Menning og Mannlíf
22.8.2009 12:25
Ferð um Holtamannaafrétt
Vetrarlegt í Vonarskarði
| Áð við sýslu- og sveitarfélagamörk við fjallið Deili í Vonarskarði. |
Hreppsnefnd Rangárþings ytra fór á föstudaginn í ferð um Holtamannaafrétt ásamt hreppsnefnd Ásahrepps. Farið var vítt og breytt um afréttinn og skoðaðir markverðir staðir. Meðal annars var komið við í Vonarskarði í austasta hluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar var ansi vetrarlegt um að litast eins og myndin sýnir. Á myndinni sjást hreppsnefndarmenn horfa til fjallsins Deilis, en þar liggja sýslumörk Rangárvallasýslu og Suður-Þingeyjasýslu. Ferðin var liður í vinnu við endurskoðun aðalskipulags, en bæði sveitarfélögin vinna að þeim verkefnum. Rétt er að taka fram að Holtamannaafréttur er í sameign sveitarfélaganna Rangárþings ytra og Ásahrepps. Ekki ríkir fullkomin sátt um eignaskiptingu, en Áshreppingar halda því fram að eignarhlutur þeirra sé 4/7 en meðal sveitarstjórnar Rangárþings ytra er þeirri skoðun haldið á lofti að sveitarfélagið eigi 6/11 afréttarins. Um þetta er deilt fyrir dómstólum. Hins vegar náðist fullkomin sátt milli sveitarstjórnarmanna í ferðinni að umhverfi afréttarins er ægifagurt og náttúra kynngimögnuð.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001