Menning og Mannlíf
23.6.2009 09:02
Veðurklúbburinn Lundi.
Útlit fyrir blítt sumar
Fundur í Veðurklúbbi Lundar miðvikudag 10. júní. Jón Þórðarson setti fund kl.16.00.
Gestur fundarinns var Þór Jakobsson veðurfræðingur sem er verndari og heiðursfélagi klúbbsins.
Margrét Þórðardóttir ritari las fundargerð síðasta fundar.
Þór ræddi um skýin og hina mismunandi ásýnd þeirra og hvað lesa má úr þeim. Kynnti Þór Skýjabókina sem er alþjóðleg handbók veðurathugunarmanna.
Þar má t.d. finna hvernig 10 mismunandi tegundir skýja flokkast og lýsingar, á hvernig þau myndast. Einnig fór hann í nöfn skýja eins og hnoðrar, bólstrar, klakkar og skúraský svo fátt eitt sé nefnt, allt eftir eðli þeirra og útliti. Einnig kynnti Þór bókina Veðurdaga eftir hjónin Unni Ólafsdóttur og Þórarin Eldjárn. Las hann fróðleik úr henni sem tengdist 10 juni, hvað gerst hefur markvert þann dag.
Þór sagði frá að sett hefur verið upp sjálfvirk veðurathugunarstöð í landi hans í Mörk á Landi.
Eftir kaffihlé var tekið til við veðurspána.
Það var létt yfir fólki, allir spáðu frekar góðu. Edda og Hjalti voru sammála um áframhaldandi gott veður: Ragnhildur spáir góðviðri. Magnús Kjartansson taldi verða gott veður þar til fer að væta í byrjun ágúst. Jón Helgason segir að veðrið verði svona þar til breytist, Bjarnhéðinn tekur undir það. Billi telur að sama blíðan muni haldast áfram og sama segir Erla Sigurðardóttir. Guðni heldur sig við að spá góðu en jafnvel of lítilli vætu. Hann bíður eftir Jósmessunni og hvernig viðri þá. Jakobina segir gott sumar, væta verði í ágúst, jafnvel of mikil.
Þór var með langtímaspá frá Bresku veðurstofunni fyrir juni, júli og ágúst.
Hiti: Líkur eru á að hlýtt verði á Íslandi
Úrkoma: Líkur eru á þurrkum.
Bara nokkuð samhljóða spá vðurklúbbsins!
Vísa Guðna um veðrið. Nú venjuföst er vastanátt,
í veðrið spá hinir fróðu.
sem lifa munu í sælli sátt
á sumri listagóðu.
Næsti fundur er áætlaður eftir fjórar vikur, þann 8. júlí
Fundi, sem yfir 20 manns sátu var slitið kl. 17.12.
© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001