Stjórnsýsla
3.3.2010 10:16
32. fundur byggingarnefndar
Fundargerð
32. fundur í Byggingarnefnd Rangárþings bs.,
miðvikudaginn 3. mars 2010, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.
Mættir á fundinn sem var settur kl.17.00: Guðjón Sigurðsson, Sigfús Davíðsson, Ágúst Kristjánsson, Pálína Björk Jónsdóttir, Valmundur Gíslason, Björn Guðjónsson, Óskar Pálsson, Rúnar Guðmundsson bfltr., sem ritaði fundargerð og Árni Þorgilsson, aðstoðarmaður byggingafulltrúa. Sigurbjartur Pálsson og Guðfinnur Guðmannsson boðuðu forföll.
Dagskrá.
Ásahreppur:
379-2010 Steinsholt, Ásahreppi - viðbygging við íbúðarhús.
Gísli Gíslason, kt. 260258-5169, Steinsholti, Ásahreppi, sækir um leyfi til að byggja við íbúðarhús sitt að Steinsholti í Ásahreppi, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.
380-2010 Búðarhálsvirkjun, Ásahreppi – stöðuleyfi fyrir vinnubúðir
Kristinn Eiríksson fh.Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík kt. 420269-1299, óskar eftir að fá stöðuleyfi fyrir vinnubúðum verktaka vegna Búðarhálsvirkjunar í Ásahreppi samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Um er að ræða vinnubúðir fyrir 50 manns, sem samanstanda af mötuneyti, skrifstofu og 2 svefnálmum og munu standa til ársins 2013.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.
Rangárþing eystra:
381-2010 Álfhólar, Rangárþingi eystra – stöðuleyfi fyrir sumarhúsi.
Rósa Valdimarsdóttir, kt. 021055-3879, Þingási 49, 110 Reykjavík, óskar eftir stöðuleyfi fyrir 25 fm. sumarhúsi að Álfhólum í Rangárþingi eystra samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Húsið verður flutt úr Reykjavík.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.
382-2010 Hvolstún 20, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi.
Sigurborg Þ. Óskarsdóttir, kt. 010153-3289, Nýbýlavegi 42, Hvolsvelli, óskar eftir byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Hvolstúni 20, Hvolsvelli, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.
383-2010 Austurvegur 3, Rangárþingi eystra - Leyfi fyrir tanki.
Svavar M. Sigurjónsson, sækir um fh. N1 hf, Dalvegi 10-14, pósthólf 8200, 200 Kópavogi leyfi til að setja niður tank fyrir litaða olíu í eyju á milli þjóðvegar og lóðar, samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Samþykkt.
384-2010 Hlíðarvegur 17, Rangárþingi eystra - breyting á húsnæði.
Barði Jóhannsson sækir um fh. Bang ehf. kt. 601200-3090, Háteigsvegi 50, 105 Reykjavík, að breyta atvinnuhúsnæði félagsins að Hlíðarvegi 17 á Hvolsvelli, fastanr. 219-4817, í íbúðarhúsnæði, samkvæmt meðfylgjandi bréfi.
Samþykkt. Ágúst Kristjánsson vék af fundi við afgreiðsu málsins.
385-2010 Strandarhjáleiga, Rangárþingi eystra - breytt stærð hesthúss.
Daníel Gunnarsson, kt. 240952-2629 og Kristrún Guðmundsdóttir, kt. 150553-2619, Stuðlaseli 38, 109 Reykjavík, sækja um leyfi til að breyta stærð hesthúss sem samþykkt var 2. sept. 2009. Breytingin felur í sér að húsið er stytt og breikkað.
Samþykkt.
386-2010 Norðurgarður 9, Rangárþingi eystra - breytt notkun húsnæðis.
Kristín S. Jónsdóttir, kt. 080751-4199, Álfaheiði 14, 200 Kópavogi, óskar eftir að hús sitt að Norðurgarði 9 á Hvolsvelli, verði breytt úr teiknistofu í íbúðarhúsnæði.
Samþykkt.
Rangárþing ytra:
387-2010 Ketilsstaðir, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir frístundahúsi.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, kt. 630591-1129, Hlíðarsmára 14, 201 Kópavogi, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð sinni í landi Ketilsstaða í Rangárþingi ytra, landnr. 175384, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Samþykkt.
388-2010 Bakkasel úr Efra-Seli, Rangárþingi ytra - stöðuleyfi fyrir sumarhúsi.
Íris Marelsdóttir, kt. 050761-3399 og Árni Ingólfsson, kt. 150561-2649, Hlíðarhjalla 35, 200 Kópavogi, sækja um stöðuleyfi fyrir sumarhúsi að Bakkaseli, lóð F1, úr landi Efra-Sels, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Húsið verður flutt á staðinn í heilu lagi.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.
389-2010 Suðurlandsvegur 6, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu.
Sláturhús Hellu hf. kt. 511001-2180, Suðurlandsvegi 8, Hellu, sækir um að fá að byggja við hús sitt að Suðurlandsvegi 6, Hellu, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt. Guðjón Sigurðsson vék af fundi við afgreiðsu málsins.
390-2010 Rangá, Rangárþingi ytra - breyting á húsnæði og viðbygging.
Sæmundur Birgir Ágústsson, sækir um fh. Veiðifélags Ytri Rangár, kt. 691092-2599, Bjólu, 851 Hellu, leyfi til að breyta véla- og verkfærageymslu í veiðihús
og byggja skyggni, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt með fyrirvara um nánari gögn.
391 2010 Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að Lyngási, Rangárþingi ytra.
Pálína Kristinsdóttir kt. 130740-3599, sækir um leyfi til byggingar íbúðarhúss að Lyngási, samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Um er að ræða aðflutt hús.
Byggingarnefnd hafnar umsókninni, þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af svæðinu.
Ekki fleira gert og fundi slitið kl.18.00
Guðjón Sigurðsson Ágúst Kristjánsson
Óskar Pálsson Björn Guðjónsson
Pálína Björk Jónsdóttir Rúnar Guðmundsson
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001