Forsíða


á vefnum í fréttum/fundargerðum   

6.5.2009 08:50

Veðurklúbburinn Lundi.


Fyrsta sumarspáin

Þann 23.apríl héldum við fund hjá Veðurklúbbi Lundar og var hann settur kl. 16.10.

Gestur fundarinsvar Gústav Stolzenwald.

Tilviljun ein réð því að forfaðir hans, klæðskeri frá Þýskalandi,komst um borð í skip árið 1923 sem sigldi til Íslands. Þar með var framtíð hans ráðin. Fór hann í land í Vestmannaeyjum, þar sem hann bjó í nokkur ár og kynntist konu sinni. Gústav, eða Gústi eins og við köllum hann, er fæddur í Dísukoti í Þykkvabæ, en móðir hans er frá Minna-Hofi og faðir hans var hálfur Þjóðverji, eins og áður er getið. Gústi hefur starfað við ýmislegt, en þau hjónin byggðu upp ferðaþjónustu á Stokkalæk. Gústi er menntaður rafeindavirki og hefur unnið hjá Landsvirkjun, Símanum og nú síðast hjá Vodafone.

Gústi fór með ljóðið "Undir Öræfahimni" úr samnefndri bók eftir hann sjálfan. Það er fallegt og myndrænt ljóð.

SpáVeðurklúbbsins:

Gústi segir verða vætusamt sumar en hlýtt – það byrji með rigningu og endi með rigningu,

Drífa á Keldum sem sat einnig fund með okkur spáði hlýju og góðu sumri, Jón Helga vætusömu sumri, Davíð spáði hlýju sumrti sérstakl. fyrri partinn, Billi svipuðu fram að hvítuasunnu, hundadagar yrðu góðir en júní blautur, Bjarnhéðinn á von á góðu sumri, einnig Hjalti og Edda.

Jagga sagði að veður yrðu svona sitt á hvað rigning eða sól.Guðni á Þverlæk tjáði að sumartungl kæmi næsta laugardag 25. apríl en vísan sem fylgir skýrir það best:

Á veðursvið mæni og met allstrítt

í maí sé fram á risjungsdrasl

en miðsumar verður hægt og hlýtt

og heyskapurinn ekkert basl

Jón Helga hefur einnig trú á vætusömu sumri og spáði í bundnu máli:

Umhleypingar eru hér

er þó von að breyti

vorblíðan nú virðist mér

vera á næsta leyti.

Þá komu í hendur okkar afmælisvísur í tilefni 2ára afmælis veðurklúbbsins okkar, frá Guðna á Þverlæk. Þær eru svona:

Í veðrið að spá, er forn fræðigrein

og farsælt að hugurinn við það staldri,

ég minnast því vil á sérstæðan svein


Prenta frétt Senda frétt
Til baka


© 2003 - 2008 Rangárþing ytra - Suðurlandsvegi 1 - 850 Hella - kt. 520602-3050 - Sími 488 7000 Fax 488 7001

Upprunalegt letur Minnka letur Stækka letur Ábendingar og fyrirspurnir Veftré Starfsmenn