Forsíđa


á vefnum í fréttum/fundargerđum   

4.11.2009 11:49

Veđurklúbburinn Lundi

Mildur vetur, en líklega hvít jól


Fundur haldinn í Veđurklúbbnum á Lundi 28. október. Jón Ţórđarson stjórnađi fundi sem settur var kl. 16.10.

Ritari fundar Margrét Ţórđard. las síđustu fundargerđ, ađ svo búnu bauđ Jón gest fundarins Sigríđi Helgu Heiđmundsdóttur velkomna. Sigríđur er dóttir hjónanna Klöru Haraldsdóttur og Heiđmundar Klemenssonar sem bjuggu á Kaldbak á Rangárvöllum. Sigríđur hefur mestmegnis aliđ sinn aldur á heimaslóđ utan einn vetur sem hún var á Patreksfirđi og vann ţar í fiski. Sigríđur hefur veriđ bóndi á Kaldbak síđan 1984. Mađur hennar er Viđar Steinarsson og eiga ţau tvćr dćtur Klöru sem var gestur okkar á síđasta fundi og Ösp sem er sagnfrćđingur. Auk hefđbundins búskapar hafa hjónin á Kaldbak stundađ skógrćkt frá árinu 1990 undir merkjum Suđurlandsskóga. Sigríđur er formađur Skógrćktarfélags Rangćinga, en ţađ var stofnađ 1943. Stćrsta rćktunarsvćđi ţess er í Bolholti á Rangárvöllum en ţar hófst plöntun 1989. Ţar hafa nú veriđ seld jólatré í sex ár, en sífelt vinsćlla er ađ fjölskyldur komi í skóginn ađ velja og höggva sér jólatré. Á vegum Skógrćktarfélagsins voru á síđasta sumri gróđursettar 200.000 plöntur. Félagiđ vinnur einnig ađ landvernd og uppgrćđslu.

Veđurspáin:

Halldóra og Auđur spá góđu áfram og Kristjón tekur undir ţađ. Sigrún Haraldsdóttir spáir snjóléttum vetri. Hjalti hefur ekki fengiđ neina vitrun enn. Jón Helgason segir ađ blíđa verđi áfram ţar til breytist. Brynjólfur segir ađ tíđ verđi góđ út nóvember. Davíđ telur blíđu verđa til áramóta, líklega í allan vetur. Guđni segir góđa tíđ verđa fram ađ nćsta fundi. Spánni fylgir vísa:

Áfram mun ríkja austanátt.

Áttin eftir tungli fór.

Vetrartíđin mun breytast brátt.

Bara lítiđ, en enginn snjór.

Edda segir sömu blíđu verđa ţar til milli jóla og nýárs nema kannski dag og dag. Jakobína segir veturinn verđa góđan en líklega hvít jól og ađeins snjó á jólaföstu. Ingibjörg sagnfrćđingur tekur undir ţađ. Sigríđi Heiđmundsdóttur hefur ekkert dreymt fyrir vetrinum, en telur ađ gćti veriđ kćla framundan. Hún lćtur okkur vita ţegar hana dreymir eitthvađ.

Áfram spjallađ um veturinn, en fyrsti vetrardagur var síđasta laugardag. Halldóra Ólafsdóttir rifjar upp gamlan húsgang ţví tengdan:

Gormánuđur grettiđ tetur,

gengur í hlađ og leiđir vetur.

Fundi sem nćr tuttugu manns sóttu var slitiđ kl. 16.55. Nćsti fundur verđur 11.nóvember.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárţing ytra - Suđurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stćkka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn