Stjórnsýsla
22.2.2010 11:33
32. fundur íþrótta- og tómstundanefndar
32. fundur íþrótta- og tómstundanefndar Rangárþings ytra kjörtímabilið 2006 - 2010, haldinn að Suðurlandsvegi 1 á Hellu, miðvikudaginn 27. janúar 2010, kl. 17:00.
Mætt: Helga Fjóla Guðnadóttir formaður, Snæbjört Ýrr Einarsdóttir, Lovísa Björk Sigurðardóttir, Anna Björg Stefánsdóttir og Guðni Sighvatsson. Fundinn sat einnig Jón Pétur Róbertsson Íþrótta- og tómstundafulltrúi sem ritaði fundargerð.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
Unnið verði áfram að lokagerð samningsins en mikilvægt að samræma kostnað og gjöld þeirra sem að samfellunni koma.
Gögn lögð fram um stefnu sveitarfélagsins í íþrótta- og tómstundamálum. Nefndin fagnar þessum gögnum og vonar að vinnan við gerð hennar verði kláruð sem fyrst til að skapa rétt vinnuumhverfi fyrir þá starfsmenn sem að málaflokknum koma.
Nefndin telur mjög nauðsynlegt að upplýsingar um íþrótta- og tómstundaviðburði og æfingar íþrótta- og ungmennafélaga í sveitarfélaginu verði aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Guðni Sighvatsson lagði fram tillögu um mikilvægi þess að vinna gegn notkun munntóbaks í íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins. Nefndin tekur vel undir þessa tillögu og Jóni Pétri falið að kanna forvarnir í þessum málaflokki.
Guðni Sighvatsson lagði fram gögn um rök fyrir hækkun aldurstakmarks á þorrablótum.
Guðni leggur einnig fram tillögu sem er svohljóðandi: „ Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við sveitarstjórn Rangárþings ytra að sveitarfélagið ákveði að leigja ekki né lána út húsnæði í eigu sveitarfélagsins fyrir opinberar og auglýstar skemmtanir þar sem neysla áfengis fer fram nema aldurstakmark sé 18 ár og því fylgt eftir. Sveitarfélagið getur ekki fríað sig af þeirri ábyrgð af því sem gerist í húsakynnum þess“. Sammþykkt, en HFG, SNE og ABS sitja hjá.
5.1. Fundargerðir frá Strandavelli ehf
5.2. Lífshlaupið, fræðslu og hvatningarverkefni ÍSÍ
5.3. Forvarnarhópur Rangárþings. Fundur 25. Janúar 2010
Fögnum þessum fundargerðum en felum Jóni Pétri að fá fundargerðir frá fleiri íþrótta- og ungmennafélögum.
Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona sem spilar með Val.
Næsti fundur er miðvikudaginn 17.febrúar 2010 kl.17:00.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001