Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

6.9.2009 14:20

Veðurklúbburinn Lundi

Góð viðri- en tvö eldgos framundan


Góðviðri - en tvö eldgos framundan!

Fundur í Veðurklúbbi Lundar 12. ágúst. Jón Þórðarson setti fund kl. 16.10.

Pálmar Guðjónsson var gestur fundarins.

Pálmar er fæddur á Brekkum í Holtum 1934 yngstur fimm systkina, sonur Guðjóns Þorsteinssonar smiðs er þar bjó og seinni konu hans Margrétar Halldórsdóttur, sem ættuð var frá Syðri-Rauðalæk.

Pálmar flutti að Syðri-Rauðalæk 1941, þá sjö ára gamall, eftir lát móður sinnar. Þar átti hann heimili í 26 ár og á því djúpar rætur þar. Pálmar er handavinnukennari að mennt. Hann var 15 ár kennari og skólastjóri í Brautarholti á Skeiðum, önnur 15 ár kennari við Foldaskóla í Reykjavík. Kona hans er Hildur Björnsdóttir og eiga þau tvo syni.

Aðspurður kveðst Pálmar fá afrek hafa unnið um dagana en hann hefur gaman af að skyggnast yfir farinn veg og sögu forfeðranna - það fólk vann afrek sem vert er að minnast. Ættmenni Pálmars bjuggu á Syðri Rauðalæk í samtals 176 ár. Runólfur Halldórsson móðurbróðir hans sat í hreppsnefnd í 49 ár. Hann var sæmdur orðunni Riddari af Dannebrog. Gunnar Runólfsson stjórnaði farsællega Sparisjóði Holta- og Ásahrepps í þau 49 ár sem sjóðurinn starfaði í gegnum margvísleg ,,veðrabrigði” fjármála. Heimilið á Syðri Rauðalæk var gestrisið og hjúasælt. Pálmar getur sérstaklega Guðmundar vinnumanns þar. Af honum lærði hann margt er laut að veðri. Guðmundur talaði um ,,veðurreynd” þ.e. langtímaveður. Sagði hann ,,alltaf vera gott veður þegar logn er”.

Pálmar hefur tekið saman og skráð veðurteikn séð frá Syðri-Rauðalæk en víðsýnt er frá bænum. Þennan fróðleik las hann upp og afhenti svo Veðurklúbbnum til varðveislu. Það var langt og torsótt hjá fólki fyrri tíma að sækja verslun ólíkt því sem nú er. Halldór afi Pálmars drukknaði í verslunarferð til Eyrarbakka frá 23 börnum. Einnig fórst Halldór langafi Pálmars í verslunarferð.

Pálmar minnist Eiríks bónda og danebroksmanns á Reykjum á Skeiðum og kvað vísur er hann orti um sauðina sem hann og fleiri seldu á fæti til Englands.

Veðurspáin:

Jón Þórðarson spáir svipuðu veðri áfram. Edda segir sama góðviðrið áfram og ekki fleiri frostnætur í bráð. Hjalti tekur undir það en segir styttast í eldgos, líklega tvö í röð. Styðst hann þar við drauma sína. Bjarnhéðinn nefnir skin og skúrir. Jón Helgason: ,,Það verður svona þar til breytist”. Davíð: ,,Sama blíðan áfram”. Bragi tekur undir það. Magnús Kjartansson hefur ekkert dreymt nýlega. Brynjólfur spáir regni eftir 20. ágúst, þá kemur nýtt tungl. Undir það tekur Guðni. Segir hann tunglið kvikna suðaustri, en hann telur haustið ekki verða eins úrkomusamt og á síðasta ári.

Vísa frá Guðna,

Ekki frá gömlum fræðum víkjum

og fylgjum þeim svona gegnumsneitt.

Veðurspána ekkert ýkjum

að öllu jöfnu svona yfirleitt.

Fundi sem nær 20 manns sóttu slitið kl 17:25.

Næsti fundur er áætlaður 09. september kl.16.00

Á fundi sem ekki hefur verið minnst í Sunnlenska vegna sumarfría var Jóna Steinunn Sveinsdóttir bóndi og húsfreyja í Meiri-Tungu gestur okkar. Um þann fund má lesa á vefnum: http://www.rangarthingytra.is/

.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn