Stjórnsýsla
25.2.2010 13:57
48. fundur hreppsráðs
Hreppsráð Rangárþings ytra
Fundargerð
48. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra, kjörtímabilið 2006 – 2010,
haldinn að Suðurlandsvegi 1, Hellu, fimmtudaginn 25. febrúar 2010, kl. 13:00.
Mættir: Sigurbjartur Pálsson, Ingvar Pétur Guðbjörnsson og Ólafur E. Júlíusson. Að auki Örn Þórðarson sem ritaði fundargerð.
1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til staðfestingar eða kynningar:
1.1. Endurskoðun aðalskipulags, 16. fundur 16. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.2. Íþrótta- og æskulýðsnefnd, 33. fundur 17. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.3. Ungmennaráð, 3. fundur 10. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.4. Barnaverndarnefnd Rangárvalla- og V.Skaftafellsýslu, 42. fundur, 3. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.5. Fjallskilanefnd Holtamannaafréttar, fundur 18. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.6. Þjórsársveitir stýrihópur, fundur, 15. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.7. SASS, 431. fundur, 12. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.8. Skólaskrifstofa Suðurlands, 119. fundur, 15. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.9. Sorpstöð Suðurlands, 186. fundur, 12. febrúar 2010.
Til kynningar.
1.10. Heilbrigðisnefnd Suðurlands, 124. fundur, 4. febrúar 2010.
Til kynningar.
2. Landskipti, stofnun lögbýla og tengd erindi:
2.1. Haukadalur, landskipti.
Hreppsráð gerir ekki athugasemd við að skipt verði úr jörðinni Haukadal (lnr. 164500) ræktunarlóð með landnr. 219110 (20.205 fm.). Engin afstaða er tekin til eignarhalds eða landamerkja.
Samþykkt samhljóða.
3. Umsóknir um lóðir og tengd erindi:
3.1. Seltún, 6- 12.
Lögð fram umsókn frá Hlymdalir ehf. kt. 440106-1290, um byggingarlóð Seltún 6 – 12 á Hellu. Með vísan í að deiliskipulag vegna umræddra lóða hefur ekki verið staðfest er afgreiðslu umsóknarinnar frestað. Þegar deiliskipulag hefur verið staðfest verða umræddar lóðir auglýstar í samræmi við úthlutunarreglur í Rangárþingi ytra, þar sem segir að lóðir skuli vera auglýstar áður en þeim er úthlutað í fyrsta sinn.
Samþykkt samhljóða.
3.2. Dynskálar 50.
Lögð fram umsókn frá Torfa Sigurðssyni. kt. 110763-7949, um byggingarlóð Dynskálar 50 á Hellu. Með vísan í að deiliskipulag vegna umræddrar lóðar hefur ekki verið staðfest er afgreiðslu umsóknarinnar frestað. Sveitarstjóra falið að auglýsa umrædda lóð þegar deiliskipulag hefur verið staðfest, í samræmi við úthlutunarreglna lóða í Rangárþingi ytra, þar sem segir að lóðir skuli vera auglýstar áður en þeim er úthlutað í fyrsta sinn.
Samþykkt samhljóða. Ingvar Pétur Guðbjörnsson tekur ekki þátt í afgreiðslu vegna vanhæfis.
4. Skipulagsmál og tengd erindi:
4.1. Haukadalur, flugvöllur.
Athugasemdum við flugvöll í Haukadal, vísað til skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
4.2. Aðalskipulag, athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Sveitarstjóra falið að láta bregðast við athugasemdum Skipulagsstofnunar.
Samþykkt samhljóða.
5. Orkufrekur iðnaður og orkunýting í sveitarfélaginu.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu.
Samþykkt samhljóða.
6. Ráðstöfun á beitilandi og túnum Geldingalækjar.
Sveitarstjóra falið að óska eftir fundi með landgræðslustjóra vegna málsins og kynna fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar.
Samþykkt samhljóða.
7. Umferðarljós á brú yfir Ytri Rangá, fyrir ríðandi umferð.
Erindinu vísað til samgöngunefndar til umsagnar.
Samþykkt samhljóða.
8. Tilfærsla málefna fatlaðra, tilnefning í starfshóp.
Sveitarstjóra falið að vera fulltrúi sveitarfélagsins í starfshópnum.
Samþykkt samhljóða.
9. Viðlagatrygging Íslands, brunatrygging mannvirkja.
Til kynningar.
10. Morgunmatur í Grunnskólanum Hellu, viðhorfskönnun.
Til kynningar.
11. Fornar grjóthlaðnar fjárréttir.
Til kynningar.
12. Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010, kjörskrá.
Sveitarstjóra falið að staðfesta kjörskrá og leggja fram á skrifstofu sveitarfélagsins, í samræmi við lög nr. 4/2010.
Samþykkt samhljóða.
F. Fundarboð, ráðstefnur, námskeið, þjónusta og umsóknir um styrki:
F.1. Kartöfluball Þykkvabæ, styrkumsókn.
Fallist er á erindið um endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsinu í Þykkvabæ.
Samþykkt samhljóða.
F.2. Norðurlandamót í fimleikum, styrksumsókn.
Fallist er á erindið um styrk að upphæð 15.000,- kr.
Samþykkt samhljóða.
F.3. Eyjan okkar, vöru- og þjónustusýning.
Hreppsráð sér sér ekki fært að verða við erindinu um þátttöku í sýningunni.
Samþykkt samhljóða.
F.4. Öruggt samfélag, alþjóðleg ráðstefna.
Til kynningar.
F.5. Góðverkardagar, styrkumsókn.
Hreppsráð sér sér ekki fært að verða við erindinu um styrk til verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
G. Annað efni til kynningar:
G.1. Iðnaðarráðuneytið, Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, vegna auðlinda- og umhverfisskatts.
G.2. Samband íslenskra sveitarfélaga, staðgreiðsluuppgjör 2009.
G.3. Fornleifavernd ríkisins; Reynifell, Hella iðnaðarsvæði, Hella athafna- og þjónustusvæði, Bakkasel.
G.4. Markaðsstofa Suðurlands, yfirlit.
G.5. SASS, framtíðarfyrirkomulag upplýsingamiðstöðva.
G.6. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Suðurlandi, skýrsla vegna yfirfærslu til sveitarfélaga.
G.7. Landvarsla Nýjadal, starfsskýrsla landvarðar.
G.8. Sýslumaður á Hvolsvelli, þingslýst skjöl.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:00.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001