Menning og Mannlíf
29.10.2009 15:01
Veðurklúbburinn Lundi
Góð tíð framundan- áfram gert ráð fyrir eldgosi
Fundur í Veðurklúbbnum á Lundi 14. október 2009. Jón Þórðarson stjórnaði fundi sem settur var klukkan 16:10.
Er ritari, Margrét Þórðardóttir hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð Jón gest fundarins Klöru Viðarsdóttur velkomna. Klara er Rangæingur í húð og hár. Hún er fædd 1979, dóttir hjónanna Sigríðar Heiðmundsdóttur og Viðars Steinarssonar á Kaldbak. Amma hennar í móðurætt er nafna hennar, Klara Haraldsdóttir skógræktarkona og listamaður með meiru.
Klara hefur komið víða við í námi, að loknu stútentsprófi í FSU. Hún hefur BA próf í Spænsku og BS í viðskiptafræði.. Klara hefur unnið hin ýmsu störf og mörg tengjast þau útivist enda segist hún vera mikil útivistarmanneskja. Hún hefur meðal annars séð um rekstur Golfvallarins á Strönd, unnið við gróðursetningu skógarplantna, m.a. á Geitasandi og verið flokksstjóri við unglingavinnuna á Hellu. Nú starfar hún sem launafulltrúi á skrifstofu Rangárþings ytra. Sambýlismaður Klöru er Garðar Þorfinnsson frá Spóastöðum í Biskupstungum og búa þau í Gunnarsholti.
Veðurspáin:
Veðrið í dag er bjart og fallegt. Magnús Kjartansson spáir svipaðri haustblíðu áfram, Bjarnhéðinn tekur undir það. Jón Helgason segir umhleypinga fram að næsta fundi og læðir fram þessari vísu:
Haustlægðirnar herja á oss,
hellirignir víða.
En sólin okkur sendir koss,
svona milli hríða.
Guðni segir að ekki muni snjóa næstu vikur enda sé ,,haustkálfurinn” búinn.
Hann orðar sína spá svona:
Fögur laufin fjúka brott,
fölna tré í skógarlundi.
Veður fáum frekar gott,
fram að næsta fundi.
Edda tekur undir það, þar sem búið er að setja niður snjó hefur hún hugboð um að í framhaldinu verði góð tíð fram að jólum. Jón Þórðarson tekur undir að gott haust sé framundan. Bragi spáir góðu. Hvorki Ingigerði Oddsdóttur eða Halldóru Ólafsdóttur hefur dreymt nýlega fyrir veðri. Klara segir sig ekki dreyma fyrir veðri - annað mál sé með Sigríði móður hennar! Og í tilefni af þessum orðum hyggst Veðurklúbburinn fá góðan og berdreyminn gest á næstunni...
Áfram er spjallað og enn er rætt um eldgos sem marga hefur verið að dreyma að undanförnu. Jón vitnar í heimildarmann Þórðar Tómassonar í Skógum en sá spáir gosi í Eyjafjallajökli í lok október.
Fundi sem 16 manns sátu var slitið kl. 17.05.
Næsti fundur ákveðinn 28.október 2009 kl.16.00.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001