Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

26.8.2010 22:41

1.fundur Samgöngu- hálendis og umhverfisnefnd


1. fundur samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar

Rangárþings ytra 2010 - 2014

haldinn á Hellu 12. júlí 2010 kl. 19:00.

 

Fundargerð:

 

Fundinn sátu Sigurgeir Guðmundsson, Þröstur Guðnason, Anne Baue, Anna María Kristjánsdóttir og Ingvar P. Guðbjörnsson.  Einnig Örn Þórðarson sveitarstjóri.

 

Dagskrá:

 

1.        Erindisbréf.

Rætt um verksvið nefndarinnar.  Sigurgeir falið gera tillögu um erindisbréf nefndarinnar í samráði við sveitarstjóra.

 

2.        Kosning formanns.

Tillaga um að Sigurgeir Guðmundsson verði formaður nefndarinnar og Þröstur Guðnason varaformaður.  Ennfremur að Þresti verði falið að rita fundargerðir.

Samþykkt samhljóða. 

 

3.        Styrkvegaframvæmdir 2010.

Fram kom að gera megi ráð fyrir að styrkur að upphæð kr. 3 milljónir fáist úr styrkvegasjóði.  Framkvæmt hefur verið fyrir 1 milljón króna, þannig að tvær milljónir eru til ráðstöfunar. Stefnt er að skoðunarferð undir mánaðarmót ágúst/september.  Sveitarstjóra falið að undirbúa ferðina.

 

4.        Tunnuvæðing.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu tunnuvæðingar.  Fram kom að dráttur hefur verið á framkvæmd verkefnisins.  Samþykkt að fá kynningu á þeim valkostum sem bjóðast varðandi tunnuvæðingu.  Sveitarstjóra falið að undirbúa kynninguna.

 

5.        Urðun.

Rætt um erindi sem send hafa verið vegna urðunar á almennu sorpi á Strönd.  Sveitarstjóri fór yfir stöðu mála.

 

6.        Brennslustöð.

Unnin hefur verið forkönnun á hagkvæmni reksturs brennslustöðvar.  Niðurstöður hafa verið yfirfrarnar af Orkuveitu Reykjavíkur og liggur fyrir að skoða þurfi málið nánar í samstarfi við OR og Sorpstöð Rangárvallasýslu.

 

7.        Rammaskipulag friðlands að fjallabaki.

Farið yfir stöðu mála.  Fram kom að deiliskipulag tiltekinna svæða innan friðlandsmarka er á lokastigum skipulagsferlis.  Vinna þarf deiliskipulag fyrir þau svæði sem eftir standa og samhæfa í rammaskipulagi, sem yrði vinnugagn varðandi framtíðarstefnu skipulagsmála í friðlandinu.

 

8.        Frárennslismál.

Farið fyrir stöðu frárennslismála á Hellu.  Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna framkvæmda á nýrri lögn og hreinsimannvirki.

 

9.        Vatnsveitumál.

Farið yfir stöðu vatnsveitumála.  Fram kom að vatnsöflun og –dreifing hefur verið styrkt á síðustu misserum. Einnig hefur verið dregið úr vatnssóun.  Fyrir liggja framkvæmdir við virkjun Kerauga og styrking vatnsveitu í tengslum við þær framkvæmdir.  Framkvæmdir eru á forræði Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.

 

10.    Önnur mál.

a)      Umhverfisátak.

Samþykkt að fara í umhverfis- og fegrunarátak.  Formanni falið að útfæra auglýsingu varðandi málið í samráði við nefndarmenn og sveitarstjóra að láta birta hana í næsta hefti Búkollu.

b)      Merkingar og skiltamál.

Rætt um merkingar og skiltamál við þjóðvegi.  Fram kom að bæta má ástand þeirra mála.  Formanni falið að gera úttekt á málinu.

c)      Brú við Bakkabæji.

Rætt um mikilvægi brúar yfir Þverá eða Hólsá.  Formanni falið að ræða við formann Almannavarnanefndar um málið og vinna það áfram.

d)     Fornar minjar á hálendinu.

Rætt fornar minjar á hálendinu.  Skoða þarf varðveislu þeirra.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21:00

 

Þröstur Guðnason, fundarritari.

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn