Menning og Mannlíf
22.2.2010 12:06
Dagný Brynjarsdóttir íþróttamaður ársins
Sunnudaginn 21.febrúar voru afhend verðlaun fyrir íþróttamann ársins 2009 í Rangárþingi ytra.
Fyrir valinu var knattspyrnukonan úr Val, Dagný Brynjarsdóttir.
Snæbjört Ýrr Einarsdóttir varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar afhendi Dagnýju verðlaunin og ræddi við gesti um hversu mikilvægt það er að hafa fyrirmynd í nafni íþróttamanns ársins.
Hún sagði einnig meðal annars í ræðu sinni:
Íþrótta- og tómstundanefnd og sveitarstjórn telja það mjög mikilvægt að íþróttamaður ársins verði valinn á hverju ári í framtíðinni. Íþróttamaðurinn sem valinn er gegnir mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi. Börn og unglingar fá góða fyrirmynd til hvatningar og trú á að þessi leið sé möguleg fyrir öll börn og unglinga í sveitarfélaginu. Börnin og unglingarnir sjá einnig hversu mikilvægt það er að lifa heilsusömu lífi og hvað íþróttir geta verið gefandi.
Við val á íþróttamanni ársins eru fengnar tilnefningar bæði frá íþróttafélögum og einng frá almenningi. Að þessu sinni komu fram fjórar tilnefningar. Það voru:
Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona úr Val
Helgi Ármannssson knattspyrnumaður úr Fram
Rakel Nathalie Kristinsdóttir fimleikakona úr fimleikadeild UMF.Selfoss
Sigurður Sigurðsson hestamaður úr hestamannafélaginu Geysi.
Niðurstaðan var sú að Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona úr Val fékk flest stig og því íþróttamaður Rangárþings ytra 2009.
"Dagný kemur úr góðu, heilbrigðu umhverfi. Það er enginn í vafa um það að bakgrunnur hennar frá KFR þar sem hún æfði og spilaði með strákum jafnt sem stúlkum hjálpar henni í því að ná árangri í fremstu röð. Einnig er ég á því að það heilbrigða og jákvæða umhverfi sem landsbyggðarbörn búa oft við hefur mótað frábæra persónu sem Dagný hefur að geyma."
"Dagný er stórkostlegur íþróttamaður, við segjum oft að hún hafi unnið í genalottóinu. Líkamlegt atgervi hennar er framúrskarandi og tækifæri hennar á að komast í fremstu röð eru til staðar. Hún er ákaflega skapgóð og vel liðin innan sem utan vallar af öllum leikmönnum og starfsfólki Vals. Dagný er jafnframt mikil keppnismanneskja og ætlar sér í fremstu röð og æfir eftir því. Hún er reglumanneskja fram í fingurgóma reykir hvorki né drekkur áfengi hugar að matarræði sínu og svefni." Þetta voru umsagnir Freys Alexanderssonar Þjálfara Vals
"Í lok janúar þreyttu allir leikmenn kvennalandsliðanna þrekpróf og Dagný tilkynnti þar fyrir prófið að hún ætlaði sér að hlaupa lengst af þeim öllum. Hún stóð við stóru orðin og ég hrífst af svoleiðis hugarfari hjá leikmönnum sem ætla sér að verða bestar, setja markið hátt og gera svo það sem þarf til þess. Það er alltaf pláss fyrir svoleiðis leikmenn í A-landsliði kvenna." En þetta sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari A-landsliðs Íslands.
Dagný hefur verið valin í A-landsliðið sem er að fara til Portúgals í æfingaferð og mót. Einnig hefur Dagný spilað 10 leiki fyrir U-17 og 16 fyrir U-19 ára landslið Íslands.
Við óskum henni og fjölskyldu hennar til hamingju með titilinn íþróttamann ársins að henni gangi allt í haginn í framtíðinni.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001