Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

13.9.2009 15:18

Ferð um Friðland að Fjallabaki

Stýrihópur um skipulagsmál ferðast um hálendið


Þorgils Torfi Jónsson, Sigurbjartur Pálsson og Sigfús Davíðsson, ráðfæra sig um skipulagsmál við Ásgeir Jónsson frá Landmótun ehf. og Valtý Valtýsson úr Friðlandsnefnd.
Þorgils Torfi Jónsson, Sigurbjartur Pálsson og Sigfús Davíðsson, ráðfæra sig um skipulagsmál við Ásgeir Jónsson frá Landmótun ehf. og Valtý Valtýsson úr Friðlandsnefnd.

Farið var í Friðland að Fjallabaki þriðjudaginn 2. september sl.  Ferðin var liður í vinnu við endurskoðun aðalskipulags fyrir sveitarfélagið.  Það voru þeir Þorgils Torfi Jónsson og Sigurbjartur Pálsson úr stýrihópnum sem fóru, en Ólafur E. Júlíusson forfallaðist á síðustu stundu og kom Sigfús Davíðsson í hans stað í ferðina.  Töluverður fjöldi annarra aðila fór með í ferðina, s.s. fulltrúar úr sveitarstjórn, samgöngunefnd, hálendisnefnd, fjallskilanefnd, Friðlandsnefnd og frá Vegagerðinni. Einnig byggingar- og skipulagsfulltrúi. 
Ekki komust allir með í ferðina og er önnur ferð fyrirhuguð síðar með fulltrúum Umvherfisstofnunar, Ferðamálastofu og fleiri aðila sem tengjast skipulagsmálum á hálendinu og landnotkun þar. Það er Landmótun ehf. sem vinnur við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.  Skoðaðar voru m.a. aðstæður í Landmannahelli, Landmannalaugum og við Frostastaðaháls.  Ennfremur ástand vega og hugmyndir um nýjar veglínur. 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn