Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

16.8.2009 11:17

Best skreytta húsið á Töðugjöldum

Breiðalda 2 á Hellu


Best skreytta húsið á Töðugjöldum 2009, stendur við Breiðöldu 2 á Hellu.
Best skreytta húsið á Töðugjöldum 2009, stendur við Breiðöldu 2 á Hellu.

Sigurvegari í keppni um best skreytta húsið á Töðugjöldum var útnefndur á kvöldvökunni á laugardagskvöldið.  Dómnefndina skipuðu þeir Simmi og Jói, en þeir notuðust við flókin en vel útfærð viðmið, í dómstörfum sínum.  Sigurvegari keppninnar í ár var Breiðalda 2 á Hellu.  Heimilisfólkinu, þeim Svani, Ragnhildi og Margréti eru færðar bestu hamingjuóskur og þakkir fyrir framlag sitt.  Verðlaunin voru grill frá Húsasmiðjunni.  Öllum öðrum sem skreyttu hús sín og hverfi eru sömuleiðis færðar þakkir.

Litaskipting hverfa á Töðugjöldum hefur tekist vel að flestra mati.  Mikil keppni hefur verið mili hverfa og hafa hverfabúar lagt mikinn metnað og dugnað í að skreyta hverfi sín sem mest og  best.  Einnig hefur hugmyndin um "opið hús" tekist vel, en það var reynt  í fyrsta skipti í ár.  Nokkrir íbúar buðu nágrönnum, gestum og gangandi upp á veitingar af ýmsu tagi - sem þáðar voru með þökkum.  Vonandi er að þessi háttur fari vaxandi og gestgjöfum, sem og gestum þeirra fari fjölgandi í framtíðinni.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn