Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

16.9.2009 15:09

Veðurklúbburinn Lundi

Milt en vætusamt haustveður og eldgos í janúar


Fundur í Veðurklúbbnum Lundi þann 9. september 2009. Jón Þórðarson setti fund kl.16.07. Margrét Ýrr, hjúkrunarforstjóri Lundar ávarpaði fundinn og bauð hún fólk velkomið á þennan fyrsta fund haustsins með óskum um að vetrarstarfið verði farsælt. Sú nýbreytni er að nú er komin krukka sem mun liggja fram fyrir kaffisjóð en framlög eru frjáls á fundunum. Þá kynnti hún Minningarsjóð Lundar sem nýlega var stofnaður.

Gestir þessa fundar eru, Sigríður Jónasdóttir frá Brekkum í Holtum og frænka hennar, Heiða Helgadóttir, en þær eru systkinabörn. Sigríður hvað sér sómi og heiður að vera boðið á þennan fund. Hún er fædd 1954, dóttir hjónanna Jónasar Sigurðssonar og Guðnýjar Hammer er lengi bjuggu á Brekkum. Sigríður er afar tengd þeim stað en bjó lengi á Rauðalæk. Hóf störf í Búnaðarbankanum Hellu 1973, sama dag og Vestmanneyjagosið hófst. Hún vinnur enn hjá sama fyrirtæki en nú í Kópavogi. Hún færði sig um set á höfuðborgarsvæðið 2001 en tengslin í Holtin eru alltaf jafn sterk. Las hún kvæðið ,,Stormur” eftir Hannes Hafstein og er efni þess viðeigandi á veðurfundi, þó nú sé blítt veður.

Heiður sem fædd er 1940 er dóttir Helga Hannessonar kaupfélagsstjóra á Rauðalæk og konu hans Margrétar Sigurðardóttur frá Brekkum. Heiður ólst upp á Rauðalæk og síðar Brekkum. Hún starfaði lengi sem blaðamaður á Tímanum. Heiði er minnisstæð í bernsku veðurspár Sigurðar afa síns, er hann spáði í skýin á dyrahellunni á Brekkum á kvöldin.

Veðurspáin:

Spá síðasta fundar hefur ræst í flestu nema gosin, sem betur fer, enda voru þau ótímasett. Brynjólfur segir að áfram verði svipað veður, en aðeins meiri væta. Undir það taka Davíð, Ingibjörg sagnfræðingur, Magnús og fleiri. Bragi telur sunnan- og suðvestan átt í vændum. Sigrún Haralds segir gott haust framundan, sama segja Aggý og Gústi nema meiri væta. Þau segja líka að Hekla muni líklega bæra á sér snemma næsta ár. Það ráða þau af draumi. Jón Helgason segir verða blíðu og gott veður framundan. Heiður er sammála en þó verði meiri væta framundan. Jón Þórðarson spáir góðu hausti og vætu, Hjalti og Edda eru sammála því. Edda segist hafa fundið lyktina af haustinu í gær. Guðni segir lítið við að styðjast, en spáir með vísu.

Að veðurspá haustsins vil ég gæta,

verða mun dálítið regn.

svona öðru hvoru hæglætisvæta,

haustið allt út í gegn.

Talið barst að smalamennsku og réttum og flutti Guðni vísnabálkinn ,,Fjallskilareglugerð hin nýja” en höfundur hennar er bóndi úr Köldukinn, S-Þing. Sigríður Jónasdóttir flutti ljóðið ,,Lambið hinsta” eftir Kristján Eldjárn. Gerður var góður rómur að þessum ljóðaflutningi.

Fundi, sem rúmlega 30 manns sátu, var slitið kl.17. 20. Næsti fundur verður miðvikudaginn 22. sept. 2009 kl. 16:00.

 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn