Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

3.2.2010 10:13

31. fundur byggingarnefndar


Fundargerð

 31. fundur í Byggingarnefnd Rangárþings bs.,

miðvikudaginn 3. febrúar 2010, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.

Mættir á fundinn sem var settur kl.17.00: Sigurbjartur Pálsson boðar forföll, varamaður Valmundur Gíslason, Guðjón Sigurðsson, Sigfús Davíðsson boðaði forföll, Ágúst Kristjánsson, Guðfinnur Guðmannsson, Pálína Björk Jónsdóttir,  Björn Guðjónsson, Rúnar Guðmundsson bfltr., sem ritaði fundargerð og Árni Þorgilsson, aðstoðarmaður byggingafulltrúa.

Dagskrá.

Rangárþing eystra:

 

367-2010  Nýbýlavegur 32 og 34,  Rangárþingi eystra – leyfi til að klæða hús.

Hjálmar Ingvarsson, sækir um fh. Rangárþings eystra, kt. 470602-2440, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli,  leyfi til að klæða að utan húsin við Nýbýlaveg 32 og 34 á Hvolsvelli. Um er að ræða slétta klæðningu sambærilega og

Steni-klæðning/Duropal.

Samþykkt.

 

368-2010  Hlíðarvegur 16, Rangárþingi eystra – breyting á innra skipulagi lögreglustöðvar.

Gylfi Guðjónsson, sækir um fh. Fasteigna ríkissjóðs, kt. 540269-6459, Borgartúni 7, Reykjavík, leyfi til að breyta innra skipulagi lögreglustöðvarinnar sem er á neðri hæð hússins að Hlíðarvegi 16 á Hvolsvelli, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

369-2010  Austurveg 1, Rangárþingi eystra - breytt útlit og innra fyrirkomulag.

Sigurður Einarsson, sækir um fh. Umtaks fasteignafélags ehf. kt. 420307-3300, Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi, leyfi til að breyta útliti og innra skipulagi hússins að Austurvegi 1 á Hvolsvelli, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

370-2010  Húsadalur í Þórsmörk, Rangárþingi eystra - byggingarleyfi fyrir aðstöðuhúsi.

Bandalag íslenskra farfugla, kt. 440169-1559, Borgartúni 6, 105 Reykjavík, sækja um byggingarleyfi fyrir geymslu og skýli og gera breytingar á eldhúsi við hús sitt í Húsadal í Þórsmörk, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

371-2010  Hái-Múli 12, Rangárþingi eystra - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu.

Hólmar Örn Ólafsson, kt. 060570-4429, Hraunbæ 144, 110 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við sumarhús sitt að Háa-Múla nr. 12 í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um samþykki lóðarhafa.

 

372-2010 Dufþaksbraut 10A, Rangárþingi eystra - breytt útlit verslunarhúss.

Haukur Guðni Kristjánsson, sækir um fh. Húsasmiðjunnar Hvolsvelli, kt.520171-0299, Holtavegi 10, 104 Reykjavík, leyfi til að bæta við einni gönguhurð á framhlið hússins, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Einnig er um að ræða að setja upp

úti-garð með skjólveggjum fyrir utan ofangreinda hurð.

Samþykkt.

 

373-2010  Hallgeirseyjarhjáleiga 2, Rangárþingi eystra - byggingarleyfi fyrir bílskúr.

Bjarki Rúnar Arnarson, kt. 010478-5379, Túngötu 14, 430 Suðureyri, sækir um byggingarleyfi fyrir bílskúr á lóð sinni í Hallgeirseyjarhjáleigu 2, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.

 

Rangárþing ytra:

 

374-2010  Merkihvoll lóð 15, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu.

Pálmi F. Thorarensen, kt. 300945-7169, Glaðheimum 22, 104 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við sumarhús sitt að Merkihvoli lóð 15 í Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

375-2010  Haukadalur lóð 13N, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.

Ragnar Jónatansson, kt. 061057-3669, Fjallalind 36, 201 Kópavogi, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi á lóð sinni nr. 13N í landi Haukadals í Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Um er að ræða nýtt, aðflutt hús.

Samþykkt.

 

376-2010  Borg, lóð 1 og 4, Þykkvabæ, Rangárþingi ytra - leyfi fyrir breytingu á gluggum.

Bæring Sæmundsson, kt. 181152-4789, Stúfholti 1, 105 Reykjavík, sækir um fh. Íslandsbanka, leyfi til útlitsbreytinga og breytinga á gluggum á húsi að Borg,

lóð 1 og 4, í Þykkvabæ, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

377-2010  Kaldakinn lóð 10, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.

Jón Þór Sævarsson, kt. 241254-7719, Steinahlíð 8, 221 Hafnarfirði, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi á lóð nr. 10 í Köldukinn í Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Samþykkt.

 

378-2010  Lyngás 1, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi.

Pálína Kristinsdóttir, kt. 130740-3599, Lyngási 1, Rangárþingi ytra, sækir um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Lyngási 1, Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.  Húsið sem um ræðir verður flutt í heilu lagi á lóð á Lyngási 1.

Afgreiðslu frestað.

 

 

Ekki fleira gert og fundi slitið kl.18.00

 

Valmundur Gíslason                                             Sigfús Davíðsson

 

 

Guðjón Sigurðsson                                               Ágúst Kristjánsson

 

 

Guðfinnur Guðmannsson                                       Björn Guðjónsson

 

 Pálína Björk Jónsdóttir                                         Rúnar Guðmundsson                      


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn