þeirra er um 2 ha. Ferðafélag Íslands festi kaup á skálunum í Hvanngili árið 2002 og núv. byggingar eru 1 skáli byggður 1994, 1 hesthús með gistiaðstöðu byggt 1963, 1 skálavarðarhús byggt 1993 og 1 salernishús byggt 1996. Tvö tjaldsvæði eru á svæðinu.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

 

Borist hafa ábendingar Samvinnunefndar um miðhálendi Íslands, vegna umhverfisskýrslu/deiliskipulagsvinnu skálasvæðis við Hvanngil, Rangárþingi ytra.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í ábendingar Samvinnunefndar um miðhálendi Íslands, og vísar þeim til frekari afgreiðslu hreppsnefndar Rangárþings ytra.

Að öðru leyti telst tillagan samþykkt.

 

 

 

139  2010  Deiliskipulag hálendismiðstöðvar að Hrauneyjum, Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið nær til um 6 ha lóðar Hálendismiðstöðvarinnar Hrauneyja,

landnr. 179274. Deiliskipulagið tekur til byggingarreits fyrir stækkun hálendismiðstöðvarinnar, sem felur í sér stækkun á núverandi gistirými og byggingarreits fyrir fræðslustofu.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010 - 2022,

þar er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.

Eldra deiliskipulag unnið af Litlu Teiknistofunni, dags. í júní 1993 m/síðari

breytingum, er fellt úr gildi.Aðkoma að Hrauneyjum er af Landvegi 26 og aðkomuvegi að hálendismiðstöðinni.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

Ekki hafa borist athugasemdir við deiliskipulagstillögunni og telst hún því samþykkt.

 

140  2010  Steinkusel, deiliskipulag 4. frístundahúsalóða úr landi Efra-Sels, Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið nær til Steinkusels, landnr. 165021, sem er um 5 ha. spilda.

Deiliskipulagið tekur til fjögurra nýrra frístundalóða þar sem heimilt verður að

byggja frístundahús og gestahús eða geymslu.

Deiliskipulagið er í samræmi við tillögu að aðalskipulagi Rangárþings ytra

2010-2022 sem er í endurskoðun en þar er svæðið skilgreint sem frístundasvæði. Aðkoma að Steinkuseli er um Bjallaveg 272 og aðkomuveg að frístundasvæðinu.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

Ekki hafa borist athugasemdir við deiliskipulagstillögunni og telst hún því samþykkt.

 

142  2010  Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Sámsstaða í Fljótshlíð, Rangárþingi eystra.

Deiliskipulagssvæðið er jörðin öll sem afmarkast af landamörkum Aurasels til suðurs, landamörkum Vestur- Sámsstaða til vesturs, landamörkum Mið-Sámsstaða til norðurs og landamörkum Fögruhlíðar til austurs.  Jörðin er alls u.þ.b. 134 ha. 

Innan jarðar verða þrjú svæði skipulögð til frístundabyggðar, sem mun rúma allt að 16 frístundahúsalóðir.  Aðkoma inn á jörðina er um Fljótshlíðarveg og aðkomuveg  inn á svæðið við Sámsstaði. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings eystra 2003-2015.

Ekki hafa borist athugasemdir við deiliskipulagstillögunni og telst hún því samþykkt.

 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

 

 

 

 

 

Samkvæmt  1. mgr. 26.gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar.

 

137  2010  Haukadalur lóð 5, á norðursvæði, breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar, Rangárþingi ytra

Breytingin felur í sér breytingar á gildandi greinargerð skipulagsins gr. 2.3 og 2.4.

Í grein 2.3 er bætt við setningu sem segir „ Heimilt skal að byggja tvö hús á hverri lóð, enda sé stærð þeirra innan marka sem tilgreind eru í grein 2.4“

Í grein 2.4 er breytingin á þá vegu að heimilt verður að byggja allt að 250m2 brúttó, þ.e. 180m2 á aðalhúsi og annað hús allt að 70m2. 

Að auki er byggingarreitur á lóð nr. 5 stækkaður  og færður ofar í lóðina.

Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2002-2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, sem er í lögbundnu staðfestingarferli.

Ekki hafa borist athugasemdir við deiliskipulagsbreytinguna og telst hún því samþykkt.

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 15.00

 

 

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn