Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

26.8.2010 22:35

13. fundur Samgöngunefndar


13. fundur samgöngunefndar Rangárþings ytra

haldinn að Hellu 6. október 2009 kl. 8:30.

 

Fundargerð:

 

Fundinn sáttu Engilbert Olgeirsson, Sigurbjartur Pálsson, Þröstur Guðnason og Örn Þórðarson. Auk þess voru fjallskilanefndir Landmannaafréttar og Rangárvallaafréttar með í umræðum í tveimur fyrstu dagskrárliðum.

Dagskrá:

1.         Vegslóðar á Landmannaafrétti og Rangárvallaafrétti

Farið var yfir kort þar sem búið var að merkja inn alla vegslóða á afréttunum og þeim verið skipt upp sem opnir eða vegir með takmarkaða notkun. Gerðar voru smávægilegar breytingar á þessu.

 

2.         Fjallabaksleið nyrðri

Hugmyndir um breytingu á legu vegar við Frostastaðaháls.

Rætt var um breytingu á vegstæði við Frostastaðaháls. Fjallskilanefnd Landmannaafréttar er andvíg og mælir með gamla vegstæðinu.  

 

3.         Styrkvegaframkvæmdir í ár

3.1       Greint frá þeim verkefnum sem unnið hefur verið að í ár. Búið er að laga vegi inn á Rangávallaafrétti, verið er að laga Heklubraut.

3.2       Níu aðilar buðu í framkvæmdir á Réttarnesvegi. Farið verður í verkið í nóvember.

Vegur að Þjófafossi verður líka lagaður í haust.

 

4.         Vegur frá Háfi að Sandhólaferju

Þennan veg verður eitthvað að laga en hann er 7 km. langur. Hægt að taka efni á sitt hvorum enda, einnig var rætt um að laga þyrfti kafla í Ástarbraut.

 

5.         Héraðsvegir

Vegagerðinni hefur verið sendur listi yfir heimreiðir sem helst er þörf á að lagfæra og/eða hefla samkvæmt ábendingum sem borist hafa frá póstbílstjórum.

 

6.         Önnur mál.

6.1       Rætt um ónógan frágang á vegköntum og heflun á nýlögðum ofaníburði á Árbæjarvegi.

6.2       Örn nefndi hugsanlega breytingu á legu vegar við Lyngás.

 

 

Fundi slitið kl. 10:40.

Þröstur Guðnason, fundarritari.

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn