Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

23.10.2009 17:48

Tvöfaldur íslandsmeistari

og bikarmeistari


Dagný Brynjarsdóttir með einn af þeim þrem bikurum sem hún landaði í sumar
Dagný Brynjarsdóttir með einn af þeim þrem bikurum sem hún landaði í sumar

Hún Dagný Brynjarsdóttir hefur staðið sig með eindæmum vel á knattspyrnuvellinum í sumar. 
Hún varð íslandsmeistari með 2. flokki Vals og Íslandsmeistari með meistarflokki kvenna í sumar og bætti síðan Visabikarmeistartitli við í sumarlok.
Dagný sem er uppalin á Hellu og rétt orðin 18 ára, á að baki samtals 26 landsleiki, bæði fyrir U17 og U19 landliðunum.
Dagnýju eru færðar hamingjuóskir með þennan frábæra árangur og ekki síður þakklæti fyrir þá fyrirmynd sem hún er börnum og unglingum í sveitarfélaginu.
Þessi frábæri árangur Dagnýjar sýnir að börn og ungmenni geta náð langt í íþróttum og afrekskeppnum, hvar á landi sem er. 
Það ætti að að vera efni í sérstaka rannsókn að skoða hversu mörg ungmenni í sveitarfélaginu hafa náð framúrskarandi árangri í íþróttum. 
Hér með er skorað á íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að gera úttekt á því.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn