Menning og Mannlíf
15.9.2009 21:00
Suðurlandsvegur 1-3 Tengibygging
Tilboð í áfanga 2 opnuð
Opnuð voru tilboð í áfanga 2. vegna byggingar tengibyggingar milli Suðurlandsvegar 1 og 3 á Hellu. Tilboð frá 13 aðilum bárust og voru þau öll talsvert lægri en kostnaðaráætlun hönnuða gerði ráð fyrir, en hún var að upphæð kr. 300.802.520,-.
Lægsta tilboðið var frá Selhúsum ehf. á Selfossi, að upphæð kr. 214.408.635,- eða um 71% af kostnaðaráætlun. Næst lægsta tilboðið barst frá Trésmiðju Ingólfs að upphæð kr. 217.182.355,-
Verkfræðistofan Verkís mun á næstu dögum yfirfara tilboðin. Tilboð í 2. áfanga tengibyggingar voru sem hér segir:
Tilboðsgjafi Upphæð í krónum:
Örverk tréverk fasteignir ehf. 222.177.777,-
Þarfaþing. hf. 222.742.345,-
Múr & mál. 242.922.638,-
P.V. ehf. 222.920.000,-
Selhús ehf. 214.408.635,-
Trésmiðja Ingólfs ehf. 217.182.355,-
Sveinbjörn Sigurðsson hf. 259.999.999,-
Smíðandi ehf. 233.832.823,-
Vörðufell 249.700.052,-
Byggingarfélagið Bogi 288.453.405,-
B.H Byggingarfélag 244.277.127,-
Eykt ehf. 226.710.791,-
Rauðás ehf. 229.000.000,-
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001