Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

1.12.2009 08:11

Veðurklúbburinn Lundi

Jólafastan mild


Fundur haldinn í Veðurklúbbnum Lundi 25. nóvember 2009,
Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10. og stjórnaði honum.
Ritari fundar Margrét Þórðardóttir las fundargerð síðasta fundar. Þá bauð Jón fundarstjóri velkominn gest fundarins Eygló Yngvadóttur .
Eygló rekur ættir sínar vítt um Rangárþing, en hún ólst upp í Þykkvabænum, lifði þar og starfaði í um 60 ár. Hún er dóttir hjónanna Sigríðar Magnúsdóttur og Yngva Markússonar sem lengi bjuggu í Oddsparti í Þykkvabæ, þar sem kartöfluræktin var víðast undirstöðu búgreinin. Eygló gekk í barnaskóla í Þykkvabænum, síðan tók við skóli lífsins. Maður Eyglóar er Hörður Júlíusson ættaður úr Reykjavík. Bjuggu þau í Önnuparti í 46 ár, stunduðu þar kartöflurækt og fleira. Þau sáu í 26 ár um veðurathuganir fyrir Veðurstofu Íslands. Lesa þurfti af mælum á þriggja tíma fresti, kanna vindstöðu og skýjafar. Skýrslur þurfti að senda mánaðarlega. Til leiðbeiningar fengu þau meðal ,,Skýjabókina”, handbók veðurathugunarmanna, sem Þór Jakobsson sagði okkur frá hér á fundi í vor. Nú eru þau Eygló og Hörður flutt á Selfoss og sjálfvirk veðurstöð komin í Þykkvabæinn. Eygló segir eftirtektarvert hvað veðurfar hefur hlýnað mikið frá því veðurathuganir hófust í Þykkvabæ. Sumarhiti fór oft ekki yfir 14 gráður, en síðasta sumar fór hitinn í 26 gráður.

Eygló las okkur ljóðið Landsýn eftir Hannes Hafstein. Í því ljóði koma mikið við sögu veðurlýsingar og veðrabrigði.

Veðurspáin:

Nú er aðventan skammt undan.

Brynjólfur telur veður verða gott áfram allavega út þessa imbru, til 16. desember. Sigrún Haraldsdóttir segir svipað veður næsta hálfa mánuðinn. Spá Hjalta sama áfram með smá tilbrigðum. Ingibjörg Ólafsdóttir segir að gott verði áfram, undir það tekur Guðrún Helgadóttir. Jón Helgason: veður verður svipað áfram þar til breytist. Davíð; sama blíðan en heldur kólnandi, undir það taka Bjarnhéðinn og Auður. Eygló segir gott veður verða fram í miðjan en heldur kólnar. Jakobína spáir áfram hvítum jólum. Hanna G. Jónsdóttir segir gott til jóla en janúar verði risjóttur. Guðni; sama veður áfram, gott með kuldapollum, allt fram til næstu tungl-imbru. Vísa Guðna um veðrið.

Veturinn ennþá læðist leynt

landið ekki beitir hörðu.

Í nóvember hef getað greint

gróðurlykt úr jörðu.

Einhverjir hafa hitt og rætt við ,,garnaspámenn” ber þeim saman um að vetur verði mildur.

Komið hefur í ljós að Jón Helgason hefur reynst furðu sannspár í vísukorni sem hann heyrðist fara með fyrir mánuði. En var ekki birt þá.

Að spá í veður alltaf er,

erfitt fyrir haus á mér.

En vindasamur virðist hér,

verða nóvember.

Fundi sem um 20 sátu var slitið kl. 15.04. Næsti fundur verður miðvikudaginn 9. desember.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn