Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

12.10.2009 15:24

Ingó og veðurguðirnir í Þykkvabæ


Félagsmiðstöðin Hellirinn og Flugbjörgunarsveitin á Hellu eru með samstarfsverkefni sem heitir "Tvennan". Tvennir tónleikar fyrir 8-10 bekk grunnskóla.

Fyrri hlutinn var 11.desember síðastliðin í íþróttahúsinu á Hellu, en þá kom hljómsveitin Á móti sól og skemmti ásamt hljómsveitum úr Rangárþingi.

Seinni hlutinn verður núna þriðjudaginn 3.nóvember 2009 í íþróttahúsinu í Þykkvabæ kl.19:30-23:00. Samið hefur verið við hljómsveitina Ingó og veðurguðina sem mun halda uppi fjöri það kvöld.Öllum félagsmiðstöðvum á Suðurlandi verður boðið á þessa tónleika eins og þá fyrstu. Þetta er mögulegt vegna styrkja frá Menningarráði Suðurlands, Lýðheilsustöð og Rangárþingi ytra.

Félagsmiðstöðvunum á Suðurlandi hefur einnig verið boðið að senda hljómsveit eða fulltrúa frá hverri félagsmiðstöð til að koma fram á tónleikunum. Félagsmiðstöðvarnar hafa flestar boðað komu sína á tónleikanna og verður örugglega mikið fjör á tónleikum Ingós og veðurguðanna.




Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn