Stjórnsýsla
26.8.2010 22:52
14. fundur Samgöngunefndar
14. fundur samgöngunefndar Rangárþings ytra 2006 - 2010
haldinn á Hellu 5. maí 2010 kl. 9:00.
Fundargerð:
Fundinn sáttu Engilbert Olgeirsson, Sigurbjartur Pálsson, Þröstur Guðnason og Örn Þórðarson.
Dagskrá:
1. Vegaslóðar á Landmannaafrétti og Rangarvallaafrétti
Búið er að uppfæra kort með ábendingum heimamanna og frá opnum fundi sem haldinn var á Laugalandi 11. janúar sl. Gera þarf lítilsháttar breytingar á kortinu áður en það verður sent til nefndar sem er að skoða þessi mál á vegum ríkisins.
2. Styrkvegaframvæmdir 2009
2.1 Formaður lagði fram yfirlit um styrkvegaframkæmdir árið 2009 og uppgjör við Vegagerðina.
2.2 Nefndin vill vekja athygli á að verulegar úrbætur hafa verið gerðar á vegum að nokkrum nátturuperlum innan sveitarfélagsins á síðasta ári, s.s að Landréttum í Réttarnesi og að Þjófafossi og Skarfanesi.
3. Styrkvegaframvæmdir 2010
3.1 Formaður kynnti umsókn um vegabætur á Holtamannaafrétti, sem Ásahreppur og Rangárþing ytra sendu sameiginlega.
3.2 Lögð fram umsókn um styrk til viðhalds á styrkvegum í Rangárþingi ytra árið 2010.
3.3 Rætt var um helstu verkefni sem brýnt væri að fara í á þessu ári, ef fjármagn fæst til áframhaldandi vegabóta. Nefndin telur að vegabætur á Reykjadalaleið um Pokahrygg og að Laufafelli eigi að vera aðalverkefni þessa árs.
3.4 Ákveðið var að hefla styrkvegi eins og undanfarin ár og það verði gert við fyrstu hentugleika m.t.t. snjóalaga og aurbleytu.
4. Hálendisvegir
Rætt var um slæmt ástand á Fjallabaksleið syðri frá Keldum að Hafrafelli. Samþykkt að formaður sendi bréf til Vegagerðar með ósk um um að gerðar verði endurbætur á þeim kafla sem fyrst.
5. Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2009 – 2012
Formaður kynnti tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2009 – 2012, sem lögð var fram á Alþingi á dögunum og er aðgengileg á vef Alþingis.
6. Umferðaröryggisáætlun
Engilbert, Þröstur og Örn funduðu með Sigurði Helgasyni frá Umferðarstofu 17. mars sl. Á þeim fundi kynnti Sigurður hvernig standa skuli að gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélög. Sigurður hvatti sveitarfélagið til að gera slíka áætlun. Samgöngunefnd telur eðlilegt að slík ákvörðun verði tekin af nýrri sveitarstjórn og samgöngunefnd.
6. Önnur mál
Þar sem þetta er síðasti fundur nefndarinnar á kjörtímabilinu vilja nefndarmenn þakka fulltrúum sveitarfélagsins, verktökum og Vegagerðinni fyrir gott og áranguríkt samstarf. Nefndarmenn þökkuðu hvor öðrum fyrir samstarfið sem var í alla staði mjög gott.
Fleira ekk gert og fundi slitið kl.10:45,
Þröstur Guðnason, fundarritari.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001