Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

6.9.2009 19:27

Samgöngunefnd skoðar styrkvegi


Samgöngunefnd með Sveini Sigurjónssyni í gömlu réttunum við Réttarnes.  Þær voru aflagðar 1660 en vel má greina hleðslur og hólf eru þar enn sýnileg.
Samgöngunefnd með Sveini Sigurjónssyni í gömlu réttunum við Réttarnes. Þær voru aflagðar 1660 en vel má greina hleðslur og hólf eru þar enn sýnileg.

Samgöngunefnd sveitarfélagsins fór í ferð um sveitarfélagið í þeim tilgangi að skoða styrkvegi og taka ákvarðanir varðandi framkvæmdir í framtíðinni.  Ferðin hófst í Reynifellslandi, þaðan var ekið að Fossi, í gegnum Gunnarsholt að upp Kotveg (Heklubraut) þaðan yfir í Réttarnes, að Þjófafossi og niður í Skarfanes.  Með þessari leiðarlýsingu má segja að þarna hafi vegir sem áætlað er að verði lagfærðir á næstunni verið skoðaðir.
Búið er að lagfæra veginn inn að Króki á Rangárvallaafrétti, upp Faxa, og ætti hann að vera fær öllum sæmilega útbúnum jeppum og jafnvel fjórhjóladrifnum fólksbílum .   Réttara er samt að huga vel að aðstæðum áður en lagt er í ferðalög á þessum árstíma. Styrkvegir eru skilgreindir þeir vegir sem sveitarfélagið hefur tekið að sér að sjá um viðhald og uppbyggingu á.  Vegagerðin veitir árlega styrki til vegaframkvæmda af þessu tagi og hefur samstarf sveitarfélagsins við Vegagerðina tekist mjög vel mjög að flestra mati.  Samgöngunefnd hefur séð um ákvarðanir við styrkvegaframkvæmdir.  Í nefndinni sitja þeir Engilbert Olgeirsson,  Sigurbjartur Pálsson og Þröstur Guðnason. 


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn