Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

13.8.2009 08:58

Veðurklúbburinn Lundi

Sama blíðan áfram!!


Fundur í Veðurklúbbi Lundar miðvikudag 08.07, Jón Þórðarson setti fund kl.16.25

Gestur fundarins var Jóna Steinunn Sveinsdóttir bóndi og húsfreyja Meiri-Tungu í Holtum. Jóna er fædd í Götu í Holtum dóttir hjónanna Árbjargar Ólafsdóttur og Sveins Sveinssonar er bjuggu í Húsagarði í Landsveit. Tveggja ára gömul kemur hún svo að Meiri-Tungu til Þórhöllu móðursystur sinnar og hefur átt þar heimili síðan. Jóna er gagnfræðingur úr Skógaskóla, einnig stundaði hún nám í Húsmæðraskólanum á Laugavatni. Með manni sínum, Gísla Magnússyni, bjó Jóna í rúm 20 ár og eignuðust þau 6 börn. Eftir lát Gísla bjó hún með tveimur börnum sínum. Þegar talið berst að eftirminnilegum veðrum er Jónu efst í huga febrúarveðrið 1991, þá fuku þök af súrheysturnum og fleiri byggingum á Suðurlandi. Verður það að teljast mikil mildi að ekki varð manntjón í þessum hamförum.

Veðurspáin:

Jóna Steinunn segir erfitt að spá í veðrið, en telur að sumarið í heild verði gott, nefnir að Hundadagar byrji á mánudag. Borghildur telur veður svipað áfram, skin og skúrir. Hjalti telur engar vísbendingar um breytingar á veðri. Edda tekur undir það, telur hún sumarið verða eftirminnilega gott.

Erla Sigurðardóttir er á sama máli, sama segir Guðrún . Bragi er sammála. Steinþór segir enga breytingu framundan. Ragnhildur segir sig ekkert hafa dreymt. Talar um hve veðurfar sé breytt, og nú í blíðunni rifjar hún upp þegar hún var barn og húsakynni lítil og þröng að oft snjóaði það mikið að moka þurfti snjó fyrst inn svo hægt væri að komast til að moka honum út. Út frá þeim hugleiðingur rifjar Rannveig Hjálmarsdóttir upp veðurvísu eftir föður sinn Hjálmar Guðmundsson úr Berufirði.

Leggur fönn á lagðan hyl,

´ í loftinu sami þráinn.

Lygnir í kvöld og léttir til,

lýgur veðurspáin.

Guðni áréttar fyrri spár um mikinn þurrk mun hann frekar aukast miðað við hina gömlu spádaga, jafnvel endast langt út ágúst því Jónsmessan 24 juni og Sjösofendadagur 27 juni þessir dagar voru þurrir og veðurblíðir, vísuðu því báðir eins.

Nú er veður ei til meins.

Allir eru veðri háðir.

Spádagarnir sýndu eins.

Sömu blíðu báðir.

Í lokin fljóta með hugleiðingar Guðna að loknum síðasta fundi þegar Þór útskýrði Skýjabókina.

Í veðurklúbbnum ei viðgengst mók

visku að okkur sópum.

Þór hampaði heilli bók

sem hentar skýjaglópum.

Næsti fundur áætlaður 12. ágúst. Fundi sem 18 manns sátu var slitið kl.17.00


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn