Stjórnsýsla
26.8.2010 22:33
11. Fundur Samgöngunefndar
11. fundur samgöngunefndar Rangárþings ytra 2006 - 2010
haldinn á Hellu 24. ágúst 2009 kl. 9:00.
Fundargerð:
Fundinn sátu Engilbert Olgeirsson, Sigurbjartur Pálsson, Þröstur Guðnason og Örn Þórðarson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkoma.
Styrkvegir innan sveitarfélagsins og framkvæmdir í ár
Fram kom að framlag Vegagerðar til styrkvega er 5 milljónir 2009 og voru 4 milljónir á síðasta ári. Verið er að laga vegi að Hungurfit og Krók á Rangárvallaafrétti, sem átti að framkvæma í fyrra en var frestað vegna vætutíðar.
Ákveðið að fara í lagfæringar á vegi heim að Fossi og hefla að Reynifelli og hreinsa ristahlið þar. Einnig verður borið í Ástarbraut að hluta og Heklubraut, á þeim kafla sem ekki hefur verið borið í á síðustu árum.
Styrkvegir hafa verið heflaðir svipað og undanfarin ár.
2. Nýir vegir á styrkvegaskrá sveitarfélagsins
Rætt um nauðsyn þess að laga veg frá Landvegi niður í Réttarnes og veg að Þjófafossi í Skarfanes. Ákveðið að bæta þeim vegum á styrkvegaskrá. Þar sem þetta eru nýir vegir sem til stendur að laga með styrkvegafé var ákveðið fara og skoða aðstæður og ræða við heimamenn og félög sem hagsmuna hafa að gæta. Þessir vegir liggja að miklum nátturuperlum innan sveitarfélagsins.
3. Kortlagning vegslóða á hálendinu
Tekinn var fyrir tölvupóstur frá Sesselju Bjarnadóttur, frá 2. júlí sl., þar sem óskað er eftir kortum með vegum innan miðhálendislínunnar.
Ákveðið að fá betri gögn til að vinna með.
4. Ósk um rallýakstur á vegum og slóðum innan sveitarfélagsins
Fyrirhugaðri keppni hefur verið frestað.
5. Ástand vega í sveitarfélaginu og helstu framkvæmdir í ár
Rætt var um framkvæmdir við vegagerð innan sveitarfélagsins. Ástand malarvega hefur verið slæmt vegna þurrka og ekki verið heflað fyrr en það fór að rigna. Stefnt er að því að taka ristahlið við Bauluskurð á Hagabraut og verið er að bera mulning í Árbæjarveg og Hryggjaveg og færa þar ristahlið.
6. Hraðatakmarkanir í Þykkvabæ
Lagt var til að sett verði upp skilti um takmörkun hámarkshraða innan Þykkvabæjar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30.
Þröstur Guðnason, fundarritari.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001