Forsíđa


á vefnum í fréttum/fundargerđum   

24.11.2009 08:29

Veđurklúbburinn Lundi


Hekla alhvít, ţađ gćti kólnađ

Fundur haldinn í Veđurklúbbnum Lundi 11. nóvember 2009.
Jón Ţórđarson setti fund og stjórnađi honum ađ vanda.Ritari fundar, Margrét Ţórđardóttir las fundargerđ síđasta fundar. Ţá bauđ Jón fundarstjóri velkominn gest fundarins Vilborgu Gísladóttur í Fosshólum. Vilborg er dóttir hjónanna Guđmundu Valmundsdóttur og Gísla Kristjánssonar. Vilborg er fćdd á Móeiđarhvoli en ólst upp á Vindási á Landi, en ţar bjuggu foreldrar hennar allan sinn búskap. Systkinin á Vindási eru sex, ţar var oft glatt á hjalla, mikiđ sungiđ og kveđist á. Skólagangan hófst á Hellum á Landi, svo á Laugalandi og síđan í Skógaskóla. Vilborg giftist Ţórđi Matthíasi Sigurjónssyni í Fosshólum og eiga ţau ţrjú börn og ţrjú barnabörn. Ţau hjón ráku blandađan búskap í 40 ár, ţar til Matti lést áriđ 2006. Vilborg vinnur viđ Leikskólann á Laugalandi. Hún lćrđi leikskólafrćđi í Kennaraháskólanum og útskrifađist voriđ 2007. Vilborg er sveitakona í húđ og hár. Áhugamálin eru fjölskyldan, ferđalög og söngur, svo eitthvađ sé nefnt. Hún syngur í Samkór Rangćinga og Kirkjukór Marteinstungu- og Hagakirkna. Vilborg las ljóđiđ ,,Átthagaóđur” eftir Guđmund Daníelsson og ,,Veđurvísur” Jónasar Hallgrímssonar.

Fundarstjóri minntist Sigurđar Jónssonar frá Kastalabrekku sem er nýlátinn, en Sigurđur og Steinunn kona hans voru gestir Veđurfundar snemma í vor. Fundurinn sendir Guđmundi Karli ritstjóra Sunnlenska fréttablađsins baráttukveđjur í veikindum hans.

Veđurspáin:

Guđrún Valmundsóttir telur veđur verđa gott áfram, Hjalti og Kristjón taka undir ţađ. Sama segir Bjarnhéđinn en telur ađ 1. des. gćti komiđ bylur. Bragi segir ađ ţađ gćti kólnađ vegna ţess ađ Hekla er alhvít. Guđni telur ađ gott verđi áfram međ austanátt, hćtt viđ breytingum upp úr imbru nćr jólum. Sveinbjörn Benediktsson telur svipađ veđur fram til Ţorláksmessu en heldur kólnar upp úr mánađarmótum. Edda heldur sig viđ fyrri spá, ţađ kólni milli jóla og nýárs, ţví verđur mikiđ myrkur nú í skammdeginu. Vilborg telur vetur verđa mildan og undir ţađ tekur Jón Ţórđarson.

Fréttst hefur ađ fólk sem spáir í kindagarnir telji vetur verđa mildan en líkindi á páskaherti. Rćtt er um hverju sćti ađ fáa dreymi nú fyrir veđri. Helst er hallast ađ ţví ađ ţađ stafi af litlum veđurbreytingum. Guđni kastar fram vísu:

Veđurdrauma vćntum senn

alltaf um ţá rćđum.

Ćtli allt sé óklárt enn

á efri veđurhćđum.

Fundi sem 17 manns sóttu var slitiđ kl. 17.10.

Nćsti fundur verđur 25. nóvember kl. 16:00.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárţing ytra - Suđurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stćkka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn