Menning og Mannlíf
17.10.2009 20:29
Vatnsleki á skrifstofu sveitarfélagsins
Tjón með minnsta móti
| Jón Guðmundsson starfsmaður Þjónustumiðstöðvar virðir fyrir sér lekann á skrifstofu sveitarstjóra. |
Í vatnsveðrinu síðustu daga, hefur lekið umtalsvert á skrifstofu sveitarfélagsins. Mestur hefur lekinn verið á skrifstofu sveitarstjóra. Vandræðin hófust seinni partinn á föstudaginn, 16. okt. sl. í rigningunni sem þá lagðist yfir Suðurland. Boð komu frá Öryggismiðstöðinni um að ekki væri allt með felldu. Starfsmenn skrifstofunnar og þjónustumiðstöðvarinnar brugðust skjótt við og forðuðu verðmætum frá skemmdum. Í kjölfarið var farið að leita að uppruna lekans, en það gekk fremur illa. Það voru síðan starfsmenn Rauðáss verktakafyrirtækisins, sem vinnur við byggingu tengibyggingarinnar við hlið sveitarstjórnarskrifstofunnar, sem fundu uppruna lekans, síðdegis á laugardeginum. Tjón virðist hafa verið með allra minnsta móti.
Ekki lítur út fyrir að tölvubúnaður eða skjalasafn sveitarfélagsins hafi orðið fyrir skemmdum. Tiltölulega litlar skemmdir eru á húsgögnum. Þannig að starfsmenn sveitarfélagsins sem unnu gott verk, virðast hafa bjargað miklum verðmætum og er þeim þökkuð frammistaða sín um helgina.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001