Forsíđa


á vefnum í fréttum/fundargerđum   

4.6.2009 11:19

Veđurklúbburinn Lundi.


Horfur á ágćtu sumri

Fundur í Veđurklúbbi Lundar 27. maí. Jón Ţórđarson setti fund kl. 16.10.

Margrét Bjarnadóttir fráfarandi ritari las fundargerđ síđasta fundar, voru henni ţökkuđ ritarastörfin og nýr ritari, Margrét Ţórđardóttir bođin velkomin.

Gestir fundarins eru hjónin Reynir Ţorsteinsson og Jóna María Eiríksdóttir í Gunnarsholti.

Jóna María var uppalin á Reykjalundi í Mosfellssveit, foreldrar hennar voru ţar sjúklingar. Á Reykjalundi var notalegt samfélag nánast sem ein fjölskylda, samvera á jólum eftirminnileg. Seinna fluttist Jóna María til Vestmanneyja, ţar sem hún kynnist Reyni, manni sínum. Ţau bjuggu í Eyjum í fjögur ár, - og ţar var lífiđ nú gott, međal annars ađ safna pysjum og sleppa á sjóinn. Núna er Jóna María starfsmannastjóri Landgrćđslunnar.

Reynir er fćddur og uppalinn á Heiđi á Rangárvöllum. Hann hóf skólagöngu í heimavistarskóla á Strönd og minnist ánćgjustunda ţar. Reynir var fimm vertíđir í Eyjum. Áhugamál beggja hjónanna er tengt búskap og rćktun og ţeim hentar betur ađ búa í sveit. Reynir vann fyrst viđ búskap Landgrćđslunnar en störf breyttust og áherslur í landgrćđslu međ hlýnandi veđurfari. Stćrstu verkefni nú eru međal annars uppgrćđsla á Landeyjasandi fyrir Siglingamálastofnun og viđ Kárahnjúka fyrir Landsvirkjun. “Bćndur grćđa landiđ” er einnig viđamikiđ verkefni.

Reynir stundar einnig tófuveiđar, tók viđ ţví af Sigurđi Ásgeirssyni.

Jóna María sagđi forréttindi ađ hafa kynnst gömlum mönnum er störfuđu og bjuggu í Gunnarsholti og ómetanlegt ađ lćra af ţeim lífsspekina. Hún hefur haldiđ veđurdagbók í nćr 15 ár. Telur ekki miklar breytingar milli ára annađ en hlýnandi veđur.

Eftir kaffihlé var var komiđ ađ veđurspánni.

Ingibjörg Ólafsdóttir kom međ heimildir um Imbrudaga teknar saman af Kristjáni Val Ingólfssyni. Segir ţar međal annars: “Imbrudagar byggja á ćfafornri venju kristninnar í vesturálfu. Ţeir eru eins konar inngangur ađ árstíđunum fjórum. Ekki er ólíklegt ađ ţeir hafi upphaflega veriđ tengdir hátíđum í heiđnum siđ rétt eins og jólin.

Nafniđ er komiđ úr engilsaxnesku og er merking ţess umdeild.”

Jón fundarstjóri leitađi eftir veđurspá sumarsins. Hann segir marga spyrja “hvernig spáir Veđurklúbburinn fyrir komandi sumri?”. Ragnhildur segir ekki hćgt ađ spá öđru en góđu í ţessari einmuna blíđu. Magga Bjarna segir fara ađ rigna um mánađamót júní – júlí . Magnús Kjartansson telur ađ erfitt verđi međ heyţurrk. Billi frá Lćkjarbotnum segir ađ eftir hvítasunnu komi blautur júní en ţorni međ hundadögum. Reynir spáir vćtusömu til 20. júní, heyskapartíđ verđi góđ og ágúst bestur. Bjarnhéđinn segir gott framundan.

Guđni vitnar í fyrri spár - sumariđ verđi gott í heild en skúrir af og til. Edda tók undir ţađ; gott veđur en köflótt.

Guđni lumađi á einni vísu í restina.

Vorveđriđ er eins og vćnta mátti,

víđa svífa frjó.

Á uppstigningardag ég átti

enga von á snjó.

Fundi slitiđ kl.17.20. Fundinn sátu tuttugu manns. M.Ţ.


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárţing ytra - Suđurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stćkka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn