Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

11.2.2010 11:46

25. fundur fræðslunefndar


Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps

F U N D A R G E R Ð

 

25. fundur fræðslunefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, haldinn fimmtudaginn 16. janúar kl. 17:00 að Suðurlandsvegi 1 á Hellu.

 

Mætt: Ingvar P. Guðbjörnsson, Ragnar Pálsson, Guðfinna Þorvaldsdóttir, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, Valgerður Brynjólfsdóttir, Egill Sigurðsson og Erlingur Jensson. Renate Hannemann boðaði forföll.

 

Að auki: Sigurjón Bjarnason, fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Björg Sigurjónsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra, Una Sölvadóttir, fulltrúi grunnskólakennara við 1. lið. Björg Kr. Björgvinsdóttir, fulltrúi grunnskólakennara við 2. lið,  Guðbjörg Ísleifsdóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóla, Helga Dagrún Helgadóttir, fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Sigurgeir Guðmundsson, skólastjóri Grunnskólans Hellu við 1. lið, Sigrún Björk Benediktsdóttir, leikskólastjóri leikskólans á Laugalandi við 3. lið. Fulltrúi leikskólabarna mætti ekki..

 

Fyrir fundinn var farið í vettvangsferð í nýtt húsnæði skóladagheimilis  á Hellu. Nýr leikskólagarður við Heklukot skoðaður. Ný standsett kennslustofa 1. bekkjar á Hellu skoðuð og fyrirhuguð útistofa við Grunnskólann á Hellu skoðuð.

 

Formaður setti fund, stjórnaði honum og ritaði fundargerð.

 

Lögð fram tillaga að breytingu á dagskrá um að við bætist nýr liður 4d) “Umsókn um skólavist”. Aðrir liðir færist neðar á dagskrá sem við á.

Samþykkt samhljóða.

Dagskrá:

1.      Málefni grunnskólans á Hellu.

a)      Stutt skýrsla frá skólastjóra um skólastarfið.

Skólastjóri fór yfir horfur í skólastarfi. Starfið fer vel af stað. Vel gekk að manna skólann. Hlutfall réttindastarfsmanna er að aukast og einungis 2 leiðbeinendur í fullu starfi við skólann á haustönn og annar af þeim lýkur grunnskólakennaranámi um áramót. Umgengni um skólahúsið er með betra móti sem skólastjóri telur að sé tilkomið vegna þátttöku skólans í grænfánaverkefninu þar sem umhverfis sjónarmið eru í hávegum höfð. Nemendafjöldi er 163 og nemendur sem nýta skóladagheimili eru 44. Í skólaakstri eru 41 barn. Nær öll börn snæða í mötuneyti skólans. 23 kennarar starfa við skólann að meðtöldum stjórnendum og 6 skólaliðar/stuðningsfulltrúar. 4 starfsmenn starfa við mötuneytið og 4 starfa við skólaakstur.

 

Umræða um „ávaxtatíma“ á morgnana og vankanta þeim tengdum hafa verið í umræðunni. Formanni fræðslunefndar falið að skoða máið og koma með tillögur til úrlausna fyrir næsta fund fræðslunefndar.

Samþykkt samhljóða.

Sigurgeir Guðmundsson, Una Sölvadóttir og Helga Dagrún Helgadóttir yfirgáfu fundinn kl 17: 25

 

 

2.      Laugalandsskóli í Holtum

a)      Stutt skýrsla skólastjóra um skólastarfið.

Skólastjóri fór yfir horfur í skólastarfi. sagði hann starfið fara vel af stað. 19 starfsmenn væru starfandi við skólann í mismiklu starfshlutfalli, þar af 10 kennarar að stjórnendum meðtöldum. Valgreinar eru með svipuðu sniði og í fyrra, málmsmíði, textilmennt, trésmíði, glervinnsla, leiklist , tónlist og þýska. nemendur við skólann eru 92. Fram kom að aðgerðaráætlun vegna sóttvarna hefur verið unnin og er aðgengileg á heimasíðu.

 

b)      Trúnaðarmál

Fært í trúnaðarmálabók

 

c)      Trúnaðarmál

Fært í trúnaðarmálabók

 

d)     Trúnaðarmál

Fært í trúnaðarmálabók

 

e)      Starfsmannahandbók 2009-2010

Skólastjóri fylgdi úr hlaði starfsmannahandbók Laugalandsskóla fyrir skólaárið 2009-2010. Unnið verður áfram að nýrri sjálfsmatsáætlun og í ár verður tekinn fyrir aðbúnaður í skólanum. annað í handbókinni er hefðbundið.

Til kynningar.

 

f)       Skóladagatal 2009-2010.

Skólastjóri fylgdi úr hlaði skóladagatali fyrir Laugalandsskóla fyrir yfirstandandi skólaár. Skóladagar verða 180. Starfsdagar kennara verða 13, þar af 5 á starfstíma nemenda. Skólaslit eru áætluð 31. maí, fræðslunefnd staðfestir skóladagatalið eins og það er lagt fram.

Samþykkt samhljóða

 

g)      Mötuneytismál

Egill Sigurðsson, fullt´rui Ásahrepps upplýsiti að frá og með yfirstandandi skólaári greiðir sveitasjóður Ásahrepps hlut foreldra í Ásahrepp í rekstri mötuneytisins á Laugalandi.

Til kynningar.

Sigurjón Bjarnason vék af fundi kl 18:10,

 

3.      Málefni Leikskólans á Laugalandi

a)      Skóladagatal 2008-2009

Starf leikskólans hefur farið vel af stað eftir sumarleyfi. Fjöldi nemenda er 27, en fjölgar um 1 næstu mánuði og frá áramótum verða 30 nemendur við skólann. 19 börn eru úr Rangárþingi ytra og 8 frá Ásahreppi. Skólastjóri telur að þörf sé á 8 stöðugildum við skólann m.v. nemendafjölda en við skólann starfa 9 starfsmenn í 7,8 stöðugildum. Skólinn hefur heimild fyrir 8,3 stöðugildum skv. ákvörðun sveitarstjórna

s.l vor, Sömu starfsmenn  starfa við skólann frá fyrra ári og viðbætist 1 starfsmaður sem jafnframt er í leikskólakennaranámi áætlað er að innra starfið í vetur verði með svipuðu sniði og sl. vetur. áfram verður unnið að samvinnu milli leik- og grunnskóla. Unnið hefur verið að nýrri skólanámskrá „Viskubrunninum“ sem inniheldur hvorttveggja foreldrahandbók og skólanámskrá. Fréttabréf skólans verður sent út rafrænt líkt og sl. vetur. Skólastjóri kynnti stundaskrá eldri og yngri hóps skólans. fram kom að aðgerðaráætlun vegna sóttvarna hefur verið unnin

 

Umræður:

fram kom ábending um að koma þeim sið á að efsti árgangur skólans gróðursetji tré hvert ár í skógargirðingu við Ásabrekku.

 

b)      Leikskóladagatal 2009-2010

leikskólastjóri fór yfir leikskóladagatalið og helstu viðburði því tengdu. Starfsdagar eru áætlaðir 5, þar af 2 hálfir dagar. Skóladagatalið er hefðbundið að flestu leyti.

Fræðslunefnd staðfestir leikskóladagatalið ein og það er framlagt.

Samþykkt samhljóða

 

c)      Viskubrunnur, foreldrahandbók og skólanámskrá 2009-2010

Leikskólastjóri kynnti „Viskubrunn#, nýja foreldrahandbók og skólanámskrá leikskólans.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

 

4.      Málefni Leikskólans Heklukots

a)      Vistunartími, dagvistargjöld, afslættir o.fl.

lagt er til að skipaður verði 3ja manna vinnuhópur sem endurskoði gjaldskrá, afsláttarmál , ákvæði um vistun og aðlögun vegna beggja leikskóla.

 

 

Eftirtaldir skipa vinnuhópinn: Erlingur Jensson frá ásahreppi og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Ingvar P. Guðbjörnsson frá Rangárþingi ytra. Vinnuhópurinn skili tillögum fyrir næsta fund fræðslunefndar.

Samþykkt samhljóða.

 

b)      Stutt skýrsla leikskólastjóra um skólastarfið

Leikskólastjóri flutti skýrslu um skólastarfið. nemendur við skólann í vetur eru 70, þar af 9 í Gljábæ. Skólinn starfar í 4 deildum. Biðlistar eru í lágmarki. starfsmenn eru 26 talsins. 5 leikskólakennarar og 1 grunnskólakennari starfar við skólann og 3 starfsmenn stunda nám við kennsluskor HÍ og 4 hjá fræðsluneti suðurlands fyrir ófaglærða leikskólastarfsmenn. 6 ART þjálfarar starfa við skólann. Samvinna við grunnskólann er góð og verður þróuð áfram. Unnið er að samstarfi við landgræðslu ríkisins og nemendur fá fræðslu í veðurfræði. Leikskólastjóri greindi frá því að vinna við nýtt útisvæði er á lokastigi, en áfram verður unnið að því að afla ný leiktæki inn á svæðið. Fram kom í máli leikskólastjóra að aðstaða í eldhúsi væri bág og úrbóta þörf eins að gólfefni væru úr sér gengin. jafnframt að skipta þurfi út loftljósum á nokkrum stöðum. Rætt um viðbragðsáætlun vegna sóttvarna.

 

Ragnar Pálsson vék af fundi kl 19:20.

 

c)      Skólanámskrá 2009-2010tutt skýrsla leikskólastjóra um skólastarfið

Leikskólastjóri kynnti skólanámskrá skólans sem verður óbreytt frá fyrra ári. Engar athugasemdir gerðar við námskrána.

samþykkt samhljóða.

 

d)     Umsókn um skólavist

Fært í trúnaðarmálabók.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:45

Ingvar P. Guðbjörnsson, fundaritari.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn