Menning og Mannlíf
14.10.2009 15:47
Veðurklúbburinn Lundi
Svipað veður en heldur kólnandi framundan
Fundur í Veðurklúbbnum á Lundi 23. september 2009. Jón Þórðarson setti fund kl. 16:15.
Er Margrét Þórðardóttir, ritari, hafði lesið fundargerð síðasta fundar bauð Jón sérstaka gesti fundarins velkomna, en þeir eru Haraldur Eiríksson og tengdafaðir hans Óttar Einarsson.
Haraldur þakkaði boðið á fund hjá þessum merkisklúbbi. Haraldur er sonur hjónanna Sigrúnar Haraldsdóttur og Eiríks Sigurjónssonar á Lýtingsstöðum í Holtum, fæddur árið 1962. Ólst hann upp við venjuleg sveitastörf og gekk í Laugalandsskóla. Fór 15 ára á vertíð í Ólafsvík og vann síðan við virkjanir og fleira. Hann fór aftur í nám 21 árs, fyrst í Fjölbrautaskóla Suðurlands, síðan í Tækniskólann og síðast er hann viðskiptafræðingur frá Bifröst.
Haraldur hefur víða komið við í vinnu, svo sem hjá Hagvirki á hálendinu og við hafnargerð á ýmsum stöðum. Hann vann við skrifstofustörf hjá fjármálaráðuneytinu í Reykjavík í 15 ár. Árið 2008 flutti Haraldur aftur í Holtin með fjölskyldu sína og starfar nú sem skrifstofustjóri hjá Rangárþingi ytra. Kona hans er Guðrún Óttarsdóttir og eiga þau þrjú börn. Það sem Haraldur er hvað stoltastur af er að vera einn af Hellismönnum ehf., en það fyrirtæki hefur byggt upp og rekur ferðaþjónustu við Landmannahelli.
Haraldur er að taka saman heimildir um langafa sinn í móðurætt. Sigurþór Ólafsson, sem bjó á Gaddstöðum. Sá var mikill hagleiksmaður og dugnaðarforkur og skemmtilegur heim að sækja. Haraldur endaði á að vitna í frásögn Helgu Skúladóttur um Sigurþór sem birtist í bókinni Rangárvellir. Helga segir að um Sigurþór hafi gömul kona á Rangárvöllum ort:
Sigurþór er sífellt glaður,
sístarfandi er sá maður.
Á Blesa sínum brunar frátt.
Hann er mörgum hjálparhraður,
hagur vel og bráðgáfaður.
Hölda lætur hlægja dátt.
Óttar Einarsson er Þingeyingur að ætt, náfrændi Árna sem bjó á Helluvaði. Hans forfeður voru miklir sauðfjárræktarmenn. Óttar er að vinna við að koma í tölvutækt form gömlum útvarpsþáttum sem faðir hans, Einar frá Hermundarfelli, tók saman og flutti. Óttar var kennari, lengst af á Norðurlandi við framhaldsskóla en kenndi síðast við Menntaskólann á Laugarvatni. Óttar flutti nokkrar vísur um ýmis málefni og var góður rómur gerður að flutningi hans.
Veðurspáin:
Kristján frá Unhól telur rigningu framundan. Hjalti spáir góðu, Edda spáir því sama og síðast, Magnús frá Hjallanesi segir svipað áfram. Brynjólfur svipað fram að næsta fundi en heldur kaldara. Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur og Jón taka undir það. Guðni segir að svipað veður verði áfram en nýtt tungl kviknaði 18. september síðastliðinn í norðvestri en þá er hætta á hringlandalegri átt. Guðni spáir svo með vísu:
Um veðrið að tala er mér tamt,
tel mig þó um það vita fátt.
Áfram verður vætusamt
þó vindurinn nái engri átt.
Óttar telur að veður verði vætusamt út vikuna og kólni í næstu viku.
Haraldur kom með staðbundna spá fyrir Áfangagil en þar verður réttað á morgun 24. september. Réttardagurinn verði þurrlegur og suðaustan rigningin muni ekki ná þangað.
Fundinum, sem um 20 manns sátu var slitið kl. 17:20.
Næsti fundur er áætlaður miðvikudaginn 14. október kl. 16.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001