Menning og Mannlíf
6.9.2009 19:44
Nýr umsjónarmaður á Strönd
| Stjórn og starfsmaður Sorpstöðvarinnar á Strönd. |
Ráðinn hefur verið umsjónarmaður á urðunarstaðnum Strönd. Ómar Sigurðsson, sem áður starfaði í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins hóf störf þann 1. ágúst sl.
Af því tilefni fundaði stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu á Strönd í byrjun mánaðarins og var skoðunarferð stjórnarmanna um urðunarsvæðiðmeðal dagskrárliða. Ásýnd svæðisins hefur tekið nokkrum breytingum sem miða að því að draga úr neikvæðum áhrifum starfsseminnar.
Samþykkt var að lagfæra geymslusvæði á Strönd og verða breytingar þar að lútandi kynntar innan skamms.Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu skipa þeir Þorgils Torfi Jónsson, Elvar Eyvindsson og Egill Sigurðsson. Í forföllum Elvars mætti Ágúst Ingi Ólafsson. Á myndinn sjást þeir ásamt Ómari Sigurðssyni.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001