Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

26.8.2010 22:53

2. Samgöngu- hálendi og umhverfisnefndar


2. fundur samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar

Rangárþings ytra 2010 - 2014

haldinn á Hellu 10. ágúst 2010 kl. 16:00.

 

Fundargerð:

 

Fundinn sátu Sigurgeir Guðmundsson, Margrét Eggertsdóttir (kom inn sem varamaður), Svanur Lárrusson (kom inn sem varamaður), Anna María Kristjánsdóttir og Bæring J. Guðmundsson (kom inn sem varamaður).   

Forföll boðuðu  Þröstur Guðnason, Anne Baue og Ingvar P. Guðbjörnsson.

 

Dagskrá:

 

1        Umsókn frá Bergi Sveinbjörnssyni kt. 150643-2959, um stöðuleyfi fyrir um 1850m2 húsnæðis sem staðið hefur á Nesjavöllum um nokkurra ára skeið. Óskað er eftir að fá að setja húsin niður á gatnamótum Dómadalur/Sigalda/Ljóti Pollur /Landmannalaugar.

Hreppsráð Rangárþings ytra samþykkir eftirfarandi bókun er varðar umsókn frá Bergi Sveinbjörnssyni og er merkt sem“mál sem kom inn eftir boðun fundar“ : Afgreiðslu frestað, hreppsráð felur sveitarstjóra að afla frekari gagna svo sem leyfi landeiganda, umsögn umhverfisstofnunar, og leita eftir áliti samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar Rangárþings ytra . Samþykkt samhljóða.

Nefndin leggst eindregið gegn því að umrædd mannvirki verði reist á því svæði sem um er rætt í umsókninni, enda er ekki til neitt deiliskipulag fyrir svæðið sem gerir ráð fyrir slíkri uppbyggingu.  Nefndarmenn eru sammála um þá stefnu að uppbygging þjónustusvæða fyrir hálendisfara verði í framtíðinni við hálendisjaðar og í undantekningartilfellum á skilgreindum skálasvæðum sem ekki er áætlað að fjölga umfram það sem nú er.  Tekið skal fram að ekki liggja fyrir nein leyfi fyrir umræddum byggingum, hvorki frá landeigendum þ.e. frá ríkinu eða frá nefnd um Friðland að Fjallabaki en áætluð staðsetning er innan marka friðlandsins.  Það er samdóma álit nefndarinnar að hér sé um afar fordæmisgefandi mál að ræða, sem gæti kallað yfir svæðið mikla ásókn um frekari mannvirkjagerð.

 

 

2        Sorphirðugjöld:

Hreppsráð felur samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefnd að gera tillögu að nýrri gjaldskrá og samþykkt um meðferð sorpmála og skila til hreppsnefndar.

 

Nefndin er sammála því að vinna af heilindum að nýrri samþykkt um meðferð sorpmála í sveitarfélaginu en vísar erindi um gjaldskrá til sveitarstjóra.  Lesið var upp erindi frá Agnesi Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra hjá Íslenska Gámafélaginu þar sem fram kemur áskorun til sveitarfélagsins um að taka upp þriggja flokka kerfi við sorphirðingu.  Nefndarmenn eru sammála um mikilvægi þess að fá kynningu á þessu og öðrum sambærilegum hugmyndum t.d. tveggja flokka kerfi sem allra fyrst bæði fyrir nefndarmenn og þá sveitarstjórnarmenn sem áhuga hafa á að kynni sér þennan málaflokk nánar. 

Í framhaldi af þessu varð mikil umræða um Gámasvæði sveitarfélagsins og þá óæskilegu umgengni sem þar viðgengst.  Sú hugmynd kom fram hvort að ekki komi til greina að setja á fót eitt sameiginlegt gámasvæði vestan við Helluþorp, sem sinnt gæti öllu sveitarfélaginu.  Slíkt gámasvæði þarf að vera afgirt og vaktað en hafa skipulagðan og auglýstan opnunartíma.  Það er skoðun nefndarinnar að með tilkomu flokkunar húsasorps muni þörf fyrir gámasvæði minnka.   Bent er á mikilvægi þess að framtíðargámasvæði verði fundið sem allra fyrst.

 

 

3     Umferðarmerki:

Örn Þórðarson fyrv. sveitarstjóri framsendi  eftirfarandi erindi til nefndarinnar:

Er hægt að koma því til leiðar að umferðarmerki, til að draga úr hraða og vara við umferð fótgangandi séu sett upp í nágrenni sumarhúsalóða.

Umræddar lóðir eru í landi Haukadals norður svæði.

Kveðja  Ragnar Jónatansson   Fjallalind 36 201 Kópavogi.

Beiðni þessi var rædd frá ýmsum hliðum og fram kom að áþekkar beiðnir hafa borist til nefndarmanna frá öðrum aðilum.  Nefndin beinir því til sveitarstjórnar að hún hlutist til um að sett verði upp umferðarmerki sem vari ökumenn við gangandi umferð í nágrenni við sumarhúsabyggðina við Haukadal (norður svæði) og á sama hátt við sumarhúsabyggðina við Gíslholtsvatn, en á báðum þessum svæðum er talsvert um að fólk sé gangandi á þeim akbrautum sem liggja þar í gegn.

 

 

4        Umhverfisverðlaun:

Farið var yfir þær tilnefningar sem borist hafa samkvæmt neðanskráðum flokkum.  Nefndin var sammála um að veita einungis viðurkenningar í þeim flokkum, þar sem tilnefningar bárust.  Eftirfarandi var samþykkt.

 

Snyrtilegasta lögbýlið innan sveitarfélagsins er Unhóll  I og II

Fegursti/snyrtilegasti garður í dreifbýli er á Kornbrekkum

Fegursti/snyrtilegasti garður í Þéttbýli er á Heiðvangi 22 á Hellu

Snyrtilegasta fyrirtækið eða stofnun innan sveitarfélagsins er Árhús á Hellu

 

Ekki bárust tilnefningar um fegursta/snyrtilegasta umhverfi sumarhúss í sveitarfélaginu.

 

Sigurgeir og Anna María tóku að sér að koma af stað vinnu við verðlaunagripi með það að leiðarljósi að hægt verði að afhenda verðlaunin á Töðugjaldahátíðinni  n.k. laugardag.  Farið er fram á að sveitarstjórn annist greiðslu á tilfallandi kostnaði vegna verðlaunagripanna, sem er áætlaður að verði nálægt  60.000 kr.

 

 

 

5        Önnur mál:

 

a)      Nokkar umræður urðu um nefnd um Friðlandið að Fjallabaki og fram kom spurning um hver væri fulltrúi Rangárþings ytra í þeirri nefnd ?  Rætt var um mikilvægi þess að ef sú nefnd sé starfandi, þá væri eðlilegt að fulltrúi samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar ætti sæti í nefndinni.

b)      Fram kom fyrirspurn um hringlaga hestagerði sem staðsett er vestan við gámasvæðið á Hellu og á hvers vegum það sé og hvort að það hafi verið reist samkvæmt leyfi frá sveitarfélaginu?  Ábendingar hafa borist um að umrætt hestagerði sé ekkert notað, en sé mikið lýti á umgjörð svæðisins.  Nefndin er sammála um mikilvægi þess að hestagerðið sé fjarlægt sem fyrst  þ.e. ef stöðuleyfi er ekki til staðar.

c)      Mikil umræða varð um umhverfi nokkurra fyrirtækja í sveitarfélaginu og hversu ásýnd byggðakjarnans á Hellu hefur versnað síðustu ár, þá einkanlega austur með þjóðvegi nr. 1.  Nefndin beinir þeim tilmælum til hreppsnefndar að hún hlutist til um að send verði áskorunarbréf á öll fyrirtæki í sveitarfélaginu þar sem menn eru vinsamlegst beðnir um að taka til á lóðum sínum og bæta þannig ásýnd sveitarfélagsins.

 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl.17:30.

 

Fundargerð ritaði Sigurgeir Guðmundsson

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn