Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

5.3.2010 20:25

Engar fyrirvaralausar hamfarir yfirvofandi

Skjálftavirkni í Eyjafjallajökli

Eldgos myndi valda litlum skaða


Eyjafjallajökull.  Ljósmynd tekin af heimasíðu Fosshótela.
Eyjafjallajökull. Ljósmynd tekin af heimasíðu Fosshótela.

Sérfræðingar meta minni líkur en meiri á eldgosi í Eyjafjallajökli, þrátt fyrir skjálftavirkni síðustu daga.  Engar líkur eru á fyrirvaralausu hamfaraflóði sem myndi ógna öryggi íbúa svæðisins.  Eldgos í Eyjafjallajökli hafa yfirleitt verið minniháttar, kraftlítil og valdið óverulegum skaða.  Engar heimildir eru um mannskaða.

Eldgos í Eyjafjallajökli standast engan samanburð við Kötlugos, síst af öllu með tilliti til almannahættu.  Engu að síður er ástæða til að fygljast vel með framvindu mála.  Hægt er að fylgjast með skjálftavirkni á vef Veðurstofu Íslands: http://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgos/jardskjalftar/myrdalsjokull/ 

Almannavarnir Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu hafa verið virkjaðar á fyrsta háskastigi, þ.e. Óvissustigi.  Í samræmi við rýmingaráætlun í Viðbragðsáætlun, hefur íbúum er búa á svæðum sem þarf að rýma, verið gert viðvart. Í bréfi sem sent var út í dag kemur eftirfarandi fram: 
Rýming vegna goss í Eyjafjallajökli:
Vegna jarðskjálftavirkni í Eyjafjallajökli skal tekið fram að rýming svæðisins er eftirfarandi: Fljótshlíð, allir bæir ofan þjóðvegar að Deild og allir bæir neðan þjóðvegar, Landeyjar, Bakkabæir og Móeiðarhvoll rýma á Hvolsvöll. Vestasti hluti Vestur-Eyjafjalla, þ.e. frá Stóru-Mörk að Heimalandi og allir bæir neðan þjóðvegar að Efri-Hól, rými á Heimaland. Gjósi syðst í jöklinum getur komið til lítilla en snöggra hlaupa, annars vegar á svæðinu frá Núpi að Moldnúpi og hinsvegar á svæðinu frá Þorvaldseyri að Hrútafelli. Á þessum svæðum ber íbúum við fjallið að rýma upp í hlíðina en íbúum neðar á svæðinu að rýma stystu leið burt. Farið verður ýtarlega yfir þessa rýmingu á íbúafundunum.  Fram mun koma í boðun Neyðarlínu til íbúa hvert þeim beri að rýma.

Almannavarnir á svæðinu, í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands og helstu sérfræðinga á sviði jarðvísinda fylgjast vel og stöðugt með framvindu mála, með öryggi og almannaheill í huga.  Hægt er að nálgast ýmsan fróðleik er tengist málinu á heimasíðu Almannavarna ríkisins:  http://www.almannavarnir.is/ meðal annars fréttir sem tengjast ástandi mála í Eyjafjallajökli.

Miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja um ástand mála á svæðinu, er ekki ástæða til að halda því fram að öryggi íbúa eða vegfarenda sé ógnað.  En sé frekari upplýsinga óskað veitir undirritaður þær í síma 898 1429.

Örn Þórðarson
Sveitarstjóri Rangárþings ytra
og fulltrúi í Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn